„Þarf að huga betur að mér sjálfum og minni fjölskyldu“

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir alveg óljóst hvað taki við hjá sér er hann láti af störfum sótt­varna­læknis í haust. Bæði fag­legar og per­sónu­legar ástæður séu fyrir ákvörð­un­inni.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Hinn yfir­veg­aði, ein­beitti og orð­heppni vís­inda­maður Þórólfur Guðnason hefur til­kynnt að hann ætli að hætta sem sótt­varna­læknir í haust. Sú ákvörðun ætti ekki að koma eins og þruma úr heið­skíru lofti því hann hefur sinnt starf­inu í tutt­ugu ár og verður sjö­tugur á næsta ári. En engu að síður virð­ist sem ákvörð­unin hafi komið þjóð­inni nokkuð á óvart.

[links]Ekki leið á löngu eftir að til­kynn­ing var birt á vef emb­ættis land­læknis að Þórólfur var mættur í beina útsend­ingu á Vísi til að útskýra ákvörð­un­ina. Maðurinn sem hefur leitt íslensku þjóð­ina í gegnum heims­far­aldur, brýnt enda­laust fyrir okkur að við­hafa per­sónu­bundnar sótt­varnir – sagt okkur að þvo hendur og spritta oftar er nokkur annar. Kenndi okkur að lesa í kúrfur, hvað R-tala væri, hjarð­ó­næmi, rað­grein­ing, nýgengi og svo mætti áfram telja enda­laust.

Og það er einmitt staðan í far­aldri COVID-19 sem er m.a. ástæða þess að Þórólfur ætlar að hætta á þessum tíma­punkti. Hann sagði við Vísi í morgun að hann teldi okkur vera komin á góðan stað í þeirri bylgju far­ald­urs­ins, eins og hann orð­aði það, sem gengið hefur yfir síð­ustu vikur og mán­uði. En ítrek­aði, eins og svo oft áður, að far­ald­ur­inn væri ekki búinn. „En ég held að þetta sé góður tími fyrir mig og sótt­varn­irnar að stokka aðeins upp.“

Ágætt væri að hafa ein­hvern annan í brúnni þegar far­ald­ur­inn og við­brögð við honum verða gerð upp sem og við að upp­færa allar okkar við­bragðs­á­ætl­anir út frá feng­inni reynslu.

Ákvörð­un­ina seg­ist hann hafa tekið „algjör­lega“ á sínum eigin for­sendum.

„Mér líður bara mjög vel,“ sagði hann. „Ég er stoltur af því sem við höfum verið að gera hér [hjá land­lækni og almanna­vörnum] og ég held að allir geti borðið höf­uðið hátt. En við þurfum að halda áfram.“ Og svo sagði hann það sem við höfum heyrt hann segja svo oft áður: „Það getur komið bakslag í far­ald­ur­inn.“

Ekki láta villa sér sýn

Spurður hvort hann væri með ein­hver skila­boð til næsta sótt­varna­læknis svar­aði Þórólfur: „Að standa eins fag­lega að hlutum eins og mögu­legt er. Láta ekki ein­hver ann­ar­leg sjón­ar­mið villa sér sýn.“

Hann segir „alveg óljóst“ hvað taki við hjá sér í haust. „Ég þarf að huga betur að mér sjálfum og minni fjöl­skyldu.“

Upp­lýs­inga­fundir almanna­varna og emb­ættis land­læknis er far­ald­ur­inn stóð sem hæst skiptu tugum. Og Þórólfur var í aðal­hlut­verki á þeim flestum. Hann sagð­ist ekki úti­lokað að hann ætti eftir að sakna upp­lýs­inga­fund­anna og að hann ætti eftir að „fara í gegnum ákveðið hug­ar­angur þegar þessu lýkur. En ég held að það gildi um alla sem hefur liðið vel í vinn­unni“.

Er gaman að vera sótt­varna­læknir? spurði frétta­maður Vísis.

„Já það er mjög gaman. Gaman að vinna við það fag sem maður hefur lagt fyrir sig og að vinna með svona frá­bæru fólki. Það eru for­rétt­indi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár