Þórólfur segir upp störfum

Sótt­varna­læknir hefur form­lega sagt upp störfum af per­sónu­legum og fag­legum ástæðum. Embætti land­læknis mun á næstu dögum aug­lýsa starfið.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Bára Huld Beck

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur form­lega sagt upp störfum frá og með 1. sept­em­ber næst­kom­andi.

Þetta kemur fram á vef emb­ættis land­læknis í dag.

Þar segir að ástæður upp­sagn­ar­innar séu bæði per­sónu­legar og fag­legar. „Nú er núver­andi bylgja COVID-19 að mestu yfir­staðin og nýr kafli að hefj­ast í starf­semi sótt­varna­læknis. Í þessum nýja kafla fel­ast meðal ann­ars upp­gjör á við­brögðum við COVID-far­aldr­inum með það fyrir augum að bæta við­brögð við far­öldrum fram­tíð­ar­innar og vinna við þau lög­boðnu verk­efni sem sótt­varna­lækni er ætlað að sinna en hafa að miklu leyti fallið niður á tímum COVID-19,“ segir á vef land­læknis.

Verður sjötugur á næsta ári

Þá kemur fram að þó að Ísland sé nú á góðum stað í COVID-far­aldr­inum þá sé honum hvergi lokið á heims­vísu og á meðan að svo er, þurfi að fylgj­ast náið með til­komu nýrra afbrigða veirunnar og hversu vel og lengi ónæmið sem ein­stak­lingar hafa náð mun vara. Að auki muni koma til lög­skip­aðra starfs­loka sótt­varna­læknis á næsta ári er hann verður sjö­tugur.

Embætti land­læknis mun á næstu dögum aug­lýsa starf sótt­varna­læknis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár