Þórólfur sá fyrir sér að „kerfið hér myndi allt leggjast í rúst“

Rykið sem nýja kór­ónu­veiran þyrl­aði upp gæti fljót­lega farið að setj­ast og eðli­legt líf að taka við á ný – hvað sem felst í því, segir sótt­varna­lækn­ir­inn sem leitt hefur okkur í gegnum fár­viðrið með öllum sínum óvæntu hviðum og hvellum.

Þegar blaða­maður Kjarnans hafði hug á að ræða við sótt­varna­lækni þann 8. jan­úar þurfti hann að fletta nafn­inu upp á vef Land­læknis. Þórólfur Guðnason. Alveg rétt! hugs­aði blaða­maður með sér, sendi honum tölvu­póst og bað um við­tal.

Tilefnið var frétt í banda­rískum fjöl­miðli nokkrum dögum fyrr þar sem full­yrt var að inflú­ensan væri sér­lega skæð þennan vet­ur­inn. Á upp­tök­unni af við­tal­inu má heyra að Þórólfur er hinn róleg­asti og fær sér kaffi­sopa annað slagið. Hann talar af mik­illi þekk­ingu og þylur upp far­alds­fræði­legar stað­reyndir: Kúrfa. Bóluefni. Veira sem smit­ast með úða. Snert­ismit. Hand­þvottur. Heims­far­ald­ur­inn 1918 og annar árið 2009. Und­ir­liggj­andi áhætta. Við­kvæmir hópar.

Allt mjög áhuga­vert. En hann segir fréttir af því að hin árlega inflú­ensa sé óvenju skæð orðum auknar. Eftir nokk­urra mín­útna spjall spyr blaða­maður hvort eitt­hvað annað sé að frétta úr hans ranni. „Inflú­ensan er það sem við erum með hug­ann við núna,“ segir Þórólfur. „En það er alltaf eitt­hvað að ger­ast í þessu.“

Er eitt­hvað nýtt og spenn­andi – innan gæsalappa?

„Tja, við erum ekki með neina nýja sjúk­dóma ...“

Kúrfa. Bóluefni. Veira sem smit­ast með úða.

Og svo fram­vegis.

Nú, 353 dögum eftir sam­talið í byrjun árs­ins, gætu eflaust flestir lands­menn tekið krossa­próf í far­alds­fræðum og stað­ist það með prýði. Blaða­mað­ur­inn sem staldr­aði ekki sér­stak­lega við orð sótt­varna­læknis um að „kúrfa“ til­fella af inflú­ensu virt­ist á upp­leið í jan­úar man þegar hann sá fyrstu skýr­ing­ar­mynd­irnar af því hvernig fletja þyrfti út kúrfu nokkrum vikum seinna til að varna því að heil­brigð­is­kerfið færi á hlið­ina.

Það kom nefni­lega nýr sjúk­dómur. Það varð nefni­lega heims­far­aldur. Og sá sem menntað hefur þjóð­ina í sýk­inga­vörnum og und­ir­stöðu­at­riðum far­alds­fræð­innar er Þórólfur Guðnason. Maðurinn sem hefur staðið í stafni aðgerða okkar gegn veirunni skæðu sem dúkk­aði upp í Kína í des­em­ber en greind­ist fyrst hér á landi 28. febr­úar. Enginn þarf lengur að hugsa sig um þegar spurt er um nafn sótt­varna­læknis á Íslandi.

En þrátt fyrir hið for­dæma­lausa ár með ótal upp­lýs­inga­fundum, við­tölum við fjöl­miðla, fjalli tölvu­pósta dag­lega, fjar­fundum með kol­legum um víða ver­öld, ítrek­uðum sam­tölum við ráða­menn og svo mætti nær enda­laust áfram telja, er Þórólfur hinn róleg­asti. Hann seg­ist engar and­vökunætur hafa átt í far­aldr­inum þó að hann við­ur­kenni að lítið hafi orðið um frí á árinu. „Þetta er vinna nán­ast allan sól­ar­hring­inn,“ segir hann rólynd­is­lega. Og aftur sýpur hann á kaffi­boll­anum í við­tali við blaða­mann Kjarnans og þylur upp stað­reyndir um far­sótt­ina sem fékk nafnið COVID-19 mörgum vikum eftir að sýk­ingin kom fyrst upp. Far­sótt­ina sem sett hefur mark sitt á öll sam­fé­lög heims­ins.

Þórólfur á fundinum á fyrstu dögum marsmánaðar þar sem greint var frá því að sett yrði á samkomubann, hið fyrsta í áratugi.
Þórólfur á fund­inum á fyrstu dögum mars­mán­aðar þar sem greint var frá því að sett yrði á sam­komu­bann, hið fyrsta í ára­tugi.

„Mig langar að hafa við­talið á per­sónu­legum nótum,“ segir blaða­maður við Þórólf sem er enn í sótt­kví er við­talið er tekið rétt fyrir jól. Smit kom upp á vinnu­staðnum og sjálfur sótt­varna­læknir lands­ins varð útsettur og þurfti í viku­langa sótt­kví. Hann hefur því þurft að bragða á eigin með­ölum – ef svo má að orði kom­ast – þó að hann hafi ekki þurft í ein­angrun eins og félagi hans úr þrí­eyk­inu, yfir­lög­reglu­þjónn­inn Víðir Reyn­is­son, sem fékk COVID-19 á dög­unum.

Það væri veru­lega orðum aukið, líkt og Þórólfur sagði um æsing­inn í flensu­frétt­inni í upp­hafi árs, að segja að væmni drjúpi af svörum hins rök­fasta vís­inda­manns við spurn­ingum um heims­far­ald­ursárið mikla, 2020. Þórólfur er líf­legur við­mæl­andi og rekur aldrei í vörð­urnar en hann er aug­ljós­lega síst upp­tek­inn af sjálfum sér og sínum til­finn­ingum eftir allt sem á undan er gengið.

Hvernig leið þér þegar að .... hvað fór í gegnum huga þinn á þeim tíma ... hvernig varð þér við er þú heyrðir fyrst af ....

Ef blaða­maður hélt að Þórólfur myndi lýsa hug­renn­ingum sínum á ýmsum tíma­punktum í far­aldr­inum með hádramat­ískum hætti skjátl­að­ist honum hrapa­lega. Sótt­varna­læknir heldur sig aðal­lega við tölur og stað­reyndir. Kemur þeim frá sér á manna­máli og af smit­andi áhuga og virð­ingu fyrir sínu fagi. Er fljótur til svars og slær annað slagið á létt­ari strengi líkt og hann er orð­inn lands­þekktur fyrir. (Hver man ekki eftir svari hans á einum upp­lýs­inga­funda síð­asta vetrar um að nú væri ekki rétti tím­inn til að fá sér tígris­dýr?)

Hann talar um veiruna eins og slóttugan and­stæð­ing sem þurfi að verj­ast með öllum til­tækum vopnum. Vopnin hafa slíp­ast til með hverjum deg­inum og eru öll úr smiðju vís­inda, þekk­ingar og reynsl­unnar. Með smá íblöndun af mála­miðl­unum og und­an­þágum. „Ég hef reynt að vera sam­kvæmur sjálfum mér,“ segir hann. „En ég hef líka skipt um skoðun í takti við nýjar upp­lýs­ingar um veiruna. Það er bara sjálf­sagt og eðli­legt þó að sumir hafi viljað nudda mér upp úr því.“

Þegar þú tókst við starfi sótt­varna­læknis árið 2015, hvarfl­aði það ein­hvern tím­ann að þér að þú myndir þurfa að leiða bar­áttu gegn heims­far­aldri nokkrum árum síðar?

Ég hef oft hugsað um að til þessa myndi koma. Ég byrj­aði að vinna hjá sótt­varna­lækni árið 2002 og fljót­lega fór af stað vinna við við­bragðs­á­ætl­ana­gerð. Þá vorum við að skoða vand­lega far­ald­ur­inn 1918. Og allar áætl­anir mið­uð­ust eig­in­lega við hann. Við héldum margar æfingar, bæði hér inn­an­lands en einnig með öðrum Evr­ópu­ríkjum og æfðum við­bragð við því ef drep­sóttir væru að ganga.

Þannig að ég var búinn að máta mig inn í þetta og reyna að sjá fyrir mér alls konar hluti. Raun­veru­leik­inn í þessum far­aldri hefur kannski ekki verið alveg eins og við héldum en þetta var engu að síður verð­mætur und­ir­bún­ingur.

Aldrei hægt að undirbúa sig fyllilega við farsótt

Ég tók við­tal við þig út af inflú­ens­unni 8. jan­úar – þá virt­ust engin merki um það sem átti eftir að ger­ast. Manstu þegar þú heyrðir fyrst af veiru­sýk­ingu í Kína?

Já, rétt fyrir síð­ustu ára­mót fóru að ber­ast fréttir af tor­kenni­legri lungna­bólgu þar í landi. Þær ágerð­ust svo þegar leið á jan­úar. Þetta var allt mjög óljóst í byrjun, talið að veiran hefði borist í menn úr dýrum en að hún smit­að­ist ekki manna á milli. En í byrjun árs sendi ég engu að síður póst á umdæmis- og svæð­is­lækna og alla smit­sjúk­dóma­lækna og benti þeim á upp­lýs­ing­arnar um þessa lungna­bólgu í Kína og bað þá að vera vak­andi fyrir þessu, sér­stak­lega hjá fólki sem væri nýkomið hingað til Íslands frá því landi. Þá var ekki ennþá búið að greina veiruna. Það var ekki vitað hvað væri að valda þess­ari lungna­bólgu.

Svo fóru upp­lýs­ing­arnar smám saman að hrann­ast inn og breyt­ast. Menn sáu allt í einu að sýk­ingin smit­að­ist auð­veld­lega manna á milli og þá varð málið alvar­legra. Við byrj­uðum að prófa hér inn­an­lands fyrir veirunni í febr­úar og öll voru sýnin nei­kvæð þangað til að eitt þeirra reynd­ist jákvætt 28. febr­úar. Þá fór nú bolt­inn að rúlla, heldur betur.

Við gátum brugð­ist hratt við af því að við höfðum lagt mikla vinnu í und­ir­bún­ing árin á undan. Það er aldrei hægt að und­ir­búa sig fylli­lega fyrir það sem svo ger­ist þegar far­sótt er ann­ars vegar. Við vorum snemma í start­hol­unum og komin í ákveðnar stell­ingar og hvöttum alla til að dusta rykið af við­bragðsá­á­ætlun um heims­far­aldur inflú­ensu sem var nýbúið að upp­færa. Það mik­il­væg­asta var að allir gátu mátað sig inn í þá áætlun, hvaða hlut­verk þeir hefðu, hverjar boð­leið­irnar væru, hverjir tækju ákvarð­anir og þar fram eftir göt­unum.

Frá blaðamannafundi 6. mars. Þarna var þríeykið, sem átti eftir að verða tíður gestur á sjónvarpsskjám landsmanna, mætt: Víðir, Þórólfur og Alma.
Frá blaða­manna­fundi 6. mars. Þarna var þrí­eykið, sem átti eftir að verða tíður gestur á sjón­varps­skjám lands­manna, mætt: Víðir, Þórólfur og Alma.

Ef þú lítur til baka til þessa tíma, hefðum við eða önnur ríki getað und­ir­búið okkur með öðrum og betri hætti?

Við­bragðið þarf alltaf að vera í sam­ræmi við hver sýk­ill­inn er. Hvernig hann smit­ast milli manna skiptir öllu máli, hver með­göngu­tím­inn er og hvernig hann hagar sér að öðru leyti. Þessar mik­il­vægu upp­lýs­ingar lágu ekki fyrir í fyrstu og þær sem bár­ust voru stundum mis­vísandi. Þannig að við þurftum að aðlaga okkur að þeim upp­lýs­ingum sem voru fyrir hendi á hverjum tíma. Og af því að sýklar eru alls konar gátum við ekki séð fyrir hvort að heil­brigð­is­kerfið myndi stand­ast álagið. Í þessu til­viki voru hvorki lyf né bólu­efni til staðar.

Þegar vitað var hvernig veiran smit­að­ist var nokkuð aug­ljóst í grund­vall­ar­at­riðum hvað þyrfti að gera til að forð­ast smit. En þá felst áskor­unin í því að fá fólk til að fara eftir leið­bein­ingum um per­sónu­bundnar sótt­varnir.

Það sem kom hins vegar á óvart var það að í und­ir­bún­ingnum hélt ég að þetta ástand myndi standa yfir í nokkrar vikur, færi svo kannski en kæmi upp aftur, en ég bjóst ekki við að þetta myndi standa svona rosa­lega lengi yfir og gat ekki ímyndað mér hversu lengi við þyrftum að vera með þessar sam­fé­lags­legu aðgerðir.

Það kom líka á óvart að á meðan það var eng­inn vandi að beita lok­unum og tak­mörk­unum var vanda­samt að aflétta þeim. Undir það vorum við ekki búin og við gátum ekki sótt okkur ráð­legg­ingar annað því það vissi eng­inn hvernig væri best að haga aflétt­ingum.

Þannig að við höfum þurft að læra þetta smám saman og stundum að beita hyggju­viti og til­finn­ingu.

Dæmigerð mynd af Þórólfi á upplýsingafundi að halda tölu um tölur dagsins og svara spurningum blaðamanna. Mynd: Almannavarnir
Dæmigerð mynd af Þórólfi á upp­lýs­inga­fundi að halda tölu um tölur dags­ins og svara spurn­ingum blaða­manna. Mynd: Almanna­varnir

Veiran kom fyrst upp í Kína og er senni­lega úr leð­ur­blöku eða belt­is­dýri. Hvað hefði þurft að gera til að fyr­ir­byggja útbreiðslu um allan heim? Hefði það yfir höfuð verið hægt?

Ég held að það hefði verið mjög erfitt að koma algjör­lega í veg fyrir hana. Veiran var greini­lega búin að dreifa sér víða um hér­aðið og Kína áður en menn vissu almenni­lega hvað þetta var. Og þegar vissan fékkst þá var það orðið alltof seint. Það hefur sýnt sig í þessum far­aldri að ekk­ert land getur lokað sig algjör­lega af. Sumar þjóðir hafa lokað nær alfarið landa­mær­unum en samt komst veiran inn.

Ég sagði strax í byrjun: „Heyrðu, ef við lokum þessu bless­aða landi okkar þá þurfum við að hafa það algjör­lega, 100 pró­sent, lokað í eitt eða tvö ár.“ Þá kemur það bara í ljós að nútíma sam­fé­lag virkar ekki með algjörri lokun. Það var annað sem kom mér á óvart, hvað við þurfum að leita mikið til útlanda um mjög marga hluti. Miklu fleiri hluti en liggja í augum uppi. Þannig að lokun okkar landamæra varð aldrei algjör. Og það hefði verið algjör­lega von­laust að gera það.

Þórólfur og Alma landlæknir á upplýsingafundi síðasta vor.
Þórólfur og Alma land­læknir á upp­lýs­inga­fundi síð­asta vor.

Þegar þú sett­ist niður til að skrifa fyrsta minn­is­blaðið um tak­mark­anir á sam­komum. Hvernig leið þér?

Ég man nú ekki sér­stak­lega hvað fór í gegnum huga mér þegar ég skrif­aði fyrsta minn­is­blaðið. Ég hef skrifað svo mörg!

Það var nokkuð ljóst í byrjun að smitin voru að koma hingað frá til­tölu­lega tak­mörk­uðu svæði, nánar til tekið skíða­svæðum í Ölpunum. Þá lá nátt­úr­lega bein­ast við að setja alla sem voru að koma þaðan í sótt­kví eða ein­angrun. Við hvöttum fólk einnig til að fara ekki á þessi svæði.

En auð­vitað var það svo mjög skrítið að þurfa að leggja það til við stjórn­völd að þau beittu tak­mörk­unum á ákveðna starf­semi og að fólk fengi ekki að gera þetta eða hitt. Það var mjög sér­kenni­legt.

Þegar við sáum að það dugði ekki til að hvetja fólk til per­sónu­legra sýk­inga­varna, að far­ald­ur­inn var samt að fara upp á við, þá þurftum við að beita sam­fé­lags­legum tak­mörk­unum. Að tak­marka sam­skipti fólks til að lág­marka smit­hættu. Þegar við beittum þessum hörðu aðgerðum þá sá ég strax að það virk­aði. Sumir vilja ganga lengra og loka öllu, aðrir vilja hafa sem mest opið. Sumir vilja svo sigla þarna á milli og reyna að beita mark­vissum aðgerðum sem skila árangri en eru ekki of íþyngj­andi. Og það hefur verið mitt leið­ar­ljós.

Mynd sem Hilmar Gunnarsson grafískur hönnuður gerði fyrir Kjarnann í júní þegar vika án nýrra smita náðist í fyrsta sinn í faraldrinum. Mynd: Hilmar Gunnarsson
Mynd sem Hilmar Gunn­ars­son graf­ískur hönn­uður gerði fyrir Kjarnann í júní þegar vika án nýrra smita náð­ist í fyrsta sinn í far­aldr­inum. Mynd: Hilmar Gunn­ars­son

Og fólk fylgdi þessum tak­mörk­unum mjög vel í fyrstu bylgj­unni. Óttaðist þú að almenn­ingur myndi ekki gera það?

Nei, ég ótt­að­ist það ekki í byrjun. Það var þannig and­rúms­loft í sam­fé­lag­inu. Fólk var hrætt enda vissi það ekki hvað við var að fást. Þess vegna fóru lang­flestir eftir þessu, héldu sig heima og það var lítil umferð á göt­unum.

Við fengum margt fólk smitað hingað til lands en veiran náði aldrei alveg að grafa um sig í sam­fé­lag­inu í fyrstu bylgj­unni. Við náðum far­aldr­inum alveg niður og menn fóru að slaka á og lifðu fínu lífi í sumar. En svo fóru menn kannski að slaka of mikið á.

Veiran kom svo aftur til lands­ins með fólki sem var að koma erlendis frá. Það var að ég tel óhjá­kvæmi­legt. Og þá fór hún að grafa um sig hér og þar og far­ald­ur­inn varð allt öðru­vísi, útbreidd­ari og óút­reikn­an­legri. Þess vegna var miklu erf­ið­ara að ná utan um þetta núna heldur en síð­asta vetur.

Græna afbrigðið svo­kall­aða komst inn í landið í sumar en við vitum ekki hvernig. Það komst inn áður en við fórum að beita skimunum á landa­mær­unum. Sá veiru­stofn náði að grafa um sig og var ansi erf­iður. En svo þegar við náðum tökum á honum kom þessi blái stofn sem við köllum. Við vitum að hann komst inn í landið með ferða­mönnum í ágúst. Og það er hann sem hefur verið að valda okkur þessum vand­ræðum síðan. Einn fjár­ans stofn.

Þórólfur og Víðir ræða málin fyrir upplýsingafund í haust. Mynd: Almannavarnir
Þórólfur og Víðir ræða málin fyrir upp­lýs­inga­fund í haust. Mynd: Almanna­varnir

Kúrfan var mjög brött framan af í fyrstu bylgj­unni. Hvernig var að fá töl­urnar yfir smit á hverjum morgni?

Maður hafði áhyggjur af því frá degi til dags þegar töl­urnar voru bara beint upp í loft. Þetta fór mjög hratt upp en svo mjög hratt niður líka og það er óvenju­legt. Það sem er að ger­ast núna er í raun miklu eðli­legra fyrir far­aldur – að hann fari hratt upp en sé lengi að ná sér niður aftur.

Er hægt að und­ir­búa sig fyrir það í þínu starfi að það verði dauðs­fall vegna far­sóttar? Hvernig varð þér við þegar fyrsta dauðs­fallið varð?

Við vissum að í Kína var dán­ar­tíðnin talin um tvö pró­sent í fyrstu. Það er hrika­lega há tala ef þú ert að tala um mikla útbreiðslu. Nokkur hund­ruð manns á Íslandi, jafn­vel nokkur þús­und. Alveg rosa­legt. Ég sá fyrir mér að kerfið hér myndi allt leggj­ast í rúst. Auðvitað hafði ég miklar áhyggjur af því hvernig þetta myndi enda. Svo fórum við að sjá þessi miklu veik­indi hjá sýktum, aðal­lega fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma en einnig hjá fólki á miðjum aldri og jafn­vel ungu fólki. Þannig að þetta var mikið áhyggju­efni á tíma­bili og því var auð­vitað gríð­ar­lega mik­il­vægt að ná tökum á smit­unum í sam­fé­lag­inu. Og það hefur verið meg­in­mark­miðið síðan.

Hóp­sýk­ingin á Landa­koti varð stóra verk­efnið í þriðju bylgj­unni. Hvernig varð þér við að heyra af henni og hefði ekki þurft að hólfa­skipta þessu gamla húsi meira?

Auðvitað vita allir hvernig staða Land­spít­al­ans hefur verið. Það er búið að vera að tala um það í fleiri ár að spít­al­inn yrði ekki í stakk búinn að eiga við heims­far­aldur. Til dæmis hvað varðar aðstöðu til að ein­angra sjúk­linga og annað slíkt.

En það var auð­vitað mjög slæmt að smit skyldi kom­ast þarna inn, akkúrat á þessa deild. Það var eins slæmt og hugs­ast gat. Það skýrir þessa slæmu útkomu úr þriðju bylgj­unni; sautján dauðs­föll á spít­al­anum.

Í stað­inn fyrir að skamm­ast út í núver­andi stjórn­endur þá þurfa menn að mínu mati að horfa á þetta í sam­hengi. Það er búið að benda á þessa hættu enda­laust og samt er það aðeins núna á allra síð­ustu árum sem menn tóku við sér og haf­ist var handa við bygg­ingu nýs sjúkra­húss.

Svo greind­ist hann Víðir félagi þinn í þrí­eyk­inu með COVID. Það hlýtur að hafa verið áfall fyrir ykkur.

Jú, það var það vissu­lega. En það sýndi að smit getur orðið nán­ast hvar sem er, líka hjá fólki sem er alltaf að passa sig. Ég hringdi nokkrum sinnum í hann á meðan hann var í ein­angr­un­inni og fylgd­ist með hvernig hann hefði það. Það var gott að heyra að hann væri að jafna sig og gott að sjá hann á síð­asta upp­lýs­inga­fund­inum fyrir jól.

Víðir fékk COVID-19 í nóvember. Hann kom aftur til starfa eftir einangrun og erfið veikindi nokkrum vikum síðar. Mynd: Almannavarnir
Víðir fékk COVID-19 í nóv­em­ber. Hann kom aftur til starfa eftir ein­angrun og erfið veik­indi nokkrum vikum síðar. Mynd: Almanna­varnir

Hefur þú ein­hvern tím­ann fundið fyrir þrýst­ingi af hálfu stjórn­valda eða ann­arra varð­andi þínar til­lögur? Hafa verið átök um ein­hverjar ákvarð­anir?

Nei, ég myndi ekki segja að til átaka hafi komið. Ég hef átt alveg ein­stak­lega gott sam­band við heil­brigð­is­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra og reyndar einnig aðra ráð­herra. Ég verð að hrósa Svandísi [Svav­ars­dóttur] sér­stak­lega fyrir ein­stak­lega gott sam­starf.

Auðvitað hefur ákveð­inn þrýst­ingur verið en ég hef samt ekki tekið því þannig heldur litið á þetta sem eðli­leg skoð­ana­skipti. Það er ekk­ert óeðli­legt við það að menn séu að verja sína hags­muni. Það eru aðrir aðilar í sam­fé­lag­inu en stjórn­völd sem hafa beitt miklu meiri þrýst­ingi. Þá er ég að tala um ákveðna starf­semi og fyr­ir­tæki. Það er eitt­hvað sem við sáum heldur ekki fyrir í við­bragðs­á­ætl­ana­gerð­inni. Þessi órói í sam­fé­lag­inu. Ég hélt að það væri nóg að segja: „Nú lokum við þarna, við verðum að gera það.“ Að allir myndu fara eftir því. En það er ekki þannig. Það vilja allir fá sína eigin for­skrift. Allir hópar vilja sínar leið­bein­ingar.

Ég held að almenn­ingur geri sér enga grein fyrir þeirri vinnu sem farið hefur í slík mál, til dæmis hjá starfs­fólki almanna­varna og hjá sótt­varna­lækni og land­lækni. Það hefur þurft að leggja dag við nótt allt árið við að útbúa leið­bein­ingar fyrir alls konar fyr­ir­tæki og starf­semi ein­stak­linga og svara fyr­ir­spurnum. Þetta hefur þurft að gera í hvert skipti sem er hert og í hvert skipti sem slakað hefur verið á.

Þið hljótið nú að hafa rang­hvolft ein­hvern tím­ann aug­unum yfir fyr­ir­spurnum og óskum um und­an­þágur...

Sumar þeirra hafa kannski hljó­mað nokkuð und­ar­lega í okkar eyrum en auð­vitað er fólk að spyrja í ein­lægni. Það vill vanda sig, er óör­uggt og þá sendir það póst. Frá upp­hafi opn­uðum við á þessi sam­skipti og reyndum að svara öllum. Þessar fyr­ir­spurnir voru upp undir þús­und suma dag­ana.

En við töldum nauð­syn­legt að fara þessa leið, að fólk gæti spurt okkur spurn­inga. Til að skapa ró og sam­vinnu í sam­fé­lag­inu frekar en að láta marga verða pirraða.

Á sumum upplýsingafundunum hefur andrúmsloftið verið léttara en á öðrum.
Á sumum upp­lýs­inga­fund­unum hefur and­rúms­loftið verið létt­ara en á öðrum.

Þegar þú lítur til baka er eitt­hvað sem þú sérð núna að hefði verið hægt að gera öðru­vísi í ykkar við­brögðum?

Ég er nú ekki mikið að velta mér upp úr því. Ég held samt sem áður, alla vega frá mínum bæj­ar­dyrum séð, þá hafi þær aðgerðir sem við gripum til skilað mjög góðum árangri heilt á litið. Sér­stak­lega ef við berum okkur saman við aðrar þjóðir, þá getum við verið stolt af því sem við gerðum.

Ég hef tekið saman upp­lýs­ingar til dæmis í tengslum við aflétt­ingar í þeim til­gangi að skoða hvort að það geti verið að farið hafi verið of bratt í þær. Var slakað of mikið á á ein­hverjum tíma­punkti sem orsak­aði það að far­ald­ur­inn fór aftur upp? Við þá skoðun kemur í ljós að það er nú ekki þannig. Það er aðeins í eitt skipti sem ég get séð að það hangi saman aflétt­ing og upp­sveifla kúrf­unnar og það var þegar við leyfðum sam­komur 200 manna og fórum niður í eins metra nálægða­regl­una í stað tveggja metra áður. Þetta var í byrjun sept­em­ber. Viku seinna fór far­ald­ur­inn aftur mjög bratt upp. Ég veit ekki hvort að þarna sé beint orsaka­sam­hengi en þetta eru einu tengslin sem ég sé.

Eiginlega alveg magnað

Hefur það komið þér á óvart hversu bók­staf­lega fólk hefur tekið orðum þínum?

Jú jú, það er dálítið merki­legt. Það er ótrú­legt hvað allir hafa fylgt því sem við höfum sett fram. Það er eig­in­lega alveg magnað. Ég hef reynt að vera sjálfum mér sam­kvæmur og ekk­ert að fara of mikið fram og til baka. En ég hef skipt um skoðun en það hefur byggt á rann­sóknum sem hafa sýnt að betra sé að gera hlut­ina svona en hinsegin. Þá verður maður að fara eftir því. Margir hafa verið að nudda mér upp úr því að ein­hvern tím­ann sagði ég að grímur skiptu senni­lega ekki miklu máli en svo komu nýjar nið­ur­stöður sem sýndu hið gagn­stæða og þá var ekk­ert annað en sjálf­sagt að skipta um skoðun. Ég hef verið óhræddur við það.

Eitt af því sem hefur verið fróð­legt að fylgj­ast með í far­aldr­inum er mann­legt eðli og hegðun. Bæði hvað fólk er fljótt til sam­vinnu og eins hvað margir eru fljótir til and­stöðu. Þetta hefur komið mér svo­lítið á óvart.

Þú sagðir í upp­hafi fyrstu bylgju, þegar sumir héldu því fram að bólu­efni yrði til­búið jafn­vel um haustið, að það kæmi í fyrsta lagi árið 2021. Þar virð­ist þú hafa verið sann­spár. En hefur hrað­inn á þróun þess komið þér á óvart?

Klárlega. Það getur tekið tíu ár í heild að fram­leiða eitt bólu­efni. Þegar menn voru að tala um hvenær bólu­efni gæti komið þá vissi eng­inn hvernig þessi mál myndu þró­ast. Þetta voru allt saman ágisk­anir.

Og þó að bólu­efnið sé nú að koma finnst mér margir vera óhóf­lega bjart­sýnir á að þetta muni ger­ast mjög hratt. En ég mun fagna ef ég hef rangt fyrir mér í því. Ég vil fara var­lega, vera raun­sær og stilla vænt­ingum í hóf og geta þá glaðst ef hlut­irnir ganga betur.

Þannig að þú sérð ekki nákvæm­lega fyrir þér tímara­mmann hvað hjarð­ó­næmi þjóð­ar­innar varðar?

Þegar við erum að tala um hjarð­ó­næmi erum við að tala um bólu­setn­ingu 60-70 pró­sent þjóð­ar­innar. En það er mjög mik­il­vægt að hafa það í huga að þó að við náum því þá eru ennþá um 30 pró­sent lands­manna sem geta tekið veik­ina. Þannig að við getum fengið eftir sem áður litlar hóp­sýk­ingar og jafn­vel alvar­leg til­felli þó að við fáum ekki útbreiddan far­aldur og þurfum því ekki að vera með eins miklar sam­fé­lags­legar tak­mark­anir.

Við náum kannski góðum árangri um leið og við höfum náð að bólu­setja við­kvæm­ustu hópana, eldra fólk og þá sem eru með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. Þá mun heim­ur­inn horfa allt öðru vísi við og við getum farið að slaka eitt­hvað á. Þetta er ástæðan fyrir því að við ætlum að bólu­setja áhættu­hópana fyrst.

Fordæmalaus og fyrirsjáanleiki eru orð ársins að mati Þórólfs. Effin tvö!
For­dæma­laus og fyr­ir­sjá­an­leiki eru orð árs­ins að mati Þórólfs. Effin tvö!

En hvað tekur svo við eftir að hjarð­ó­næmi næst? Þurfum við áfram að gæta okkar og gæti þurft að bólu­setja fólk reglu­lega fyrir COVID-19?

Við vitum ekki hversu lengi vörnin sem bólu­efnið veitir dugar. En við munum sjá það fljót­lega þegar við höfum náð útbreiddri bólu­setn­ingu hvað mun ger­ast með far­ald­ur­inn. Við eigum eftir að sjá annað slagið til­felli, jafn­vel alvar­leg, eins og við sjáum með marga aðra smit­sjúk­dóma. Þannig verður það með þessa kór­ónu­veiru eins og aðrar veirur.

Bólu­setn­ing mun smám saman færa okkur eðli­legt líf, hvað sem felst í því.

Þessi veira mun klár­lega fylgja mann­kyn­inu lengi. Reynslan af þessum far­aldri mun halda áfram að móta okkar líf, okkar lífs­við­horf og upp­bygg­ingu heil­brigð­is­kerf­is­ins. Það er enn mikið verk að vinna við að und­ir­búa okkur til fram­tíðar. Því að svona far­aldur kemur aftur.

Hvenær?

Það er góð spurn­ing. Við eigum alltaf von á heims­far­aldri inflú­ensu. Hann gæti komið þess vegna á næsta ári. En við vitum það ekki. Það sem við vitum er að það mun annar far­aldur koma aftur ein­hvern tím­ann.

Það verða þá ekki endi­lega hund­rað ár þar til svona alvar­legur far­aldur mun geisa aftur?

Nei, alls ekki. Annar far­aldur gæti komið aftur á okkar tíð.

Dreymir ekki COVID

Við verðum að ljúka við­tal­inu á aðeins létt­ari nótum. Ætlarðu ekki að hvíla þig vel um jólin? Hefurðu náð að hvíla þig eitt­hvað að ráði á þessu ári?

Nei, það er nú ekki mikið. Ég hef tví­vegis reynt að fara í frí, í eina viku í senn en ég var meira og minna í vinnu í sím­anum allan tím­ann. Annars er þetta bara vinna frá morgni til kvölds.

Hefurðu átt and­vökunætur?

Nei, það er nú það góða, ég hef alltaf sofið mjög vel. Og mig dreymir ekki COVID á nótt­unni.

Hvert finnst þér vera orð árs­ins?

Það eru tvö orð sem ég hafði notað lítið eða aldrei áður en hafa verið mikið notuð núna. Það eru „for­dæma­laus“ og „fyr­ir­sjá­an­leiki“. Effin tvö! Þetta eru orðin sem hafa komið skemmti­lega á óvart í þessum far­aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2020

Pistill

Sandra B. Franks

Far­ald­ur­inn yfir­skyggði allt

Á við­burða­ríku ári sem nú er liðið yfir­skyggði Covid-19 far­ald­ur­inn allt annað. Hann reyndi veru­lega á starfs­þrek heil­brigð­is­starfs­manna og ekki síst okkur sjúkra­liða. Mörg okkar voru í fram­lín­unni. Aðrir sjúkra­liðar stóðu vakt­ina í störfum sem ekki voru síður mik­il­væg. Ég er mjög stolt af því hve frá­bær­lega sjúkra­liða­stéttin hefur staðið sig í Covid far­aldr­inum. Hann hefur svo sann­ar­lega beint athygl­inni...

Mest lesið undanfarið ár