Yfir 70 þúsund skammtar af bóluefni fóru „einn, tveir og þrír“

Inflú­ensan er eins og lif­andi vera, algjört ólík­inda­tól, sem getur breytt sér á milli ára. Bóluefni gegn einni teg­und verndar ekki eða illa gegn annarri. „Þannig að þróun bólu­efnis er alltaf svo­lítið happa­drætti,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir.

Sérfræðingar Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar reyna á hverju ári að spá fyrir um hvaða tegund inflúensu er væntanleg.
Sér­fræð­ingar Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar reyna á hverju ári að spá fyrir um hvaða teg­und inflú­ensu er vænt­an­leg. Mynd: Unsplash

70-75 þús­und skammtar af bólu­efni gegn inflú­ensu voru fluttir til lands­ins í haust og voru ekki lengi að fara í sprautur og svo um æðar jafn­margra lands­manna. „Það fer allt einn, tveir og þrír,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. „Við hefðum örugg­lega getað notað fleiri skammta en við fengum bara ekki meira bólu­efni.“

Það sem af er vetri hafa læknar greint um 280 sjúk­linga með inflú­ensu­lík ein­kenni. Það er á pari við síð­ustu ár. Læknar senda svo sýni frá ein­staka sjúk­lingum til grein­ingar og hafa tæp­lega 90 til­felli inflú­ensu verið stað­fest.

Heilbrigðir taka bóluefni frá viðkvæmum

Að sögn Þórólfs lætur hærra hlut­fall fólks á Íslandi bólu­setja sig gegn flensu en gengur og ger­ist í mörgum öðrum löndum. Ekki hafi því allir fengið bólu­setn­ingu sem vildu. „En við erum ekk­ert að mæla með því að allir séu bólu­settir. Við mælum með því að þeir sem eru í áhættu­hópum og gætu farið illa út úr inflú­ens­unni láti bólu­setja sig. Við erum ekk­ert að hvetja til þess að heilu vinnu­stað­irnir geri það.“

En það er engu að síður þró­unin. Margir vinnu­staðir bjóða starfs­mönnum sínum slíkar bólu­setn­ingar á hverju ári. „Já, og þeir taka nú örugg­lega dágóðan hluta af þessum sjö­tíu þús­und skömmtum, þó að við vitum ekki nákvæm­lega hversu hátt hlut­fall það er.“

Margir heil­brigðir ein­stak­lingar láta bólu­setja sig og taka þar með jafn­vel bólu­efni frá hinum sem mest þurfa á því að halda. Þórólfur segir nú í skoðun hvernig tryggja megi að bólu­efnið fari til áhættu­hópanna. „Það er ekki alveg auð­velt en við erum að reyna að finna leiðir til þess.“

Getur valdið alvarlegum veikindum og dauða

Á hverju ári deyja sjúk­lingar hér á landi og um heim allan vegna inflú­ensunnar eða fylgi­kvilla hennar. Nokkuð margir hópar fólks eru við­kvæm­ari en aðrir fyrir að fá alvar­lega sýk­ingu. Land­læknir mælir með bólu­setn­ingu hjá öllum eldri en 60 ára og börnum og full­orðnum sem þjást af lang­vinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifr­ar­sjúk­dómum, syk­ur­sýki, ill­kynja sjúk­dómum og öðrum ónæm­is­bælandi veik­indum.

[box]

Þórólfur segir inflú­ens­una nú ekki ætla að verða alvar­legri eða haga sér með öðrum hætti en flensur síð­ustu ára. Það fer eftir því hvaða teg­und af henni er að ganga hversu alvar­legum veik­indum hún veldur. „Það eina sem við getum fylgst með til að meta hvort að hún er sér­lega alvar­leg eru inn­lagnir á Land­spít­al­ann. Það sem af er vetri eru töl­urnar ekk­ert mikið öðru­vísi en í fyrra. Þannig að það er ekki hægt að segja að flensan nú sé miklu skæð­ari en þá.“

En af hverju byrjar hún alltaf á svip­uðum tíma, fyrst hjá fáum ein­stak­lingum og svo af fullum krafti nokkrum vikum síðar?

Þróun bóluefnis happadrætti

„Ef ég vissi það fengi ég senni­lega Nóbelsprís­inn,“ segir Þórólfur. Vitað er hvernig flensan hagar sér yfir­leitt en ekki af hverju. „Þetta er einn af þessum leynd­ar­dómum veirunnar.“

Þróun bólu­efnis er því nokkuð happa­drætti. Sér­fræð­ingar Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar, WHO, hefj­ast handa í upp­hafi hvers árs við að reyna að spá fyrir um hvers konar inflú­ensa muni ganga á því næsta. Að því mati loknu gefa þeir fram­leið­endum bólu­efna fyr­ir­mæli um hvers konar bólu­efni skuli fram­leiða. „Stundum passar það og stundum ekki,“ segir Þórólfur um mat sér­fræð­ing­anna. „Hún breytir sér alltaf svo­lítið og maður veit aldrei fyr­ir­fram hvað hún muni gera.“

Enn er ekki ljóst hvort að bólu­efni þess­arar flensu­tíðar reyn­ist góð vörn. Það skýrist þegar lengra líður á far­ald­ur­inn og jafn­vel ekki fyrr en hann er geng­inn yfir. „Flensu­tíðin er rétt að byrja,“ segir Þórólfur. Að venju mun hún lík­leg­ast ekki ná hámarki fyrr en í átt­undu viku árs­ins eða í lok febr­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár