Júlíus Vífill veitti lögmanni meðmæli

Borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins skil­aði umsögn um mann­kosti lög­fræð­ings sem sótti um upp­reist æru árið 2008.

Júlíus Vífill Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem nú er í sigti hér­aðs­sak­sókn­ara vegna leyni­legrar pen­inga­eignar í gegnum skatta­skjóls­fé­lag á Panama og banka­reikn­ing í Sviss, skrif­aði með­mæli fyrir lög­mann sem dæmdur var í sex mán­aða fang­elsi fyrir skila­svik árið 2005.

Þetta kemur fram í gögnum dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins sem Stundin fékk afhent eftir að úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál komst að þeirri nið­ur­stöðu að almenn­ingur ætti rétt á upp­lýs­ing­unum, þvert á afstöðu dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins og meiri­hluta stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar.

Maðurinn sótti um upp­reist æru árið 2008, enda hugð­ist hann end­ur­heimta lög­manns­rétt­indin og hefja lög­manns­rekstur á nýjan leik. 

Fram kemur í umsögn Júlíusar að mað­ur­inn hafi gott lag á að nálg­ast skjól­stæð­inga sína af yfir­vegun, still­ingu og var­færni. Hann hafi reynst mörgum þeirra sem til hans leita „hjálp­ar­hella og stuðn­ingur á erf­iðum tímum“. Þeir Júlíus þekkj­ast bæði gegnum störf sín sem lög­reglu­menn og sem lög­menn.

Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, lagði til við for­seta Íslands að mað­ur­inn fengi upp­reist æru og varð Ólafur Ragnar Grímsson við beiðn­inni þann 21. októ­ber 2008 í sam­ræmi við lög og stjórn­sýslu­hefðir. Maðurinn starfar sem lög­maður í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár