Tæplega 2.500 gengu úr þjóðkirkjunni í fyrra

Innan við 70 pró­sent þjóð­ar­innar er skráð í þjóð­kirkj­una. Tæplega 100 þús­und manns standa utan hennar. Í fyrra skráðu 1.678 fleiri sig úr kirkj­unni en í hana.

Agnes Sigurðardóttir er biskup þjóðkirkju Íslands.
Agnes Sig­urð­ar­dóttir er biskup þjóð­kirkju Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls gengu 2.466 manns úr þjóð­kirkj­unni á árinu 2016 en 788 manns skráðu sig í hana. Því fækk­aði sam­tals um 1.678 í þjóð­kirkj­unni á árinu. Þetta kemur fram í tölum Þjóð­skrár Íslands um breyt­ingar á trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lags­að­ild á síð­asta ári.

Fækkun með­lima þjóð­kirkj­unnar í fyrra er umtals­vert meiri en með­al­tal áranna 2011-2014 var, en þá fækk­aði að með­al­tali 1.126 manns í þjóð­kirkj­unni á ári.

Árið 2015 sker sig hins vegar úr þar sem alls 4.805 fleiri sögðu sig úr kirkj­unni en í hana. Ýmsar ástæður voru fyrir því mikla brott­falli það árið, meðal ann­ars smölun trú­fé­lags Zúista á Íslandi á með­limum. Höf­uð­mark­mið þeirra er að hið opin­bera felli úr gildi öll lög sem veita trú- og líf­skoð­un­ar­fé­lögum for­rétt­indi eða fjár­styrki umfram önnur félög. Þá ætlar félagið að end­ur­greiða öllum skráðum með­limum árlegan styrk sem það fær frá rík­inu. Sú end­ur­greiðsla hefur enn ekki tek­ist þar sem beðið er úrskurðar frá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu við kæru fyrr­ver­andi for­svars­manna trú­fé­lags­ins um skipan nýrrar stjórnar. Samkvæmt upp­lýs­ingum á Facebook síðu Zúista munu end­ur­greiðslur hefj­ast strax og inn­an­rík­is­ráðu­neytið stað­festir skipan nýrrar stjórnar. Á síð­asta árs­fjórð­ungi árs­ins 2015, þegar ofan­greind vil­yrði um end­ur­greiðslu voru sett fram, skráðu um 3.200 manns sig í félag Zúista á Íslandi. Þar af komu um eitt þús­und úr þjóð­kirkj­unni.

Meðlimafjöldi kominn undir 70 prósent þjóðarinnar

Þegnum þjóð­kirkj­unnar hefur fækkað mjög hlut­falls­lega á und­an­förnum árum. Árið 1992 voru 92,2 pró­­sent lands­­manna skráðir í hana. Á árunum fyrir hrun fjölg­aði alltaf lít­il­lega í hópi þeirra sem skráðir voru í þjóð­kirkj­una á milli ára þótt þeim Íslend­ingum sem fylgdu rík­is­trúnni fækk­aði alltaf hlut­falls­lega. Ein ástæða þess er að skipu­lagið hér­lendis var lengi vel þannig að nýfædd börn voru ætið skráð í trú­­fé­lag móð­­ur. Það þurfti því sér­­stak­­lega að skrá sig úr trú­­fé­lagi í stað þess að skrá sig inn í það. Þessu hefur verið breytt.

Frá árinu 2009 hefur með­limum þjóð­kirkj­unnar fækkað á hverju ári. Þeir voru 236.260 í byrjun árs 2017. Í lok þriðja árs­fjórð­ungs 2016 voru Íslend­ingar sam­tals 337.610 tals­ins. Miðað við þá tölu eru 69,9 pró­sent mann­fjöld­ans skráðir í þjóð­kirkj­una. Það er í fyrsta sinn síðan að mæl­ingar hófust sem að fjöldi með­lima hennar fer undir 70 pró­sent mann­fjöld­ans.

Þeim íslensku rík­­is­­borg­­urum sem kusu að standa utan þjóð­­kirkj­unnar voru 30.700 um síð­­­ustu ald­­ar­­mót. Þeir eru nú nálægt eitt hund­rað þús­und.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár