Lið leyniþjónustunnar og lið alþýðunnar

Þýsku knatt­spyrnu­fé­lögin Dynamo Berlin og Union Berlin, eiga sér merka sögu, sem Flosi Þor­geirs­son, sagn­fræð­ingur og lista­maður, kynnti sér.

Jafnvel þeir sem engan áhuga hafa á knatt­spyrnu hefðu vart getað annað en hrif­ist af taum­lausri ástríðu áhan­genda Union Berlin þann 27. maí síð­ast­lið­inn. Þá mætti liðið Stutt­gart í seinni hluta umspils um hvort liðið myndi fara í efstu deild­ina eða falla í aðra deild. Stuðn­ings­menn Union Berlin sungu hástöfum allar níu­tíu mín­út­urnar meðan leik­ur­inn stóð yfir og hlupu svo grát­andi og hlæj­andi inn á völl­inn til að faðma hetjur sínar. Union Berlin, litla lið­inu frá aust­ur­hluta Berlínar, hafði tek­ist að leggja stór­veldið Stutt­gart og mun því leika í efstu deild á næsta vetri, í fyrsta sinn í sögu félags­ins. En hví er Union Berlin svona gíf­ur­lega vin­sælt lið í höf­uð­borg­inni? Margir telja að það sé í raun tölu­vert meiri stuðn­ingur við Union en liðið sem á í raun að vera „stóra“ liðið í Berlín en það er félag sem Íslend­ing­ur­inn Eyjólfur Sverr­is­son lék með lengi: Hertha Berlin.

Þeir sem þekkja lítið til knatt­spyrnu í Þýska­landi telja eflaust að eitt af stór­liðum Þýska­lands hljóti að koma frá höf­uð­borg­inni. Það virð­ist vera ein­kenn­andi að a.m.k eitt sterkt lið komi þaðan. PSG eru frá París, Chelsea, Totten­ham og Arsenal frá London, Roma og Lazio frá Róm, Real og Atlético frá Madrid. Þannig er það ekki í Þýska­landi. Hertha Berlin hefur á sér illt orð fyrir svindl, mútur, fjár­mála­mis­ferli og ofbeld­is­fulla áhan­gendur og hefur oftar en ekki verið aðhlát­ursefni þýskra knatt­spyrnu­unn­enda. Hertha er liðið sem reynir og reynir en tekst ekki neitt, þannig er ímynd „gömlu döm­unnar“ en það er gælu­heiti Hertha Berlin.

Í aust­ur­hluta Berlínar eru Union tölu­vert vin­sælli en Hertha. Union eru þó ekki eina liðið í Austur-Berlín og nú þurfum við að færa okkur til borg­ar­innar Dresden og sjö­unda ára­tug­ar­ins. Þá var Þýska­landi skipt í austur og vestur og höf­uð­borg­inni var einnig skipt þannig. Flestir ættu að hafa heyrt minnst á Berlín­ar­múr­inn sem klauf borg­ina í tvennt ára­tugum saman. Dynamo Dresden voru sig­ur­sælasta lið Austur-Þýska­lands en hinum komm­ún­ísku ráða­mönnum fannst rétt­ara að besta lið lands­ins kæmi frá höf­uð­borg­inni.

Yfir­mönnum Dynamo Dresden var til­kynnt að leik­menn þeirra yrðu færðir til Berlínar og myndu skipa þar nýtt lið. Ekki dugði að malda í móinn því sá sem stóð að baki þess­ari ákvörðun var maður að nafni Erich Mielke og nákvæm­lega eng­inn í Austur-Þýska­landi vildi kalla reiði hans yfir sig. Erich Mielke var nefni­lega yfir­maður örygg­is­lög­regl­unnar ill­ræmdu, STASI.

Berliner FC Dynamo var stofnað í árs­byrjun 1966 og heið­urs­for­seti félags­ins var eng­inn annar en sjálfur Erich Mielke. Union Berlin höfðu nú eign­ast afar öfl­ugan and­stæð­ing í höf­uð­borg­inni. Mielke gerði sér grein fyrir að knatt­spyrna höfð­aði til almúg­ans og taldi að það yrði jákvætt ef sig­ur­sælasta lið lands­ins hefði teng­ingu við þá stofnun sem stæði vörð um öryggi rík­is­ins. Engu var til sparað, Dynamo fékk bestu leik­menn­ina og bestu æfinga­að­stæður. Leikmenn áttu að vera alþýðu­hetjur og félagið skyldi bera hróður komm­ún­ism­ans út fyrir land­stein­ana.

Þetta þýddi að félagið mátti ekki tapa fyrir öðrum liðum í deild­inni. Dómarar þorðu ekki að dæma gegn lið­inu, þeim var ann­að­hvort mútað eða hótað. Leikmenn voru nær aldrei dæmdir rang­stæðir, leik­menn ann­arra liða gátu átt von á heim­sókn frá lög­regl­unni ef þeir tækluðu leik­menn Dynamo og ekk­ert lið í deild­inni fékk eins oft víti og auka­spyrnur dæmdar sér í vil. Efni­legir leik­menn ann­arra liða voru umsvifa­laust fluttir til Dynamo Berlin. Erich Mielke mætti á alla leiki og hélt veg­legar veislur til heið­urs leik­mönnum. Nið­ur­staðan varð sú að Dynamo Berlin varð lang­besta lið Austur-Þýska­lands og um leið hatað­asta lið lands­ins. Þeir voru STASI-liðið, lið leyni­þjón­ust­unnar sem fólk fyr­ir­leit og ótt­að­ist.

En hvaðan kom þá Union Berlin? Die Eisernen er gælu­heiti þeirra á þýsku og mætti kannski þýða sem „járn­karl­arnir“. Union Berlin er hrein­ræktað verka­manna­lið með teng­ingu við málm­iðn­að­inn. Í fyrstu léku þeir í bláum bún­ingum sem þóttu minna á sam­fest­inga þá sem málm­iðn­að­ar­menn klædd­ust. Auk þessa varð Union Berlin nú upp­á­halds­lið þeirra sem þoldu ekki STASI og komm­ún­ista­stjórn­ina. Að sama skapi var Dynamo Berlin lið þeirra sem studdu komm­ún­ismann og, oftar en ekki, þeirra sem höfðu það betur en almúg­inn í þessu alræð­is­ríki. Dynamo Berlin var upp­á­halds­lið ráða­manna og fjöl­skyldna þeirra. Oft varð heitt í kol­unum er þessi lið mætt­ust.

Það getur þó orðið bið á því að Union Berlin og BFC Dynamo mæt­ist því allt breytt­ist er Þýska­land sam­ein­að­ist. Erich Mielke var hand­tek­inn, varpað í fang­elsi og STASI heyrði sög­unni til. Góðir leik­menn frá Austur-Þýska­landi eins og t.d. Thomas Doll og Falko Götz gengu til liðs við félög í vestri. BFC Dynamo var skyndi­lega orðið smálið en þó ennþá hatað og fyr­ir­litið. Sam­ein­ingin var heldur ekki auð­veld fyrir Union Berlin, fjár­magn var af skornum skammti en það var þessi gíf­ur­legi stuðn­ingur og ást á lið­inu sem bjarg­aði þeim.

Árið 2004 rambaði liðið á barmi gjald­þrots. Aðdá­endur gripu þá til þess ráðs að gefa blóð en fyrir það fékkst smá fé. Þessi her­ferð var kölluð Bluten für Union, fólk gaf bók­staf­lega blóð sitt fyrir félagið. Þessi her­ferð vakti athygli og aðdáun og félag­inu tókst að forða sér frá gjald­þroti. Nokkrum árum seinna blasti við annað vanda­mál. Leik­vangur félags­ins og æfinga­svæðið þörfn­uð­ust end­ur­nýj­unar en fjár­magn vant­aði.

Aðdá­endur, margir þeirra tré - og húsa­smiðir, fjöl­menntu þá á svæðið þús­undum saman og tóku til við að smíða og byggja. Allir gáfu vinnu sína. Union Berlin er nú komið í deild með þeim bestu en BFC Dynamo kúldr­ast í neðri deildum og reynir að losna við sína svörtu for­tíð. Það hefur ekki gengið sem skyldi því þótt félagið sé ekki lengur tákn­mynd fyrir hið sós­íal­íska fyr­ir­mynd­ar­ríki þá hefur það nú laðað að sér nýnas­ista og annan óþjóða­lýð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár