Í þá tíð… Einangraði einræðisherrann

Enver Hoxha réði lögum og lofum í Albaníu, einu af fátæk­ustu og ein­angr­uð­ustu ríkjum heims á tímum Kalda stríðs­ins. Hann var ein­dreg­inn Stalínisti sem lenti síðar upp á kant við Sov­ét­ríkin og í raun öll önnur ríki.

Enver Hoxha í ræðustól með fána albanska kommúnistaflokksins í baksýn.
Enver Hoxha í ræðu­stól með fána albanska komm­ún­ista­flokks­ins í bak­sýn.

Eftir seinni heims­styrj­öld­ina var ljóst að Evrópa yrði aldrei söm. Skýr skil voru dregin milli áhrifa­svæða Vest­ur­veld­anna og Sov­ét­ríkj­anna, sem Winston Churchill líkti við Járn­tjald sem dregið hafði verið í gegnum álf­una endi­langa „frá Stettin (Szczecin) við Eystra­salt niður að Trieste við Adríahaf“.

Í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu, sem voru í raun lepp­ríki Sov­ét­ríkj­anna, komust til valda karlar (og bara karlar) sem sóttu umboð sitt oftar en ekki til Moskvu og Stalíns ekki síður en til almenn­ings eða flokksapparata í eigin landi.

Einn slíkur var Enver Hoxha (lesið Hodsja), sem stýrði Albaníu með harðri hendi um fjög­urra ára­tuga skeið.

Hoxha fædd­ist árið 1908 í ætt land­eig­enda sem voru íslams­trúar, í suð­ur­hluta Albaníu, sem þá til­heyrði Ottómana­veld­inu (hlekkur). Faðir hans var vefn­að­ar­vöru­kaup­maður sem ferð­að­ist víða um heim, en menn­ing­ar­heim­ur­inn sem Ever hinn ungi fædd­ist inní var afar karllægur og byggð­ist á óskrif­uðum reglum, Kanun, þar sem blóð­hefndir, Gjak­mar­rja, voru meðal ann­ars ríkur hluti af dag­legu lífi. Segja margir að það hafi haft var­an­leg áhrif á per­sónu­gerð Hoxha.

Þegar hann var 22ja ára gam­all, árið 1930, fékk hann styrk til að halda til nátt­úru­vís­inda­náms við háskól­ann í Mont­pellier í Frakk­landi. Þar komst Hoxha í kynni við starf franska komm­ún­ista­flokks­ins og lét námið reka á reið­anum, enda hafði hann engan áhuga á nátt­úru­fræði. Svo fór að hann var sviptur náms­styrknum en hann flutti sig svo yfir til Parísar þar sem hann ætl­aði að nema heim­speki við Sorbonne-háskóla, en heykt­ist líka á því og fór að skrifa fyrir L‘Humanité, rit Kommústista­flokks­ins. Hann skrif­aði pistla undir dul­nefni, meðal ann­ars um mál­efni heima­lands síns í pistlum, þar sem Zog I Alban­íu­kon­ungur (sem var eig­in­lega leppur Mús­sól­ínís ein­ræð­is­herra Ítalíu) var meðal þeirra sem fengu reglu­lega að heyra það.

Á árunum 1934-36 var Hoxha rit­ari á albönsku ræð­is­manns­skrif­stof­unni í Brussel en var rek­inn úr starfi eftir að upp komst að hann var enn að lesa Marxísk fræði. Hann sneri því aftur heim þar sem hann fór að kenna í skóla, en var líka virkur í starfi komm­ún­ista­flokks­ins. Ítalía gerði inn­rás í Albaníu í upp­hafi stríðs, árið 1939, og eftir að Hoxha hafði neitað að ganga í Fas­ista­flokk­inn var hann rek­inn úr starfi.

Hoxha tók virkan þátt í and­spyrnu­hreyf­ing­unni gegn fas­istum og þýskum nas­istum. Þar tóku komm­ún­istar saman höndum við and-komm­ún­ista í þeim sam­eig­in­lega til­gangi að frelsa land sitt.

Meðal ann­ars unnu Albanir með skæru­liðum Títós (hlekkur) í Júgóslavíu, en vin­slit urðu vegna deilna um Kosovohérað.

Árið 1944 tók And-fasíska frels­is­hreyf­ing Albaníu við stjórn­ar­taumum í land­inu undir for­ystu Hoxhas, sem var for­sæt­is­ráð­herra, aðal­rit­ari Verka­manna­flokks­ins og alls­herj­ar­leið­togi Albaníu allt til dauða­dags. Mánuði síðar, hinn 29. nóv­em­ber var Albanía opin­ber­lega orðin frjáls undan oki fas­isma (þrátt fyrir að ann­ars konar ok hafi þó beðið almenn­ings).

Hallað sér að Stalín og Sovétríkjunum

Eftir stríð lýsti Hoxha yfir miklum stuðn­ingi við Jósef Stalín og tók að breyta þjóð­fé­lags­gerð Albaníu í takt við Marx-Lenín­isma, þar sem jarðir stór­land­eig­enda voru þjóð­nýttar og afhentar smá­bændum í samyrkju­búum. Talsvert átak var unnið í mennt­unar- og heil­brigð­is­málum og blóð­hefndir voru bann­aðar með lögum.

Á þessum fyrstu árum nýrrar heims­skip­anar trosn­uðu enn frekar böndin milli Albaníu og Júgóslavíu, Hoxha hafði rök­studdan grun um að Tító vildi gjarna inn­lima Albaníu, og það olli mik­illi spennu innan komm­ún­ista­flokks­ins þar sem margir voru hallir undir nán­ari sam­vinnu við Tító. Það kall­aði á fyrstu hreins­anir Hoxhas. Í kjöl­far þess að sam­bandi við Júgóslavíu var slitið árið 1948 var helsti tals­maður tengsla Albaníu við Tító, Koçi Xoxe, rek­inn úr flokknum og síðar hengdur.

Eftir það voru Albanir nær alfarið komnir upp á náð Sov­ét­ríkj­anna hvað varðar fjár­hags­að­stoð til nauð­syn­legra umbóta á innviðum lands­ins. Náið per­sónu­legt sam­band var milli Stalíns og Hoxhas og frá­fall Sov­ét­leið­tog­ans árið 1953 var mikið áfall fyrir albanska komm­ún­ista. Hoxha lýsti yfir 14 daga þjóð­ar­sorg fyrir Stalín, „hinn ást­kæra föður og frels­ara“ sem var lengri tími en í Sov­ét­ríkj­unum sjálfum.

Valda­taka Níkíta Krúsjeffs, arf­taka Stalíns, mark­aði tals­verða stefnu­breyt­ingu í sam­skiptum Albaníu og Sov­ét­ríkj­anna. Dregið var úr fjár­stuðn­ingi og hvatt til þess að Albanía myndi taka þátt í sér­hæf­ing­ar­væð­ingu Krúsjeffs, þar sem ein­blínt yrði á ákveðna teg­und fram­leiðslu í hverju landi á kostnað fjöl­breytni og sjálf­bærni sem Hoxha hafði stefnt að.

Enn harðn­aði í ári eftir að Krúsjeff for­dæmdi í frægri leyniræðu (hlekkur) hina gegnd­ar­lausu per­sónu­dýrkun sem Stalín hafði ræktað á sínum tíma, auk þess sem hann fór að vinna að bættum sam­skiptum Sov­ét­ríkj­anna við Júgóslavíu. Auk þess var stefnu­breyt­ing Krúsjeffs í átt að „frið­sam­legri sam­búð“ stór­veld­anna, í ætt við villu­trú að mati Hoxha, sem vitn­aði í Lenín sem lagði áherslu á alþjóða­hyggju öreig­anna, en ekki frið­sama sam­búð. Eftir þetta gerð­ist Hoxha sífellt gagn­rýnni á það sem hann taldi end­ur­skoð­un­ar­stefnu á – og afslátt af – kenn­ingum Karls Marx.

Þó að staða Hoxhas innan Albaníu væri sterk, var þó farið að örla á áhyggjum af meintum lýð­ræð­is­skorti í starf­semi komm­ún­ista­flokks­ins og auk­inni for­ingja­dýrkun i anda Stalíns heit­ins.

Árið 1961 slitn­aði end­an­lega upp úr nánu sam­starfi Albaníu og Sov­ét­ríkj­anna. Hoxha for­dæmdi Sov­ét­ríkin og Krúsjeff sjálfan í ræðu í nóv­em­ber­mán­uði. Þar sagði hann Stalín hafa verið síð­asta alvöru leið­toga Sov­ét­ríkj­anna. Fjórum dögum síðar höfðu öll Austur-Evr­ópu­ríkin slitið tengsl við Albaníu og rík­inu var útskúfað úr Var­sjár­banda­lag­inu.

Eftir það hall­aði Hoxha sér að Kína að miklu leyti, en upp úr því slitn­aði líka eftir að Kína bauð Richard Nixon Banda­ríkja­for­seta í opin­bera heim­sókn árið 1971. Svo­leiðis kap­ít­alista­daður þóttu ekki merki­legar tví­bökur í bókum Hoxhas og eftir margra ára kergju hætti Kína öllum stuðn­ingi við Albaníu árið 1978.

Einangrun og ofsóknir

Ein­angr­unin var orðin nær alger, en Hoxha hafði nokkrum árum áður bannað erlendar lán­tökur og erlenda fjár­fest­ingu í Albaníu. Gríð­ar­lega mikið var lagt upp úr land­vörnum og á annað hund­rað þús­und varð­turnum var komið fyrir við landa­mærin.

Hoxha hafði líka hert tökin inn­an­lands þar sem hann réði lögum og lofum. Almenn­ingur bjó undir sífelldri ógn af örygg­is­lög­regl­unni Sigurimi, sem hand­tók þús­undir borg­ara á valda­tíð Hoxhas og beitti pynt­ingum óspart. Margir hurfu og áttu aldrei aft­ur­kvæmt.

Hoxha var að sögn afar klókur stjórn­mála­maður sem gat bæði verið stima­mjúkur og við­kunn­an­legur, en líka ósveigj­an­legur, þrjóskur og ósvíf­inn. Hann pass­aði líka uppá að losa sig reglu­lega við þá und­ir­menn sína sem honum þótti vera að færa sig upp á skaftið.

Hann var víð­les­inn mennta­maður, en ekki ryk­fall­inn kerfiskall eins og svo margir kalda­stríðs­leið­togar. Hann klæddi sig líka glæsi­lega, sem gæti hafa treyst ímynd hans í huga almenn­ings að mati rit­höf­und­ar­ins Ismails Kadare.

„Hann klædd­ist fínum fötum og var fág­aður í fram­komu … Allir aðrir komm­ún­ista­leið­togar voru svo óhefl­aðir, meira að segja þeir frönsku. Fyrir albanskan almenn­ing, sem hefur alla tíð verið nokkuð veikur fyrir elítum, var það nokkuð mik­il­vægt.“

Þegar komið var fram á níunda ára­tug­inn lagð­ist Hoxha í enn eina hreins­un­ina. Árið 1981 lést for­sæt­is­ráð­herr­ann Mehmet Shehu, sem hafði verið hægri hönd Hoxhas í 40 ár. Opinbera skýr­ingin var að Shehu hafði verið föð­ur­lands­svik­ari sem hafi svipt sig lífi, en stöð­ugur orðrómur hefur verið uppi um að Hoxha hafi látið ráða hann af dögum.

Þarna var tals­vert dregið af Hoxha sjálfum sem hafði glímt við margs konar sjúk­dóma, meðal ann­ars syk­ur­sýki, en árið 1985 lést hann, 76 ára gam­all, af völdum hjarta­bil­unar.

Eft­ir­maður hans var Ramiz Alia sem hafði í raun haldið um stjórn­ar­taumana um nokkra hríð í veik­indum Hoxhas.

Hoxha var einn þaul­setn­asti leið­togi Kalda stríðs­ins og hlaut senni­lega skárri örlög en margir kollegar hans í komm­ún­ista­flokkum Aust­an­tjalds­land­anna. Hægt er að þakka honum ákveðna fram­þróun Albaníu fyrstu árin, en um langa, langa hríð ein­kennd­ist þjóð- og efna­hags­líf lands­ins af ofríki, ofsóknum, mann­rétt­inda­brotum, stöðnun og fátækt. Eftir að járn­tjaldið féll hafa eft­ir­mæli hans þó verið svipuð og ann­arra ein­ræð­is­herra af sama meiði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár