Spurði hvort Svandís ætlaði að brjóta upp forréttindakerfið í sjávarútvegi

Þing­maður Við­reisnar rifj­aði upp fimm ára gamla ræðu sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra þar sem hún sagði engan vera sáttan við fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið nema þeir sem hagn­ast veru­lega á því og þeir sem hafi „gert sér far um að verja þau for­rétt­indi“.

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar.
Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, spurði Svandísi Svav­ars­dóttur, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum í dag hvort hún ætl­aði að nota nýfengið ráð­herra­emb­ætti til að brjóta upp for­rétt­inda­kerfið í sjáv­ar­út­vegi sem sam­starfs­flokkar hennar í rík­is­stjórn stæðu vörð um. Hann spurði ráð­herr­ann einnig hvort gjald­taka vegna veiða yrði aukin og hvort upp­boð á kvóta yrði hluti af bland­aðri lausn.

Svandís svar­aði því til að í stjórn­ar­sátt­mál­anum væri henni falið að leggja und­ir­stöðu að nýrri nefnd til að fjalla um þessi mál. Í stjórn­ar­sátt­mál­unum segir að sú nefnd eigi að „kort­leggja áskor­anir og tæki­færi í sjáv­ar­út­vegi og tengdum greinum og meta þjóð­hags­legan ávinn­ing fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­is­ins. Nefnd­inni verður einnig falið að bera saman stöð­una hér og erlendis og leggja fram til­lögur til að hámarka mögu­leika Íslend­inga til frek­ari árang­urs og sam­fé­lags­legrar sáttar um umgjörð grein­ar­inn­ar.“

Þá á nefndin að fjalla um hvernig hægt sé að auka gagn­sæi í rekstri fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi og þá sér­stak­lega meðal stærstu fyr­ir­tækja lands­ins.

Engin sáttur við kerfið nema þeir sem hagnist verulega á því

Í umræðum um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra í síð­ustu viku rifj­aði Sigmar upp ræðu sem Svandís flutti fyrir rúmum fimm árum í þing­inu. Þá ræðu rifj­aði hann aftur upp í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum í dag, en í henni sagði núver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra meðal ann­ars: „Í sam­fé­lag­inu er við­var­andi og afar djúp­stætt ósætti um núver­andi fisk­veiði­stjórn­ar­kerfi. Auð­lindin sem sann­ar­lega er þjóð­ar­innar, við skiljum það öll svo, skilar ein­fald­lega ekki nægum verð­mætum í sam­eig­in­lega sjóði og örfáar fjöl­skyldur hafa efn­ast gríð­ar­lega um mjög langt skeið. Í raun má segja að eng­inn sé sáttur við kerfið eins og það er nema þeir sem hagn­ast veru­lega á því og svo þeir stjórn­mála­flokkar sem hafa gert sér far um að verja þau for­rétt­indi, núver­andi stjórn­ar­flokkar.“

Hægt er að sjá ræðu Svan­dísar frá 25. ágúst 2016 hér að neðan:

Þeir flokkar sem fóru með stjórn lands­ins á þessum tíma, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur, eru í dag sam­starfs­flokkar Vinstri grænna í rík­is­stjórn. Sigmar spurði Svandísi hvort slá mætti því föstu að hún myndi standa við orð sín um að for­rétt­inda­kerfið sem sam­starfs­flokkar hennar í rík­is­stjórn stæðu vörð um yrði brotið upp, aukin gjald­taka heim­iluð og að upp­boð á kvóta yrði hluti af bland­aðri lausn?

Svandís svar­aði því til að leið­ar­ljós allra þing­manna í umfjöllun um mik­il­væg grund­vall­ar­kerfi á borð við fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið hlýti alltaf að vera almanna­hagur. „Það hlýtur alltaf að vera hagur sam­fé­lags­ins alls, en ekki fárra. Hlýtur alltaf að vera hagur líf­rík­is­ins alls, en ekki ágengar nýt­ingar. Síðan er það svo að í stjórn­ar­sátt­mál­anum er mér falið að leggja und­ir­stöðu að nýrri nefnd.“

„Já, ég mun stofna nefnd, var svarið“

Sigmar svar­aði því til að ræðan sem Svandís hefði haldið fyrir fimm árum hefði verið „snöggt um betri en þessi sem var haldin hér og nú.“ Hann hefði spurt hvort til stæði að standa við orð sín. „Já, ég mun stofna nefnd, var svarið. Það að stofna nefnd um það mikla ósætti sem hefur klofið þjóð­ina í gegnum tíð­ina í ára­tugi er ekki stefna. Við þekkjum vand­ann. Hann er sá að þjóð­inni mis­býður hvers konar gjald er tekið fyrir aðgang að auð­lind­inni.“

[links]Þing­mað­ur­inn ítrek­aði því fyr­ir­spurn sína og spurði ráð­herr­ann hvort til greina kæmi að brjóta upp fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið, setja öfl­ugt auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá þar sem tíma­bind­ing samn­inga væri útgangs­punkt­ur­inn og „leið­rétta þetta órétt­læti og auka sátt­ina þannig að við getum farið að snúa okkur að öðrum og upp­byggi­legri verk­efnum heldur en að vera alltaf að hnakk­ríf­ast um kerfi sem ætti þó öllum jafna að vera tals­vert meiri sátt um

Svandís svar­aði öðru sinni og sagði verk­efni nefnd­ar­innar sem hún myndi skipa vera að fjalla um hvernig Ísland geti náð meiri árangri í fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu og hvernig hægt er að auka gagn­sæi í rekstri fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi og sér­stak­lega meðal stærstu fyr­ir­tækja lands­ins. „Það er stór­mál og það mál er mál sem varðar þessa sátt í sam­fé­lag­inu. [...] Já ég er þeirrar skoð­unar að það sé afar mik­il­vægt og löngu tíma­bært að gera þær end­ur­bætur á stjórn­ar­skrá sem að lúta að öfl­ugu auð­linda­á­kvæði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár