„Sérstaða Íslands“

Frá því að Eiður Guðnason, þáverandi umhverfis­ráðherra, skrifaði undir fyrsta alþjóð­lega loftslags­samninginn hefur Íslands ítrekað reynt að undanþágur frá alþjóð­legum skuld­bindingum vegna „sérstöðu sinnar“. Það kemur hvað best fram í viðræðum Íslands varðandi Kyotó-bókunina þar sem við beinlínis báðum um að fá að menga meira en aðrir vegna þess hve sérstök við vorum.

Ríó 92'
Ríó 92' Hópurinn í Ríó. Frá vinstri: Tómas Tómasson, Jón Gunnar Ottóson, Eiður Guðnason, Árni Mathiesen, Guð­mundur Eiríks­son, Magnús Jóhann­es­son, Kristín Ein­ars­dóttur, Gunnar Schram, Hjör­leifur Gutt­orms­son,Tom Mark Ringset og Vigdís Finn­boga­dóttir. Mynd: Úr einkasafni

Hvar er best að byrja þegar segja á sögu Íslands í loftslags­málum í alþjóð­legu samhengi? Samhengið, stóra myndin, veltur nefnilega kannski á því hvar sagan byrjar, eða veltur á þeirri ákvörðun hvar best sé að byrja söguna. 

Þessi saga byrjar á Svía. Svíinn sem um ræðir heitir Svante Arrhenius og fær að marka upphaf þessarar sögu fyrir þær sakir að árið 1896 birtist eftir hann vísinda­grein þar sem fram kom að styrkur koldíoxíðs í andrúms­loftinu gæti haft áhrif á hitastig jarðar. Svíinn Svante sagði að áhrif koldíoxíðs í andrúms­loftinu gæti bæði haft áhrif til hlýnunar og kólnunar og tók nú reyndar fram í því samhengi að ef það hefði þau áhrif að það myndi hlýna kæmi það sér einkar vel fyrir lönd í Skandinavíu þar sem alla jafna væri svolítið svalt. En nóg um það. Svante benti einnig á í grein sinni að ástæða þess að styrkur koldíoxíðs í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár