Mamma grætur á hverjum degi

Mæðginin Júlía og Daníl frá Karkív í Úkraínu voru í skoð­un­ar­ferð um Varsjá á laug­ar­dag. Þau hafa verið tæpar tvær vikur á flótta undan sprengjum Pútíns og stefna á að kom­ast til Kanada með vor­inu. Eig­in­maður Júlíu og faðir Daníls varð eftir í Karkív.

Mæðginin Júlía og Daníl frá Karkív voru í skoðunarferð um Varsjá, borgina sem verður tímabundið heimili þeirra, síðasta laugardag.
Mæðginin Júlía og Daníl frá Karkív voru í skoð­un­ar­ferð um Varsjá, borg­ina sem verður tíma­bundið heim­ili þeirra, síð­asta laug­ar­dag. Mynd: Arnar Þór Ingólfsson

Á meðal þeirra fjöl­mörgu sem stóðu á torgi við kast­al­ann í gamla bænum í Varsjá á laug­ar­dag og biðu þess að útsend­ing frá ávarpi Joe Bidens Banda­ríkja­for­seta hæf­ist þar á risa­skjá, voru mæðginin Júlía og Daníl. Þau eru nýlega komin til Varsjár eftir að hafa flúið heima­borg sína Karkív í Úkraínu.

Þau voru í skoð­un­ar­ferð um borg­ina og að velta því fyrir sér hvenær þetta ávarp banda­ríska for­set­ans ætti eig­in­lega að hefj­ast. Blaða­maður Kjarnans gat ekki svarað því, þegar Júlía spurði. Það var fremur kalt og ung­lings­pilt­ur­inn sagð­ist á báðum áttum með hvort það væri þess virði að húka á torg­inu og bíða eftir ræðu for­set­ans, sem enn átti eftir að láta bíða eftir sér í rúma tvo tíma til við­bótar.

Heima­borg þeirra hefur orðið illa úti í árásum Rússa og sum hverfi hennar eru nú alveg mann­laus og stór­skemmd. „Þar sem við bjuggum heyrðum við í sprengj­unum og sáum þær. Í her­bergi sonar míns brotn­aði glugg­inn,“ segir Júlía.

„Heima hjá mömmu rigndi sprengjum niður. Það lentu þrjár á hús­inu hennar. Húsið var rýmt og hún flutt út fyrir borg­ina í skjól. Hún grætur á hverjum degi. Ég tala við hana á hverjum degi,“ bætir Júlía við.

Búa inni á fjögurra manna fjölskyldu fram á sumar

Hún og Daníl flúðu Karkív akandi alla leið til borg­ar­innar Lviv í vest­ur­hluta Úkraínu. Ferðin þangað er rúmir þús­und kíló­metrar og sótt­ist þeim hægt, tók fjóra daga allt í allt. Í Lviv voru mæðginin í sex daga og sett­ust síðan upp í rútu sem flutti þau beint til Varsjár, þar sem þau fengu inni á heim­ili sjálf­boða­liða sem hjálp­uðu þeim við kom­una til borg­ar­innar.

„Við vitum ekki hvað við verðum hérna lengi, sjálf­boða­lið­arnir sögðu að við mættum vera hérna fram á sumar. Við búum inni á þeim og þau eiga tvö börn. Fjöl­skyldan er mjög góð og indæl,“ segir Júlía, en hér í Varsjá segja heima­menn að það þekki allir ein­hverja eru að hýsa úkra­ínska flótta­menn á heim­ili sínu um þessar mundir.

[adspot]

Júlía þekkir fólk í Kanada og þangað hyggj­ast þau reyna að fara. Þau eru þegar búin að sækja um vega­bréfs­á­ritun og bíða þess að fá að heyra eitt­hvað meira. Vonast til þess að kom­ast þangað með vor­inu.

Eig­in­maður Júlíu og faðir Daníl varð eftir í Karkív, en þar starfar hann sem lög­reglu­maður.

„Svo hann er þar. Ég elska hann, hann elskar mig,“ segir Júlía, brosir og þagnar.

Síðan bölvar hún Vladimír Pútín og kallar hann öllum illum nöfnum á móð­ur­máli þeirra beggja, rúss­nesku.

Vill að vestrið loki himninum

Júlía fékk, rétt eins og blaða­maður Kjarnans, óvænt miða inn í kast­a­la­garð­inn í Varsjá til þess að sjá ávarp Bidens berum augum. Daníl fór heim, ekki til­bú­inn að bíða lengur í kuld­anum eftir banda­ríska for­set­anum.

Hún hnippti í blaða­mann inni í kast­a­la­garð­inum og var þá komin með pólska og banda­ríska pappa­fána í hönd, en starfs­menn Hvíta húss­ins gengu um með þá í stórum búntum og dreifðu til við­staddra.

Hún fylgd­ist með ræðu Banda­ríkja­for­seta, þar sem hann meðal ann­ars ítrek­aði sam­stöðu Banda­ríkj­anna með Úkra­ínu­mönnum, og ræddi svo stutt­lega við blaða­mann að ræð­unni lok­inni.

„Ég skildi ekki alveg allt sem hann sagði en ég heyrði hann ekki segja neitt um að loka himn­in­um,“ sagði Júl­ía, með tárin í aug­un­um, en Úkra­ínu­menn hafa kallað ákaft eftir því að Banda­ríkin og önnur ríki Atl­ants­hafs­banda­lags­ins verji úkra­ínskar borgir, eins og Karkív, fyrir loft­árásum Rússa með því að koma á flug­banni yfir land­inu eða með því að láta af hendi mun öfl­ug­ari loft­varna­búnað en úkra­ínski her­afl­inn hefur yfir að ráða í dag.

Flugbann hafa vest­rænir leið­togar þó úti­lokað með öllu, enda felst í því skuld­bind­ing um að skjóta niður rúss­neskar flug­vélar yfir Úkra­ínu, sem myndi án efa hleypa enn auk­inni spennu í átökin við kjarn­orku­veldi Pútins, með ófyr­ir­sjá­an­legum afleið­ingum.

Í hugum Júlíu og ann­arra þeirra sem eiga ást­vini í borg­unum þar sem sprengj­urnar hafa verið að falla og halda áfram að falla er óskin um flug­bann og betri loft­varnir þó ofar­lega í hug­anum.

„Ef ég væri Joe Biden myndi ég segja: Úkra­ínu­menn, ég mun loka himn­inum,“ segir Júlía.

Ákall um að loka himn­inum var einnig áber­andi á mót­mælum sem haldin voru í Varsjá síð­asta föstu­dag, um sama leyti og Biden Banda­ríkja­for­seti kom til borg­ar­innar. Þúsundir söfn­uð­ust saman í mið­borg­inni Úkraínu til stuðn­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flóttamannamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár