Til hvers eru skáld?

Þorvaldur Gylfason ræðir við Kristján Hreinsson.

Við sitjum hér í sumar­blíðu við sunnan­vert Gardavatn í Lang­barðalandi á Norður-Ítalíu, við skáldið og heim­spekingurinn sem reif sig upp úr Skerja­firðinum og fluttist til Mílanó í miðju heimsins. Við erum hér ásamt fríðu föruneyti á tónleika­ferð með Ítölsku söngva­bókina okkar hringinn í kringum vatnið fagra og spjöllum um heima og geima og þó mest um Kristján sjálfan, nema hvað. Hann er þaul­reyndur skemmtikraftur. Sjálfur hef ég hvergi troðið upp sem slíkur nema einu sinni í Jökulfjörðunum. 

Þorvaldur Gylfason: Segðu mér, Kristján, til hvers eru skáld?

Kristján Hreinsson: Skáldum er ætlað að rétta gang mann­lífsins, benda á víti til að varast. Eitt sinn var sagt um ungan mann sem bjó ekki svo langt frá æsku­stöðvum mínum: Hann er svo mikill ónytjungur að hann verður annaðhvort skáld eða prestur.

Þorvaldur: Æsku­stöðvunum segirðu. Ertu að tala um Ísafjörð?

Kristján: Nei, Kópavog. En ég ákvað að gerast Ísfirðingur. Held …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár