Lang flestir viðmælendur telja einelti viðgangast á vettvangi borgarráðs

Í nið­ur­stöðum úttektar á starfs­um­hverfi í borg­ar­ráði segir m.a.: „Það hlýtur að skapa mikið varn­ar­leysi hjá starfs­mönnum Reykja­vík­ur­borgar að upp­lifa að hægt sé að nið­ur­lægja ein­stak­linga með nafni í fjöl­miðlum og geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér.“

Samskiptavandi þeirra Vigdísar Hauksdóttur borgarfulltrúa Miðflokksins og Helgu Bjargar Ragnarsdóttur, skrifstofustjóra á skrifstofu borgarstjóra var kveikjan að úttektinni.
Sam­skipta­vandi þeirra Vigdísar Hauks­dóttur borg­ar­full­trúa Mið­flokks­ins og Helgu Bjargar Ragn­ars­dóttur, skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu borg­ar­stjóra var kveikjan að úttekt­inni. Mynd: Bára Huld Beck

Erfið sam­skipti á vett­vangi borg­ar­ráðs hafa gengið mjög nærri starfs­mönnum Reykja­vík­ur­borgar og kjörnum full­trúum, margir starfs­menn borg­ar­innar hafa upp­lifað mik­inn kvíða vegna þessa á kjör­tíma­bil­inu og ekki hefur tek­ist að tryggja „sál­fé­lags­legt öryggi starfs­manna á þessum vett­vangi“.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í kynn­ingu á nið­ur­stöðum á sál­fé­lags­legu áhættu­mati og mati á starfs­um­hverfi starfs­fólks sem starfar á vett­vangi borg­ar­ráðs sem fór fram á fundi borg­ar­ráðs í gær.

Þar segir enn fremur að lang flestir við­mæl­endur telji að ein­elti hafi við­geng­ist á vett­vangi borg­ar­ráðs. „Alvar­leg­ast í þessu er að starfs­menn eru lok­aðir inni í aðstæðum sem þeir hafa enga mögu­leika á að koma sér út úr nema með breyt­ingu á verk­lagi/skipu­riti og verður það til þess að varn­ar­leysi þeirra er algjört í þessum aðstæðum.“

[adspot]Sér­stak­lega er tekið fram í kynn­ing­unni að ekki sé hægt að ganga út frá því að nið­ur­stöð­urnar end­ur­spegli sýn allra kjör­inna full­trúa í borg­ar­ráði Reykja­vík­ur­borgar þar sem nokkrir kjörnir full­trúar þáðu ekki boð um við­tal.

„Hægt sé að niðurlægja einstaklinga með nafni í fjölmiðlum“

Greint var frá því í ágúst í fyrra að sál­fræði­stofan Líf og sál hefði verið fengin til að gera úttekt á starfs­um­hverfi í borg­ar­ráði. Það gerð­ist í kjöl­far þess að mikið hafði verið fjallað um sam­skipta­vanda þeirra Vigdísar Hauks­dóttur borg­ar­full­trúa Mið­flokks­ins og Helgu Bjargar Ragn­ars­dóttur, skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu borg­ar­stjóra. Helga Björg greindi frá því í gær á Facebook að hún hefði ósk­að eft­ir til­færslu í starfi vegna árása Vig­dís­ar í sinn garð. Með­al ann­ars hafi hún orð­ið fyr­ir hót­un­um um of­beldi.

Í kynn­ing­unni sem borg­ar­ráð fékk í gær kom fram, til við­bótar við áður­greint, að and­rúms­loftið og hegð­unin sem verið hafi skaðað mál­efna­lega og frjóa umræðu á vett­vangi borg­ar­ráðs. „Það hlýtur að skapa mikið varn­ar­leysi hjá starfs­mönnum Reykja­vík­ur­borgar að upp­lifa að hægt sé að nið­ur­lægja ein­stak­linga með nafni í fjöl­miðlum og geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Hér þarf að gera mikla brag­ar­bót og er það í verka­hring æðstu stjórn­enda borg­ar­innar að skapa skjól og öryggi fyrir sína starfs­menn, svo þeir geti ótta­laust sinnt sínum skyldum.“

Í nið­ur­stöð­unum segir að finna þurfi leiðir til að setja skýr mörk og skapa sál­fé­lags­legt öryggi fyrir starfs­menn. „Það þarf að vera mjög skýrt að það er ekki í verka­hring stjórn­mála­manna að skipta sér af starfs­manna­málum Reykja­vík­ur­borgar né fag­legum verk­ferlum og vinnu­brögðum.[...]Þar með er auð­vitað ekki sagt að ekki þurfi að taka á fag­legum mis­tökum, leið­beina og gera athuga­semdir ef þarf.“

„Kjörnir fulltrúar virðast geta komist upp með að skeyta ekki um siðareglur“

Úttektin komst að því að við­mið hefðu breyst hvað varðar virð­ingu og sam­hygð í sam­skiptum á vett­vangi borg­ar­ráðs og fólk almennt kippi sér minna upp við fram­komu og athuga­semdir sem séu út fyrir mörkin. „Nei­kvæðir siðir og venjur hafa mikil áhrif á and­lega líðan, eykur kvíða og brýtur niður sjálfs­traust.“

[adspot]Skil­greina þurfi enn betur skýran ramma og skerpa á verk­ferlum varð­andi sam­skipti og sam­starf kjör­inna full­trúa og starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar. Skoða þurfi hvernig önnur sveit­ar­fé­lög haldi á þessum málum, bæði hér­lendis og erlendis og nýta sér þá vinnu sem þar hefur farið fram. „Þó að nokkur vinna hafi verið unnin þarf að halda áfram að skerpa á þeim mörkum sem þurfa að vera og mæta með skýrum hætti nið­ur­lægj­andi fram­komu og árás­ar­girni í garð starfs­manna[...]Kjörnir full­trúar virð­ast geta kom­ist upp með að skeyta ekki um siða­reglur og ramma á þessum vett­vangi. Meðan svo er verður slík vinna mátt­laus og mark­lítil.[...]Leita þarf leiða til að mæta brotum á siða­reglum og brotum á lögum um holl­ustu­hætti á vinnu­stað með skýrum og afger­andi hætti, svo bæði starfs­fólk og kjörnir full­trúar geti upp­lifað sál­rænt öryggi í sínum störfum á vett­vangi borg­ar­ráðs. Sér­stak­lega á þetta við um starfs­menn Reykja­vík­ur­borgar.“

„Leiða verði leitað til að stöðva neikvæða og niðurlægjandi framkomu“

Í kynn­ing­unni er greint frá því sem við­mæl­endur úttekt­ar­að­ila teldu raun­hæfar lausnir. Á meðal þeirra eru að setja upp leið­bein­andi reglur um mörk og sam­skipti milli stjórn­mála­manna og starfs­manna, að mannauðs­svið fái að vita þegar starfs­fólk þarf á stuðn­ingi að halda til að geta stutt og leið­beint og að sviðin kynni sig betur fyrir kjörnum full­trúum í byrjun kjör­tíma­bils til að auð­velda sam­vinnu og sam­starf. Þá megi veita borg­ar­full­trúum meiri stuðn­ing fyrsta árið á kjör­tíma­bil­inu og gefa betri tíma til und­ir­bún­ings fyrir fundi, að hægt verði að senda inn form­legar fyr­ir­spurnir fyrir fundi og að sett verði mun skýr­ari mörk ef umræða fer úr böndum.

Úttekt­ar­að­il­arnir setja einnig fram til­lögur. Þær helstu eru að við­mæl­endum verði kynntar nið­ur­stöður úttekt­ar­innar og að skip­aður verði starfs­hópur sem skoði vand­lega þá ferla og leiðir sem séu færar til að tryggja sál­rænt öryggi starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar sem starfa á vett­vangi borg­ar­ráðs. Í þeim hópi eigi sæti kjörnir full­trúar og starfs­menn Reykja­vík­ur­borgar. Þá leggja úttekt­ar­að­il­arnir til að kann­aðar verði leiðir til að styðja við þá starfs­menn sem eigi um sárt að binda vegna óvið­un­andi fram­komu í þeirra garð und­an­farin ár. „Skil­greindir verði rammar og eðli hlut­verka sem starfs­menn gegna ann­ars vegar og kjörnir full­trúar hins vegar og skerpa á verk­ferlum varð­andi sam­skipti og sam­starf kjör­inna full­trúa og starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar. Skoða þarf hvernig önnur sveit­ar­fé­lög halda á þessum málum, bæði hér­lendis og erlendis og nýta sér þá vinnu sem þar hefur farið fram. Einnig þarf að leita í smiðju starfs­manna og óska eftir hug­myndum til við­bótar þeim sem hér koma fram. [...]Úttekt­ar­að­ilar leggja til að allra leiða verði leitað til að stöðva nei­kvæða og nið­ur­lægj­andi fram­komu á vett­vangi borg­ar­ráðs – sér­stak­lega þegar hún bein­ist að starfs­mönnum og emb­ætt­is­mönnum borg­ar­innar.“

Segja Vigdísi snúa öllu á haus

Viðbrögð borg­ar­full­trúa við kynn­ing­unni voru mjög mis­mun­andi. Mest afger­andi voru bók­anir Vigdísar Hauks­dóttur, áheyrna­full­trúa Mið­flokks­ins í borg­ar­ráði. Í fyrri bókun hennar gerði hún aðal­lega athuga­semd við að Helga Björg hefði tjáð sig um úttekt­ina í gær, áður en trún­aði hefði verið aflétt af nið­ur­stöðum hennar. „Þetta eru óboð­leg vinnu­brögð. Í borg­ar­ráði sitja 10 kjörnir full­trúar og því er haldið fram að kynn­ingin sé óper­sónu­grein­an­leg. Það varpar ljósi á þá alvar­legu stöðu að enn er óút­kljáð kvört­un­ar­mál vegna þessa máls hjá Per­sónu­vernd og svo mikið lá á að koma þessu máli á fram­færi að meiri­hlut­inn gaf sér ekki tíma til að bíða eftir úrskurði stofn­un­ar­innar eða eins og segir: „Ákveðið að kynna nú, þó að Per­sónu­vernd hafi ekki úrskurðað vegna kvört­unar sem barst vegna athug­unar.“ Með þessu hunsar Reykja­vík­ur­borg enn á ný eft­ir­lits­stofn­anir rík­is­ins.“

[links]Þessu höfn­uðu full­trúa meiri­hlut­ans í borg­ar­ráði og sögðu í eigin bókun að það væri „kol­rangt“ að emb­ætt­is­maður hefði rofið trúnað. Síðan er vitnað í stöðu­upp­færslu Helgu Bjargar á Facebook í gær þar sem hún sagði meðal ann­ars að hún von­aði „svo sann­ar­lega að kjörnir full­trúar taki nið­ur­stöður þeirrar úttektar alvar­lega og ráð­ist í nauð­syn­legar og löngu tíma­bærar úrbætur til að tryggja heil­næmt og öruggt starfs­um­hverfi fyrir okkur öll.“ Meiri­hlut­inn taldi að Vigdís hefði valið að „snúa öllu á haus þrátt fyrir að vera leið­réttur um það sem er satt og rétt.“

Í gagn­bókun Vigdísar sagði að það hefði komið fram í kynn­ingu að emb­ætt­is­menn væru búnir að fá kynn­ingu á nið­ur­stöðum könn­unar á sál­fræði­legu mat á starfs­um­hverfi borg­ar­ráðs en ekki þeir borg­ar­full­trúar sem tóku þátt. „Ekki er gætt að jafn­ræði í þeim efnum þar sem úttektin sneri að kjörnum full­trúum. Í öllu þessu máli er leik­ur­inn afar ójafn. Má segja að þeir 10 borg­ar­full­trúar sem sitja í borg­ar­ráði hafi ekki getað borið hönd fyrir höfuð sér. Þessi leikur er og verður alltaf ójafn og minnt er á að mikil ein­elt­is­menn­ing hefur ríkt í Ráð­hús­inu allt frá árinu 2010 og spannar því þrjú kjör­tíma­bil. Sá slæmi andi sem ein­kennt hefur störf borg­ar­ráðs og borg­ar­stjórnar kom ekki í Ráðhúsið með þeim aðilum sem sitja í minni­hluta nú. Um það vitna m.a. upp­tökur frá fundi borg­ar­stjórnar frá lokum síð­asta kjör­tíma­bils þegar einn frá­far­andi borg­ar­full­trúi sá sig knú­inn til að upp­lýsa um ein­elt­is­menn­ingu meiri­hlut­ans. Einnig er minnt á ummæli ann­ars kjör­ins fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa frá kjör­tíma­bil­inu 2010-2014 þar sem hann kom fram og greindi frá sjálfs­vígs­hug­myndum sínum vegna grófs ein­eltis frá meiri­hlut­anum. Er ekki komið mál að linni fyrir borg­ar­stjóra og meiri­hlut­ann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár