Vigdís: Óeðlilegt að borgarritari sitji fund

Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, sagði á fundi borg­ar­ráðs í gær að það væri óeðli­legt að Stefán Eiríks­son borg­ar­rit­ari sæti fund með kjörnum full­trúum sem hann hafi gagn­rýnt opin­ber­lega.

Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins.
Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, lét færa til bókar á borg­ar­ráðs­fundi í gær að það væri óeðli­legt að Stefán Eiríks­son borg­ar­rit­ari sæti fund með kjörnum full­trúum sem hann hafi gagn­rýnt „harð­lega“ opin­ber­lega. Sagði hún alla full­trúa minni­hlut­ans liggja undir grun vegna ásak­ana hans í garð kjör­inna full­trúa, auk þess sem hann hefði opin­ber­lega lýst því yfir að hann sæk­ist ekki eftir að njóta trausts þeirra. Vigdís sagði þessa stöðu því óásætt­an­lega.

Borg­ar­full­trúar meiri­hlut­ans lögðu þá einnig fram bókun á fund­inum þar sem fram kom að borg­ar­rit­ari sé æðsti emb­ætt­is­maður borg­ar­innar að borg­ar­stjóra und­an­skildum og því eigi hann að sjálf­sögðu sæti á fundum borg­ar­ráðs. Í bókun meiri­hlut­ans segir jafn­framt að það sé dap­ur­legt að nær­vera starfs­fólks borg­ar­innar á fundum borg­ar­ráðs skuli mis­bjóða borg­ar­full­trúa Mið­flokks­ins.

Fáeinir borgarfulltrúar vænt starfsfólk borgarinnar um óheiðarleika

Stefán Eiríks­son borg­ar­rit­ari skrif­aði stöðu­upp­færslu í lok­aðan Facebook-hóp starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar þann 21. febr­úar síð­ast­lið­inn þar sem hann sagði fáeina borg­ar­full­trúa ítrekað hafa vænt starfs­fólk borg­ar­innar um óheið­ar­leika og vegið með ýmsum öðrum hætti að starfs­heiðri þeirra, bæði beint og óbeint. Sagði hann þessa hegðun, atferli og fram­komu vera til skammar og um leið til mik­ils tjóns fyrir Reykja­vík­ur­borg, starfs­fólk hennar og íbúa alla. Stefán nefnir hins vegar engan borg­ar­full­trúa í færslu sinni.

Vigdís Hauks­dóttir skrif­aði einnig Facebook-færslu eftir að fjallað hafði verið um færslu Stefáns í fjöl­miðlum en þar segir hún að Stefán verði að rök­styðja þær ásak­anir sem settar væru fram í færslu hans. Í bókun hennar á fundi borg­ar­ráðs í gær gagn­rýndi hún sér­stak­lega að Stefán hefði ekki enn séð sér fært að koma á fund for­sætis­nefndar þar sem óskað var eftir því sér­stak­lega að hann kæmi og gerði grein fyrir máli sínu.

Á sér ekki fordæmi í sögu borgarinnar

[links]Borg­ar­ráðs­full­trúar meiri­hlut­ans lögðu einnig fram bókun á fund­inum þar sem fram kemur að borg­ar­rit­ari sé æðsti emb­ætt­is­maður borg­ar­innar að borg­ar­stjóra und­an­skildum, og eigi hann því að sjálf­sögðu sæti á fundum borg­ar­ráð. Það sé í sam­ræmi við verk­lags­reglur um fundi ráðs­ins þar sem segir að skrif­stofu­stjóri borg­ar­stjórnar, borg­ar­lög­maður og borg­ar­rit­ari sitji fundi ráðs­ins. „Tilefni þess að borg­ar­rit­ari skrif­aði starfs­fólki borg­ar­innar er hegðun, atferli og fram­koma kjör­inna full­trúa. Nú þegar hafa tveir starfs­menn borg­ar­innar hrökkl­ast úr starfi vegna slæms starfs­um­hverfis og hegð­unar kjör­inna full­trúa auk þess sem full­trúar um 70 manns hafa leitað til mannauðs­þjón­ustu borg­ar­innar vegna meið­andi og sær­andi ummæla, orð­ræðu og fram­komu kjör­inna full­trúa, “ segir í bókun meiri­hlut­ans.

Enn fremur segir í bók­un­inni að það að full­trúar 70 starfs­manna sjái ástæðu til að koma á fram­færi kvört­unum vegna hegð­unar kjör­inna full­trúa eigi sér ekki for­dæmi í sögu borg­ar­innar. Jafn­framt hafi þol­in­mæði starfs­manna gagn­vart ummælum kjör­inna full­trúa verið mikil og því hafi borg­ar­rit­ari metið það nauð­syn­legt að stíga fram fyrir hönd starfs­fólks borg­ar­innar og segja að nú sé komið nóg. „Þetta gerði hann vegna þess að starfs­fólk og emb­ætt­is­menn borg­ar­innar geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér þegar kjörnir full­trúar ganga fram með slíkum hætti. Það er dap­ur­legt að nær­vera starfs­fólks borg­ar­innar á fundum borg­ar­ráðs skuli mis­bjóða borg­ar­full­trúa Mið­flokks­ins,“ segir enn fremur í bókun borg­a­ráðs­full­trúa.

Þá er tekið fram í bók­un­inni að borg­ar­rit­ari kom ekki á fund for­sætis­nefndar þar sem for­seti borg­ar­stjórnar ákvað í sam­ráði við full­trú­ann sem hafði óskað eftir umræð­unni að bíða með málið á þeim vett­vangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár