Kvika sá um erlenda greiðslumiðlun fyrir sparisjóðina en sagði nýlega upp samstarfinu

Spari­sjóð­ur­inn hættir að taka á móti og senda erlendar greiðslur fyrir hönd við­skipta­vina sinna en ástæðan er sú að þjón­ustu­að­ili þeirra, Kvika banki, sagði upp sam­starf­inu og ekki hefur fund­ist önnur lausn. Kvika segir þetta ekki tengj­ast gráum lista.

Spari­sjóð­ur­inn hættir að þjón­usta við­skipta­vini sína með erlendar milli­færslur í des­em­ber næst­kom­andi. Kvika banki hefur hingað til séð um erlenda greiðslu­miðlun fyrir spari­sjóð­ina en sagði nýlega upp sam­starf­inu vegna kröfu mót­að­ila bank­ans erlendis. Spari­sjóð­ur­inn leitar nú að nýrri lang­tíma­lausn.

[links]Þetta stað­festir Árni Björns­son, fram­kvæmda­stjóri Sambands íslenskra spari­sjóða, í sam­tali við Kjarnann. Hann segir að leitað hafi verið ann­arra skamm­tíma­lausna eftir að þjón­ustu­að­ili þeirra, Kvika banki, sagði upp sam­starf­inu en því miður hafi það ekki gengið eftir.

Við­skipta­vinir spari­sjóð­anna munu því í byrjun des­em­ber ekki geta sent greiðslur úr landi og um miðjan des­em­ber ekki tekið á móti erlendum greiðslum. Árni segir að Spari­sjóð­ur­inn leiti nú að öðrum lang­tíma­leiðum. Hann ítrekar þó að þetta hafi ekki áhrif á notkun greiðslu­korta sjóð­anna, hvorki inn­an­lands né erlendis.

Alls starfa fjórir spari­sjóðir undir merkjum Spari­sjóðs­ins hér á landi. Spari­sjóður Aust­ur­lands, Spari­sjóður S-Þing­ey­inga, Spari­sjóður Stranda­manna og Spari­sjóður Höfð­hverf­inga.

Segir þetta ekki tengjast veru Íslands á gráum lista

Magnús Ingi Ein­ars­son, fram­kvæmda­stjóri banka­sviðs innan Kviku banka, segir í sam­tali við Kjarnann að bank­inn hafi þurft að segja upp sam­starf­inu við spari­sjóð­ina vegna breytts fyr­ir­komu­lags evru-greiðslna í Evrópu eða svo­kall­aðra SEPA-greiðslna. Undir því fyr­ir­komu­lagi sé ekki heim­ilt að fram­kvæma greiðslur fyrir óbeinan aðila.

Magnús Ingi segir að fram að þessu hafi Kvika fengið und­an­þágu hjá þeim erlenda banka sem þeir eru í sam­starfi við fyrir þjón­ustu sína við spari­sjóð­ina en nú sé komið að þeim tíma­punkti að það ekki sé lengur hægt. Hann segir að reynt hafi verið að finna aðra lausn á þessu en að það hafi ekki gengið eftir og því miður hafi þetta verið nið­ur­staðan.

Jafn­framt segir Magnús Ingi að spari­sjóð­irnir séu einu aðil­arnir, sem Kvika banki þjón­ustar, sem þessi breyt­ing muni bitna á. Aðspurður segir hann að þetta teng­ist ekki veru Íslands á gráum lista FATF eða nýrra reglu­gerða vegna pen­inga­þvættis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bankamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár