Sparisjóðirnir hætta að geta framkvæmt erlendar millifærslur

Vera Íslands á gráum lista FATF, vegna ónægra varna gegn pen­inga­þvætti, dregur dilk á eftir sér.

Spari­sjóð­irnir munu ekki geta þjón­u­stað við­skipta­vini sína með erlendar milli­færslur á næst­unni og hefur við­skipta­vinum sem þurfa að nýta sér slíka þjón­ustu bent á að gera við­eig­andi ráð­staf­anir hjá öðru fjár­mála­fyr­ir­tæki. 

Sam­starfs­að­ili spari­sjóð­anna getur ekki lengur veitt þessa þjón­ustu vegna krafna frá erlendum sam­starfs­að­ila hans.

Ástæðan fyrir þessu eru auknar kröfur erlendra fyr­ir­tækja, í tengslum við varnir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Eins og fram hefur komið - og Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um - þá er Ísland á gráum lista FATF vegna ónægra varna gegn pen­inga­þvætti.

Íslenskir bankar hafa jafn­framt ekki treyst sér til að veita spari­sjóðnum þessa þjón­ustu vegna krafna sinna sam­starfs­að­ila erlendis. „Spari­sjóð­ur­inn hefur ekki verið beinn aðili að erlendri greiðslu­miðlun og treyst á sam­starf inn­lendra aðila í þeim efnum,“ segir í til­kynn­ingu sem birt hefur verið á vef spari­sjóða.

Erlendir sam­starfs­að­ilar íslensku bank­anna hafa nú úti­lokað slíkt sam­starf vegna auk­inna krafna í tengslum við reglur um varnir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Vonast er til þess að þetta verði tíma­bundið ástand og að spari­sjóð­irnir geti aftur veitt ofan­greinda þjón­ustu áður en langt um líður.

Ekki verður hægt að milli­færa fjár­muni eða greiða til erlendra aðila eftir 6. des­em­ber á þessu ári, og þá verður ekki hægt að mót­taka greiðslur erlendis frá eftir 13. des­em­ber, þar sem spari­sjóð­irnir eiga í hlut.

Það sama gildir um milli­færslur á erlendum gjald­miðli milli banka inn­an­lands þar sem þær greiðslur fara í gegnum erlenda greiðslu­miðlun.

Þessi þjón­ustu­skerð­ing hefur ekki áhrif á aðra þjón­ustu spari­sjóð­anna og verður t.d. áfram hægt að kaupa erlendan gjald­eyri, stofna gjald­eyr­is­reikn­inga og fram­kvæma inn­lendar og erlendar greiðslur með greiðslu­kortum.

Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um ónægar varnir í íslensku fjár­mála­kerfi þegar kemur að pen­inga­þvætti.

Í apríl 2018 skil­aði FATF, alþjóð­­leg sam­tök sem hafa það hlut­verk að móta aðgerðir til að hindra að fjár­­­mála­­kerfið sé mis­­notað í þeim til­­­gangi að koma illa fengnu fé aftur í umferð, skýrslu um Ísland. Með því að ger­­ast aðili að sam­tök­unum þá skuld­batt Ísland sig til að und­ir­­gang­­ast og inn­­­leiða þau skil­yrði sem sam­tökin telja að þurfi að upp­­­fyll­­ast.

Í skýrslu FATF fékk pen­inga­þvætt­is­eft­ir­lit Íslend­inga fall­ein­kunn. Alls var gerð athuga­­semd við 51 atriði í laga- og reglu­­gerð­­ar­um­hverfi Íslands og því hvernig við fram­­fylgjum eft­ir­liti með pen­inga­þvætti og fjár­­­mögnun hryðju­verka.

Á meðal þess sem þar kom fram var að íslensk stjórn­­völd litu ekki á rann­­sóknir á pen­inga­þvætti sem for­­gangs­­mál. Þeir litlu fjár­­munir sem settir voru í að koma upp um, rann­saka og sak­­sækja pen­inga­þvætti voru þar lyk­il­at­riði. Afleið­ingin var meðal ann­­ars sú að tak­­mark­aðar skrán­ingar höfðu verið á grun­­sam­­legum til­­­færslum á fé utan þess sem stóru við­­skipta­­bank­­arnir og hand­­fylli ann­­arra fjár­­­mála­­fyr­ir­tækja fram­­kvæma. Þá skorti einnig á að að upp­­lýs­ingum um hreyf­­ingar á fé og eignum væri deilt með við­eig­andi stofn­unum í öðrum lönd­­um.

Íslandi var gefið fram á mitt ár 2019 til að bregð­­ast við. Ef úrbætur yrðu ekki nægj­an­­leg­­ar, og Ísland færi á jafn­­vel á lista FATF yfir ósam­vinn­u­þýð ríki myndi það, að mati inn­­­lendra hags­muna­að­ila, leiða til þess að orðstír og trú­verð­ug­­leiki Íslands á alþjóða­vett­vangi biði veru­­legan hnekki.

Íslenska ríkið brást við með alls­herj­­­ar­átaki. Ný heild­­ar­lög um varnir gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­mögnun hryðju­verka voru sam­­þykkt og fjöldi ann­­arra laga og reglu­­gerða voru upp­­­færð. Þá voru auknir fjár­­munir settir í manna­ráðn­­ingar og kaup á kerfum til að bæta það sem FATF hafði sett út á. En það dugði ekki til og Ísland var, líkt og áður sagði, sett á gráan lista og í aukna eft­ir­fylgni, 18. októ­ber síð­ast­lið­inn.

Uppfært: Klukkan 2:51, var tengli í til­kynn­ingu á www.spar.is bætt við í grein.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár