Mynd: EPA

Hyldýpið sem hægt var að brúa

Í heims­far­aldri þar sem barist hefur verið um bólu­efni með pen­inga að vopni hefur heil heims­álfa verið skilin eftir með sárt ennið. Þetta eru ekk­ert annað en svik, segir for­stjóri WHO.

Þeir voru vanir að taka sex eða sjö grafir á viku. Núna eru þær svo margar á degi hverjum. „Við fundum varla fyrir fyrstu bylgj­unni,“ segir Habib Sagna, vörður í stærsta kirkju­garði Yoff-hverf­is­ins í Dakar, höf­uð­borg Senegal. „Í annarri bylgj­unni þá voru nokkrar útfarir vegna COVID-19 en í þess­ari þriðju... núna erum við virki­lega farin að finna fyrir því.“

Fyrir rúmu ári, þegar fyrsta bylgja far­ald­urs­ins hafði gengið yfir Asíu, Evrópu og Norður- og Suður-Ameríku með skelfi­legum afleið­ingum fóru margir að spyrja sig hvað væri eig­in­lega í gangi í Afríku. Það þorði varla nokkur maður að segja það upp­hátt en álfan þar sem fjöl­margar far­sóttir hafa geisað síð­ustu ára­tugi, far­sóttir sem Vest­ur­landa­búar þekkja vart nöfnin á, virt­ist hafa sloppið að mestu við COVID-19. Og það þvert á ham­fara­spár margra, m.a. auð­jöf­urs­ins Bill Gates, sem sagði veik­byggð heil­brigð­is­kerfi álf­unnar eiga eftir að bresta og dauðs­föll skipta millj­ónum.

Sú varð ekki raunin.

En hvers vegna?

Skýr­ing­arnar (og kenn­ing­arnar) eru margar og auð­vitað mis­jafnar eftir hverju ríki fyrir sig. Því ólíkt því sem margir halda er Afríka langt frá því að vera eins­leit.

Snör og sam­stillt við­brögð margra Afr­íku­ríkja þegar við upp­haf far­ald­urs­ins eru hins vegar ein skýr­ingin. Settar voru á harðar aðgerðir; útgöngu­bann, ferða­bann og fleira í þeim dúr. Það verður að hafa í huga að þetta er heims­álfa þar sem ítrekað hefur verið barist við hættu­lega smit­sjúk­dóma, m.a. ebólu og kól­eru. Það er því þekk­ing til staðar til að hefta útbreiðslu.

Önnur skýr­ing felst mögu­lega í þeirri stað­reynd að Afríka er lang­yngsta heims­álfan. Með­al­aldur íbú­anna er rúm­lega 19 ár á meðan hann er 42 ár í Evrópu og 35 ár í Banda­ríkj­unum. Þetta þýðir að allt að því helm­ingur íbúa Afríku eru börn og ung­lingar. Og þessir ald­urs­hópar voru ólík­legri en aðrir til að smit­ast af nýju kór­ónu­veirunni og einnig ólík­legri til að veikj­ast alvar­lega.

Það má einnig leita skýr­inga í því að í löndum álf­unnar, sem eru mörg við mið­baug, eyða flestir íbúar bróð­ur­parti af tíma sínum utandyra ólíkt því sem þekk­ist t.d. í Evrópu og Banda­ríkj­unum. Og þrátt fyrir að borgir séu vissu­lega að vaxa hraðar í þess­ari heims­álfu en ann­ars staðar á jarð­ar­kringl­unni býr enn stór og oft stærstur hluti íbúa í dreif­býli.

Bólusetningarhlutfall er gríðarlega misjafnt eftir heimshlutum. Í Líberíu er það 0,18 prósent. Á Íslandi er það 75 prósent.
Bólu­setn­ing­ar­hlut­fall er gríð­ar­lega mis­jafnt eftir heims­hlutum. Í Líberíu er það 0,18 pró­sent. Á Íslandi er það 75 pró­sent.

Allir þessir þættir sam­an­lagðir höfðu lík­lega þau áhrif að fyrsta bylgjan reis aldrei hátt í Afríku. Ofan á þá alla kemur svo sú afleidda stað­reynd, það sann­leiks­korn sem var í heimsenda­spá Gates, að þar sem heil­brigð­is­kerfin eru veik, var ekki verið að taka sýni af fólki hægri vinstri líkt og í hinum vest­ræna heimi. Auk þess má ekki gleyma því að í mörgum löndum Afríku var COVID-19 ein­fald­lega ekki ofar­lega á for­gangs­list­anum. Faraldur HIV og alvar­legra barna­sjúk­dóma, svo dæmi séu tekin, áttu skuld­laust þau topp­sæti.

En svo kom delta. Afbrigðið sem er um sex­tíu pró­sent meira smit­andi en alpha-afbrigðið sem var svo aftur sex­tíu pró­sent meira smit­andi en upp­runa­lega veiran. Delta, hefur eins og á öðrum stöðum í heim­inum, breytt öllu.

Munurinn á Afríku og „öðrum stöðum í heim­inum“ er hins vegar sá að í álf­unni er innan við eitt pró­sent íbú­anna bólu­settur. Þetta hlut­fall er 41 pró­sent í Evrópu allri, 50 pró­sent í Evr­ópu­sam­band­inu og Banda­ríkj­unum og 75 pró­sent á Íslandi. Ef litið er til ein­stakra ríkja Afríku er hlut­fallið víða langt undir 1 pró­senti. Það er til dæmis aðeins 0,2 pró­sent í Líberíu. Þar hafa um 96 þús­und bólu­efna­skammtar verið gefnir eða jafn­margir og nú eru til á lager á Íslandi og nota á m.a. í örv­un­ar­skammta hjá full­bólu­settum.

Beðið eftir sýnatöku í Kenía.
Beðið eftir sýna­töku í Kenía.

Ofan á bólu­efna­skort vantar svo gjör­gæslu­rými, hlífð­ar­fatnað og flest það annað sem þarf til að verj­ast far­aldr­inum. Strangar tak­mark­anir voru góðar og gildar sem sótt­varna­ráð­stöfun þegar þær voru settar á í mörgum ríkjum Afríku í fyrra. En í álfu þar sem lífs­bar­áttan er hörð frá degi til dags í útbreiddu atvinnu­leysi, upp­skeru­bresti og stríðs­á­standi, er ekki hægt að banna fólki að fara um vikum og mán­uðum saman.

„Þetta er ófremdar ástand,“ segir Babacar Diop, læknir á bráða­mót­töku Fann-sjúkra­húss­ins í Dakar. Sjúkra­bílar aka stöðugt upp að sjúkra­hús­inu með hóstandi sjúk­linga. Diop getur ekki sinnt þeim öllum því það er skortur á súr­efni á sjúkra­hús­inu. Hann verður að vísa sjúkum frá. „Við fáum sjúk­linga sem deyja hérna fyrir utan,“ segir Diop. Hann segir töl­fræði yfir látna vegna COVID-19 í land­inu mjög van­metna. Fleiri deyi heima en á yfir­fullum sjúkra­hús­unum.

Þriðja bylgjan er risin í Senegal eins og ann­ars staðar í Afríku. Og það er delta-afbrigðið sem knýr hana áfram. „Þetta afbrigði er algjör tíma­sprengja,“ segir Diop. Það eina sem fólk geti gert sé „að biðja“.

Fleira ungt fólk er að smit­ast af delta en fyrri afbrigðum. Fleira ungt fólk er einnig að veikj­ast en áður. Ungu Afr­íku­þjóð­irnar stara ofan í hyl­dýpi.

En þetta er hyl­dýpi sem hægt hefði verið að brúa. Og er það kannski enn, ef allir myndu leggj­ast á eitt.

„Þar sem ég sit og skrifa þetta er mikið mann­fall vegna COVID-19 hafið í Afríku,“ skrifar Mosoka Fallah, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri heil­brigð­is­mála­stofn­unar Líberíu í tíma­ritið Nature. Fallah starfar enn á sviði heil­brigð­is­mála og nú hjá banda­rísku smit­sjúk­dóma­stofn­un­inni, NAID. Í heima­landi hans Líberíu fjölg­aði greindum til­fellum af veirunni um 144 pró­sent frá 1. júní til 21. júlí. Hann segir „alveg örugg­lega“ um van­mat á fjölda smita að ræða.

„Sjúk­dóm­ur­inn er ban­vænni hér en ann­ars staðar,“ segir hann og vísar í nýjar rann­sóknir um að dán­ar­tíðni af hans völdum sé 18 pró­sent hærri í Afríku en að með­al­tali í heim­inum. „Um helm­ingur þeirra sem lagður er inn á gjör­gæslu deyr á innan við þrjá­tíu dögum.“

En nóg af töl­fræði, skrifar hann og heldur áfram: „Fjöldi grafa sem tek­inn er í Líberíu dag hvern minnir á ham­far­irnar vegna ebólu-far­ald­urs­ins árið 2014.“ Líkt og þá hafi fjöldi heil­brigð­is­starfs­manna sýkst og lát­ist af völdum COVID-19. Og þeir voru of fáir fyrir. Sam­fé­lags­miðlar voru áður fullir af afmælis­kveðjum og öðrum heilla­óskum. „Núna flæða um þá skila­boðin „hvíl í friði“,“ skrifar Fallah.

Allt á floti í Monróvíu, höfuðborg Líberíu.
Allt á floti í Monróvíu, höf­uð­borg Líberíu.

Fallah segir tím­ann að renna út. Bregðast verði þegar í stað við þeim bólu­efna­skorti sem hrjái mörg Afr­íku­ríki. Hann varar alþjóða­sam­fé­lagið við því að gera sömu mis­tök og í ebólu-far­aldr­inum. Þá hafi við­brögðin verið alltof sein. Og fólk dáið úti á götu.

Hann ótt­ast að hol­skefla smita skelli á álf­unni á næstu vikum og að löndin séu engan veg­inn nægi­lega vel und­ir­búin. Víða sé þegar skortur á súr­efni. Og hann eigi aðeins eftir að aukast. „Afríka slapp að mestu undan far­aldr­inum 2020, en ekki í ár. Okkur vantar bólu­efni og við náum vart and­anum.“

Hann gagn­rýnir harð­lega að auð­ugri lönd heims­ins hafi ekki staðið við skuld­bind­ingar sínar í COVAX-sam­starf­inu sem átti að tryggja bólu­efni fyrir fátæk­ari ríki. Aðeins litlu broti af bólu­efni sem heitið var til sam­starfs­ins í ár hefur verið komið til Afríku. Hefði verið staðið við lof­orðin hefði mátt koma í veg fyrir fjölda dauðs­falla.

For­stjóri Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar talar á sömu nótum í nýlegu við­tali við Washington Post. Tedros Adhanom Ghebr­eyesus er fæddur í Erítreu en er með eþíópískt rík­is­fang. „Það er ekki hægt að nota neitt annað orð en svik yfir það sem er að ger­ast núna í Afríku,“ segir hann í við­tal­inu. Fólk sé að deyja og í veg fyrir það hefði verið hægt að koma „hefðu rík­ari þjóðir leyft þeim fátæk­ari að fá sinn rétt­mæta hlut af bólu­efnum“.

Af þeim rúm­lega 3,7 millj­örðum bólu­efna­skammta sem dreift hefur verið á heims­vísu hefur aðeins 1,7 pró­sent farið til Afríku. Ghebr­eyesus hefur notað orðið „græðgi“ í þessu sam­bandi. „Heims­far­ald­ur­inn var próf. Og heims­byggðin er að falla á því.“ Þótt vissu­lega séu ýmsar hindr­anir í vegi bólu­setn­inga­her­ferða í Afríku séu sum ríkin vel und­ir­búin og til­búin í slag­inn. Það sem vanti sé bólu­efni.

Fólk á flótta undan eldgosi í Austur-Kongó. Förinni er heitið til nágrannaríkisins Rúanda.
Fólk á flótta undan eld­gosi í Austur-Kongó. Förinni er heitið til nágranna­rík­is­ins Rúanda.

Flest ríki Afríku hafa ekki efni á að kaupa bólu­efni beint frá fram­leið­endum þeirra. Og vegna alls konar einka­leyfa geta þau ekki fram­leitt efnin sjálf þótt vonir standi til að slíkt geti orðið í fram­tíð­inni. Hið lága bólu­setn­ing­ar­hlut­fall í Afríku er því fyrst og fremst til­komið vegna fjár­skorts. Vegna þess að rík­ari lönd höfðu, með pen­inga að vopni, betri samn­ings­stöðu gagn­vart lyfja­fyr­ir­tækj­unum þegar í upp­hafi og gátu því hamstrað bólu­efni. Þar var vissu­lega brýnt að bólu­setja fólk enda tvær og jafn­vel þrjár stórar bylgjur sem gengu yfir bæði Evrópu og Banda­ríkin á aðeins einu og hálfu ári.

En allir vissu, alveg frá upp­hafi, að ráð­ast yrði að rót vand­ans með bólu­setn­ingum alls staðar í heim­inum – til að ná árangri í bar­átt­unni við COVID-19 um allan heim. „Vest­ur­veldin hafa hagað sér með and­styggi­legum hætti þegar kemur að því að láta [Afríku] bólu­efni í té,“skrifar keníski rit­höf­und­ur­inn Patrick Gathara í skoð­ana­grein á vef Al Jazeera. „Þau hafa hamstrað birgðir af bólu­efnum sem þau þurfa ekki, fyrir fólk sem vill þau ekki en hafa neitað þeim sem þurfa þau og vilja um að fá þau.“ Hann vill þó líka minna á að rík­is­stjórnir í Afríku beri ábyrgð.

Dæmi eru um að skammtar sem eru við það að renna út hafi verið sendir með flýti frá Vest­ur­löndum til Afríku. Barna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna, UNICEF, hefur vakið athygli á þessu og segir að tug­þús­undir skammta hafi farið til spillis af þessum sökum. Gathara varar við því að hraðafgreiðsla á bólu­efnum sem eru að kom­ast á „síð­asta neyslu­dag“ verði notuð til að fóðra þá orð­ræðu að gagns­lítið sé að senda bólu­efni til fátæk­ari ríkja – þau séu ekki notuð.

Barist við engisprettur í Kenía.
Barist við engi­sprettur í Kenía.

„Hvenær munu lönd Afríku ná nægi­lega miklu ónæmi, hinum svo­kall­aða hjarð­ó­næm­is­þrös­k­uldi?“ spurði Bruce Aylward, læknir, far­alds­fræð­ingur og einn helsti ráð­gjafi for­stjóra WHO, á upp­lýs­inga­fundi stofn­un­ar­innar í síð­ustu viku. Hann svar­aði sjálfur spurn­ing­unni: „Því miður liggur ákvörðun þar um ekki hjá Afr­íku­ríkj­unum sjálfum. Núna er ákvörð­un­ar­valdið hjá hópi for­stjóra og stjórnum stórra fyr­ir­tækja sem selja bólu­efni, hjá löndum sem fram­leiða bólu­efni og hjá löndum sem hafa yfir að ráða samn­ingum um meiri­hluta alls bólu­efnis heims­ins.“

Ástandið í Afríku hefur að sögn WHO versnað hratt og dauðs­föllum fjölgað um 80 pró­sent á aðeins fjórum vikum. For­stjór­inn Tedros Adhanom Ghebr­eyesus hvetur stjórn­völd í efn­aðri ríkjum til að leggja meira af mörkum til COVAX-sam­starfs­ins. Hann hefur svo ítrekað biðlað til rík­is­stjórna heims­ins, síð­ast á mið­viku­dag, að bíða með örv­un­ar­bólu­setn­ingar full­bólu­settra borg­ara sinna þar til að minnsta kosti í lok sept­em­ber. Slíkt sé ekki rétt­læt­an­legt á meðan hin djúpa gjá í bólu­setn­ingum sé til staðar í heim­inum.

Kjarninn birtir um þessar mundir frétta­skýr­ingar um stöðu heims­far­ald­urs­ins í hverri heims­álfu fyrir sig. Þegar hafa verið birtar greinar um Norður-Ameríku, Suður-Ameríku og Eyjaálfu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár