Frá aðdáun til andófs í álfu strangra takmarkana

Í Eyjaálfu hefur „núll­stefnan“ í bar­átt­unni við kór­ónu­veiruna skilað eft­ir­tekt­ar­verðum árangri og engin smit hafa greinst í nokkrum ríkjum. Eftir að smitum fjölg­aði í Ástralíu og útgöngu­bann var sett á fannst mörgum nóg komið.

Það segir sig sjálft að í Eyjaálfu eru margar eyjur. Þær eru stórar og smáar – sú stærsta vit­an­lega Ástralía, þar sem rúm­lega helm­ingur íbúa álf­unnar býr. Sú næst­stærsta að flat­ar­máli er Nýja-Sjáland og þar búa tæp­lega 5 millj­ónir manna. Þriðja í stærða­röð­inni er Papúa Nýja-Gínea sem er sú önnur fjöl­menn­asta, með tæp­lega 8,5 millj­ónir íbúa. Eyríkið Tokelau, þar sem kókos­hnetur eru ein helsta útflutn­ings­varan, er það fámenn­asta af þeim 23 sem finna má í Eyjaálfu (þau eru ýmist sjálf­stæð, sjálf­stjórn­ar­svæði eða með heima­stjórn upp að ein­hverju marki).

Eyjaálfa er þó kennd við hafið sem hana ein­kennir á flestum öðrum tungu­málum en íslensku. Oceania kall­ast hún á enskri tungu, svo dæmi sé tekið. Það er einmitt hafið sem hefur gert við­brögðin við kór­ónu­far­aldr­inum í Eyjaálfu nokkuð frá­brugðin því sem þekk­ist víð­ast ann­ars staðar á jarð­ar­kringl­unni. Til eyj­anna kemst eng­inn nema fljúg­andi eða á báti. Og þess konar landa­mærum er hægt að stýra með ein­fald­ari hætti en öðrum.

Enda hefur sú stefna verið tekin í flestum ríkj­unum. Að verj­ast veirunni á landa­mær­unum. Setja á harðar tak­mark­anir. Jafnvel skella nær alfarið í lás. Það hefur ekki alltaf tek­ist og veiran hefur fundið sér leið enda lúmsk, eins og allir vita.

Kjarninn birtir þessa dag­ana frétta­skýr­ingar um stöðu heims­far­ald­urs­ins í hverri heims­álfu fyrir sig. Þegar hefur birst grein um Norður-Ameríku, með áherslu á Banda­ríkin og Kanada, og Suður-Ameríku eða öllu heldur rómönsku Ameríku sem telur löndin sunnan Banda­ríkj­anna.

Far­ald­ur­inn í Eyjaálfu hófst 25. jan­úar í fyrra er kín­verskur rík­is­borg­ari sem flogið hafði til Melbourne nokkrum dögum fyrr greind­ist. Sam­dæg­urs greindust þrír til við­bótar, allt fólk sem var að koma heim til Ástralíu frá kín­versku borg­inni Wuhan. Borginni þar sem kór­ónu­veiran upp­götv­að­ist í des­em­ber árið 2019.

Síðan þá hefur veiran breiðst út um stærstan hluta álf­unnar en þó virð­ist nokkrum eyríkjum hafa tek­ist að sleppa og á Nauru, Tonga og Tuvalu hafa enn engin smit greinst. Ekki heldur á hringrifj­unum þremur sem mynda eyja­kla­s­ann gull­fal­lega, Tokelau.

Ástralía og Nýja-Sjáland hafa verið nokkuð sam­stíga í aðgerðum sínum sem vakið hafa heims­at­hygli. Þar er rekin allt að því hrein­ræktuð „núll­stefna“. Sam­fé­lags­smit eru kæfð í fæð­ingu með mjög hörðum og afger­andi aðgerðum á borð við útgöngu­bann, ítar­lega smitrakn­ingu og mik­illi skimun.

Innan við 100 þús­und smit af kór­ónu­veirunni hafa greinst í Eyjaálfu til þessa og skráð dauðs­föll af völdum COVID-19 eru í kringum 1.500. En þetta er ekki búið. Og í álfu þar sem bólu­setn­inga­hlut­fall er lægra en í öllum öðrum utan Afríku er far­ald­ur­inn aftur í upp­sveiflu í Ástralíu, Frönsku Pólý­nesíu og Papúa Nýju-Gíneu. Ástandið er hins vegar lang­verst á Fiji.

Náttúrufegurð hringrifjanna sem mynda Tokelau er gríðarleg.
Nátt­úru­feg­urð hring­rifj­anna sem mynda Tokelau er gríð­ar­leg.

Kyrrahafseyjurnar smitlausu

Mitt á milli Hawaii og Nýja-Sjálands, úti í miðju Suður-Kyrra­hafi, rísa þrjár hring­laga kór­al­eyjur með sjáv­ar­lóni í miðj­unni. Þær raða sér, ásamt minni eyjum, í klasa á um 200 kíló­metra svæði. Þær rísa ekki hátt. Hæsti punkt­ur­inn er aðeins um fimm metrar. Sam­an­lagt land­rými þeirra er aðeins rúm­lega 10 fer­kíló­metrar. Og á þeim búa aðeins um 1.500 manns.

Þetta er eyríkið Tokelau en þangað getur tekið allt upp undir sól­ar­hring að ferð­ast með báti frá nálæg­asta flug­velli sem er á Sam­oa­eyjum.

Þessi mikla ein­angrun á sinn þátt í því að ekki eitt ein­asta smit hefur greinst í þessu örsmáa sam­fé­lagi sem hefur ákveðna heima­stjórn, m.a. dóm­stól, en er að ýmsu leyti undir ákvörð­unum nýsjá­lenskra stjórn­valda komið. Þannig hefur það verið frá árinu 1925.

Eyja­skeggjar gripu til þess ráðs snemma á árinu að banna þangað ferða­lög þótt þeir geti sjálfir, ef nauð­syn krefur, ferð­ast. Þetta bann kom þó ekki í veg fyrir að þann 19. júlí lagði nýsjá­lenska her­skipið HMNZS Wellington að bryggju. Um borð var dýr­mætur farmur, 120 lyfjaglös, full af bólu­efni Pfizer-BioNTech sem nægði til að bólu­setja 720 manns.

Hæst­ráð­andi á eyj­unum, Siopili Perez, tók við bólu­efn­inu með við­höfn en gætt var ítr­ustu var­úðar og her­menn­irnir sem fluttu efnið til eyj­anna héldu sig í góðri fjar­lægð.

Sá fyrsti sem fékk bólu­setn­ingu var Pulenuku Lino Isaia sem er nokk­urs konar borg­ar­stjóri á fjöl­menn­ustu eyj­unni, Nukunonu. „Þetta er ekk­ert til að hafa áhyggjur af,“ sagði hann eftir spraut­una. „Þetta er eins og að fá maura­bit og svo er það búið.“

Kon­ungs­ríkið Tonga er í sömu stöðu og Tokelau. Þar hefur ekk­ert smit greinst. Íbúarnir eru þó mun fleiri, nokkuð yfir 100 þús­und. Þrátt fyrir smit­leysið er neyð­ar­stig almanna­varna enn í gildi á eyj­unum sem mynda ríkið sem m.a. felur í sér útgöngu­bann að næt­ur­lagi og 50 manna sam­komu­tak­mark­anir inn­an­dyra.

Tonga er eina kon­ungs­ríki frum­byggja á eyjum Kyrra­hafs­ins. Ríkið sam­anstendur af 169 eyjum og er búið á 36 þeirra.

Hið örsmáa ríki Nauru hefur státað sig af því að hafa slegið heims­met í bólu­setn­ingum og vera það fyrsta í heimi til að hefja bólu­setn­ingu allra full­orð­inna borg­ara sinna. Nauru fékk AstraZeneca-bólu­efni í gegnum COVAX-sam­starfið sem hefur það hlut­verk að útvega bólu­efni fyrir fátæk­ari ríki heims.

Ekkert til­felli af COVID-19 hefur greinst í Nauru til þessa.

Nauru er sann­kallað örríki, bæði hvað varðar stærð og mann­fjölda. Flat­ar­mál þess­arar kór­al­eyju er aðeins um 21 fer­kíló­metri og íbú­arnir um tíu þús­und. Þetta er eitt afskekktasta ríki heims, mitt í Kyrra­haf­inu. Ferða­þjón­usta og land­bún­aður (kaffi­bauna­ræktun t.d.) eru mik­il­væg­ustu atvinnu­grein­arnar en helstu tekj­urnar koma þó frá sölu á veiði­heim­ildum til erlendra útgerða.

Eyja­skeggjar eru stoltir af því að allir full­orðnir hafi verið bólu­settir á nokkrum dögum og slá þannig heims­met að eigin sögn. „Allir hafa lagt sitt af mörkum til að halda Nauru öruggu og lausu við COVID,“ sagði í yfir­lýs­ingu stjórn­valda. Þau hafa lagt áherslu á að skima meðal íbú­anna reglu­lega. Nú eru þau hins vegar á tánum vegna fjölg­unar smita á öðrum eyjum í Kyrra­haf­inu.

Á Fiji er að finna mörg lúxushótel. Þar er fátækt meðal almennings útbreidd og eftir hrun ferðaþjónustunnar hafa margir misst lífsviðurværi sitt.
Á Fiji er að finna mörg lúx­us­hótel. Þar er fátækt meðal almenn­ings útbreidd og eftir hrun ferða­þjón­ust­unnar hafa margir misst lífs­við­ur­væri sitt.

Ófremdarástand á Fiji

Sjúkra­hús eru yfir­full og ringul­reið ríkir. Eftir að hafa haldið veirunni nán­ast alfarið frá ströndum hefur far­ald­ur­inn nú náð fót­festu á Fiji, um 330 eyja klasa í Suður-Kyrra­hafi. Síðustu tvær vikur hafa tæp­lega 900 smit verið að grein­ast að með­al­tali á dag hjá þjóð sem telur innan við 900 þús­und manns. Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin, WHO, segir að hvergi ann­ars staðar í heim­inum sé far­ald­ur­inn í jafn mik­illi upp­sveiflu. Að minnsta kosti 206 dauðs­föll hafa orðið af völdum veirunnar frá upp­hafi far­ald­urs­ins, lang­flest nú í júní og júlí. 21 lést í síð­ustu viku og þeirra á meðal voru tvær óléttar og óbólu­settar konur.

Upphaf bylgj­unnar er rakið til her­manns sem vann á far­sótt­ar­húsi á eyj­unum sem eru vin­sæll áfanga­staður ævin­týra­fólks. Hann er tal­inn hafa smit­ast af ferða­manni sem var að koma frá Indlandi. Her­mað­ur­inn smit­aði svo sam­starfs­konu sína sem aftur smit­aði marga í sinni fjöl­skyldu. Það sem hins vegar gerði úts­lagið, og varð til þess að „ofursmit“ átti sér stað, var að einn starfs­maður far­sótt­ar­húss­ins sótti jarð­ar­för. Um 500 aðrir voru við­staddir.

Stjórn­völd brugð­ust við bylgj­unni, sem hófst í lok apríl en hóf sitt mikla ris í júní, með umfangs­mik­illi skimun meðal þjóð­ar­innar. Þá eru þau svæði sem hópsmit koma upp á afkvíuð, grímu­skylda sett á og útgöngu­bann er í gildi á stærstu þétt­býl­is­stöðum.

En nú hafa þau látið af skimun­inni. Ekki eru einu sinni tekin sýni af öllum þeim sem eru með ein­kenni COVID-sjúk­dóms­ins. Þess í stað er fólki sagt að vera í ein­angrun heima hjá sér og láta vita ef alvar­leg ein­kenni láta á sér kræla. Sjúkra­húsin ráða ekki við meiri fjölda.

Á Fiji er heil­brigð­is­kerfið veikt. Það var það löngu fyrir far­ald­ur­inn. Stærsta sjúkra­húsið á eyj­unni Suva var byggt árið 1923. Og aðstaðan eftir því. Læknir, sem ekki vildi láta nafn síns getið, sagði í við­tali við nýsjá­lenska útvarps­stöð í vik­unni að allar heil­brigð­is­stofn­anir væru gríð­ar­lega und­ir­mann­aðar og starfs­fólkið hefði ekki þeim úrræðum til að dreifa sem þarf í heims­far­aldri. Það ótt­að­ist margt um líf sitt. Einn læknir sem vann í fram­lín­unni veik­ist nýverið eftir að sinna COVID-veikum. Hann lést skömmu síðar. Þá hafi að minnsta kosti tveir aðrir heil­brigð­is­starfs­menn lát­ist í sömu vik­unni. Sam­starfs­fé­lagar þeirra eru beðnir um að halda áfram störfum, jafn­vel þótt þeir grein­ist með COVID-19.

Talið er að rétt rúm­lega 10 pró­sent þjóð­ar­innar séu full­bólu­sett en um helm­ingur hennar hafi fengið að minnsta kosti einn skammt bólu­efnis. Átak hefur verið gert í bólu­setn­ingum á eyj­unum síð­ustu vikur en hlut­fall jákvæðra sýna sem tekin eru frá degi til dags hefur stundum reynst yfir 27 pró­sent.

Fjöl­miðlar hafa greint frá því að yfir 4.000 þús­und sjúk­lingum með COVID-ein­kenni hafi verið vísað frá sjúkra­húsum á stærstu eyj­unni Viti Levu. Ástæðan: Það eru öll sjúkra­rúmin upp­tekin.

En það er fleira en aðstöðu­leysi sem aukið hefur á vand­ann. Fátækt er gríð­ar­lega útbreidd meðal almenn­ings á Fiji. Þar búa margir saman. Og þétt saman. Að hlýta fyr­ir­mælum stjórn­valda um að halda sig heima dögum og jafn­vel vikum saman er ein­fald­lega ekki í boði hjá mörgum. Atvinnu­leysi er útbreitt og hefur auk­ist enn meira í far­aldri á eyjum þar sem ferða­þjón­usta er und­ir­stöðu atvinnu­grein. Til að bjarga sér frá degi til dags reyna margir að afla sér tekna með far­and­sölu eða ráða sig í til­fallandi störf sem bjóð­ast óreglu­lega í skamman tíma í senn.

Fiji tókst að halda kór­ónu­veirunni úti með því að loka landa­mærum sínum í fyrra. En fórn­ar­kostn­að­ur­inn var gríð­ar­legur. Þar er ekki í neina feita sjóði að grípa til að örva hag­kerfið. Enda dróst lands­fram­leiðslan saman um 19 pró­sent í fyrra. Fá ríki urðu jafn illa úti og aldrei fyrr hefur Fiji hlotið slíkt efna­hags­legt högg.

Bylgja rís og bóluefni skortir

Ástralía, þar sem um 25 millj­ónir manna búa, hlaut í upp­hafi lof fyrir við­brögð sín við far­aldr­inum. Þar hafa innan við 40 þús­und smit greinst og rúm­lega 920 lát­ist vegna COVID-19.

En bylgja hófst í júní og sam­kvæmt stefnu stjórn­valda var þegar gripið til harðra tak­mark­ana. Sökum þess hve eyjan er stór er útbreiðsla veirunnar hins vegar mjög svæð­is­bundin. Til útgöngu­banns var gripið í Nýja Suður-Wales, þar sem smit­fjöld­inn hefur verið einna mestur und­an­farið. Þessi ráð­stöfun, sem hefur ítrekað verið fram­lengd, hefur farið þver­öf­ugt ofan í marga og til fjölda­mót­mæla komið. Ástr­alski her­inn hefur verið kall­aður út í Sydney til að aðstoða yfir­völd, m.a. við að fram­fylgja sótt­varna­ráð­stöf­unum.

Útgöngu­bannið í Sydney átti að standa í þrjá daga. Það stendur enn og hefur verið fram­lengt um fjórar vikur eða til 28. ágúst. Segja má að þetta sé í fyrsta sinn frá því far­ald­ur­inn hófst sem sú skyndi­að­gerð bregst. Skýr­ingin felst sjálf­sagt í því að bólu­setn­ing er hafin þótt hún sé mun minni þar í landi en þekk­ist t.d. í flestum löndum Evrópu. Stjórn­völd hafa verið harð­lega gagn­rýnd fyrir seina­gang­inn en þau veðj­uðu í upp­hafi á bólu­efni sem fram­leiða átti í land­inu en brást á síð­ustu stigum vís­inda­rann­sókna. Fleira hefur farið úrskeiðis hvað bólu­efnin varðar og Ástralar búnir að fá nóg. Þúsundir þeirra hafa því þram­mað um stræti og torg, ævareiðir yfir enn einu útgöngu­bann­inu.

Bólusetningar í Eyjaálfu eru langt frá því að vera á svipuðu róli og í Evrópu og Norður-Ameríku.
Bólu­setn­ingar í Eyjaálfu eru langt frá því að vera á svip­uðu róli og í Evrópu og Norður-Ameríku.

Það er delta-afbrigðið sem búið hefur um sig í sam­fé­lag­inu líkt og svo víða ann­ars staðar. Og áfram fjölgar smitum dag frá degi. Þótt þau séu nú aðeins um 200 á dag er það 200 meira en stjórn­völd vilja sjá: Núll.

„Það er ekki hægt að stytta sér leið, það er engin önnur leið. Við verðum bara að setja undir okkur haus­inn og fara í gegnum þetta,“ sagði Scott Morrison for­sæt­is­ráð­herra í sjón­varps­ávarpi á dög­unum. Hann hét því að öllum Áströlum myndi standa bólu­setn­ing til boða fyrir árs­lok. Aðeins fjórtán pró­sent þeirra eru full­bólu­settir í dag og í heild hefur rétt um þriðj­ungur fengið að minnsta kosti fyrri skammt bólu­efnis. „Ég býst við því að um jólin munum við sjá allt aðra Ástralíu en við erum að sjá núna,“ sagði Morrison.

Það er útgöngu­bann í fleiri borgum og bæjum Ástralíu en í stór­borg­inni Sydney. Og sýna­tökum og rakn­ingu smita er beitt af miklum móð. En áfram fjölgar smit­unum og nú mest hjá fólki undir fer­tugu.

Á einu ári hefur útgöngu­bann verið sett á oftar en tólf sinnum. Sér­fræð­ingar telja að það sem nú er í gildi gæti varað allt þar til í sept­em­ber. Jafnvel lengur.

Til að lægja óánægju­öldur til­kynnti Morrison í gær­morgun áætlun um hvernig aflétt­ingum verði háttað þegar um 70 pró­sent full­orð­inna verða full­bólu­sett. Sér­stakar reglur munu þá gilda fyrir bólu­setta og til­slak­anir gerðar á landa­mærum. Er 80 pró­senta bólu­setn­ing­ar­hlut­falli verður náð á að hætta að setja á alls­herjar útgöngu­bann ef upp koma smit.

Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, og Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, tilkynntu „ferðabandalag“ sitt fyrir utan óperuhúsið í Sydney.
Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands, og Scott Morrison, for­sæt­is­ráð­herra Ástralíu, til­kynntu „ferða­banda­lag“ sitt fyrir utan óperu­húsið í Sydney.

Á Nýja-Sjálandi hefur sama leið verið farin til að verj­ast far­aldr­inum: Stjórn­völd vilja engin smit. Frá upp­hafi var lögð áhersla á sýna­tökur og ítar­lega smitrakn­ingu sem og per­sónu­bundnar sótt­varnir. Þetta hefur skilað eft­ir­tekt­ar­verðum árangri í bar­átt­unni við kór­ónu­veiruna. Aðeins 26 dauðs­föll í land­inu eru rakin til COVID-19. Eftir að tak­mörk­unum inn­an­lands var aflétt að mestu á síð­ari hluta síð­asta árs tók efna­hags­lífið þegar hratt við sér.

Nú eru þar innan við fimm­tíu greindir með COVID-19 og að með­tali tvö smit hafa greinst á dag síð­ustu vik­una. Tak­mark­anir á landa­mær­unum hafa þó verið og eru enn strangar. Landið var allt að því lokað nema fólki í brýnum erinda­gjörðum þegar verst lét. Síðar, þegar árangur hafði náðst, var búin til svokölluð „ferða­kúla“ við grann­ana í Ástralíu, svo íbúar land­anna gætu ferð­ast nokkuð frjálst á milli. En nú hún er sprungin. Jacinda Ardern for­sæt­is­ráð­herra til­kynnti í vik­unni að næstu átta vik­urnar væri far­þega­flugi til og frá Ástralíu aflýst. Far­ald­ur­inn í fylk­inu Nýja Suður-Wales væri „greini­lega far­inn úr bönd­unum“. Hún sagði aukna hættu stafa af delta-afbrigð­inu og við því þyrfti að bregð­ast. „Covid hefur breyst og við þurfum að gera það líka,“ sagði hún.

Ekkert sam­fé­lags­smit hefur verið á Nýja-Sjálandi síðan í febr­úar. Um fimmtán pró­sent full­orð­inna eru full­bólu­sett og 22 pró­sent til við­bótar hafa fengið fyrri skammt­inn.

Hinar hörðu tak­mark­anir á Nýja-Sjálandi hafa kostað sitt. Í nýrri skýrslu, sem kom út í vik­unni, segir að 18 þús­und fleiri börn búa við fátækt en áður en far­ald­ur­inn hófst. Börn úr minni­hluta­hópum, m.a. Maóríar, eru í meiri hættu en aðrir að falla í fátækt­ar­gildru. Þetta er högg fyrir Ardern sem hefur sett vel­ferð barna á odd­inn.

Höfundar rann­sókn­ar­innar segja að heim­il­is­leysi, mis­rétti og ótryggur aðgangur að mat­vælum hafi auk­ist í far­aldr­inum. Fram kemur í skýrsl­unni, sem mann­rétt­inda­sam­tökin The Child Poverty Action Group gerðu, að aðsókn í mat­ar­að­stoð hafi rokið upp þegar alls­herjar tak­mark­anir voru í gildi í mars á síð­asta ári. Eftir að útgöngu- og ferða­banni var aflétt dró úr aðsókn­inni en hún er enn helm­ingi meiri en hún var fyrir heims­far­ald­ur­inn.

Rík­is­stjórn Ardern hækk­aði m.a. bætur og gerði breyt­ingar á skatt­kerf­inu í tengslum við björg­un­ar­að­gerðir sínar vegna far­ald­urs­ins til að styðja við efna­m­inna fólk. Björg­un­ar­að­gerð­irnar, sem fólust einnig í marg­vís­legri aðstoð við fyr­ir­tæki og fólk sem tíma­bundið missti vinn­una eða komstu ekki til vinnu vegna úrgöngu­banns, voru einar þær mestu í heimi miðað við stærð hag­kerf­is­ins.

Höfundar skýrsl­unnar benda hins vegar á að á sama tíma og hagur eigna­fólks hafi vænkast á síð­ustu mán­uðum hafi fátækt barna auk­ist um 10 pró­sent. „Rík­is­stjórnin komst hjá meiri­háttar heilsu­fars- og efna­hags­á­falli en plægði jarð­veg­inn fyrir annað: Fátækt, heim­il­is­leysi og mis­rétti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár