Nýtt frumvarp takmarki aðgengi tekjulágra og fyrstu kaupenda að fasteignamarkaði

Í umsögn Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja segir að laga­breyt­inga­frum­varp sem myndi setja þak á hámarks­greiðslu­byrði geti orðið til þess að tak­marka aðgengi stórra hópa að fast­eigna­mark­aði. Seðla­bank­inn mælir með sam­þykkt frum­varps­ins í óbreyttri mynd.

Í nýju stjórnarfrumvarpi fjármálaráðherra er gert ráð fyrir að hármaksgreiðslubyrði yrði frá 25 til 50 prósent af mánaðarlegum rástöfunartekjum lántaka.
Í nýju stjórn­ar­frum­varpi fjár­mála­ráð­herra er gert ráð fyrir að hár­maks­greiðslu­byrði yrði frá 25 til 50 pró­sent af mán­að­ar­legum rástöf­un­ar­tekjum lán­taka. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Aðgengi tekju­lágra að láns­fjár­magni til fast­eigna­kaupa gæti minnkað til muna verði nýtt stjórn­ar­frum­varp fjár­mála­ráð­herra um hámark greiðslu­byrðar að lögum. Þetta kemur fram í umsögn Samtaka Fjár­mála­fyr­ir­tækja (SFF) við frum­varpið.

Með laga­breyt­inga­frum­varp­inu sem um ræðir yrði hámark sett á greiðslu­byrði á bil­inu 25 til 50 pró­sent af mán­að­ar­legum ráð­stöf­un­ar­tekjum lán­taka. End­an­legt hlut­fall yrði svo ákveðið af Seðla­banka Íslands. Einnig yrði sett hámark á heild­ar­fjár­hæð fast­eigna­láns og fjár­hæðin tak­mörkuð þannig að hún geti verið frá fimm­földum til nífaldra árlegra ráð­stöf­un­ar­tekna lán­taka. Seðla­bank­inn getur nú þegar ákveðið hámark veð­setn­ing­ar­hlut­falls en í lög­unum er hámarkið frá 60 pró­sentum og upp í 90 pró­sent.

Að mati SFF myndi beit­ing strang­ari skil­yrð­anna hafa mest áhrif á aðgengi tekju­lægri hópa að láns­fjár­mögnun til fast­eigna­kaupa sem og á aðgengi fyrstu kaup­enda að lánum. „SFF gerðu athugun meðal lán­veit­enda sem bendir til að áhrifin geti orðið ívið meiri en gert er ráð fyrir í grein­ar­gerð­inni og þá ekki síst á fyrstu kaup­endur sé horft til lán­veit­inga s.l. 12. mán­uði. Þannig mun beit­ing strang­ari skil­yrð­anna tak­marka aðgengi stórra hópa að fast­eigna­mark­aði,“ segir í umsögn sam­tak­anna.

SFF telja það mik­il­vægt að lán­veit­endur séu hafðir með í ráðum í aðdrag­anda reglu­setn­ing­ar­innar og að áhrifa­mat sé unnið í sam­starfi við lán­veit­endur. Þá hvetja sam­tökin til þess að þegar breyt­ingar eru gerðar á skil­yrðum séu þær vel kynntar neyt­endum og að rúmur fyr­ir­vari sé gef­inn áður en breyt­ingar ganga í gildi.

Kostnaður verði í samræmi við greiðslugetu

Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun (HMS) óskar eftir því í umsögn sinni að við mat á beit­ingu úrræð­anna sem fjallað er um í frum­varp­inu verði sér­staða HMS höfð í huga er varðar heim­ildir til und­an­þágu frá þeim hámörk­unum sem kveðið er á um.

Í umsögn HMS kemur fram að verði hámarks­hlut­fall greiðslu­byrði af ráð­stöf­un­ar­tekjum tak­markað við 25 pró­sent geti það komið harðar niður á við­skipta­vinum HMS, sem séu margir hverjir tekju­lægri en við­skipta­vinir ann­arra lán­veit­enda. Það sé vegna þess að HMS hafi í rík­ari mæli nýtt sér heim­ildir til þess að líta til lægri fram­færslu­við­miða við greiðslu­mat en aðrir lán­veit­endur.

Engu að síður fagnar HMS því að skýra eigi betur heim­ildir Seðla­bank­ans til að setja reglur um hámark veð­setn­ing­ar­hlut­falls og greiðslu­byrði fast­eigna­lána af ráð­stöf­un­ar­tekjum neyt­enda. „Telur stofn­unin að þetta sé almennt til þess fallið að stuðla að því að hús­næð­is­kostn­aður sé í sam­ræmi við greiðslu­getu og dragi úr hættu á að hann verði íþyngj­andi.“

Hlutdeildarlánin undanþegin

Líkt og kemur fram í áður­nefndum umsögnum getur frum­varpið haft þau áhrif að aðgengi tekju­lágra að hús­næð­is­mark­aði skerð­ist, sér­stak­lega ef hámark greiðslu­byrðar og láns­fjár­hæðar verður nær neðri tak­mörk­unum sem nefnd eru í frum­varp­inu. Það gengur nokkurn þvert á til­gang ann­arra úrræða sem gripið hefur verið til til þess að reyna að auð­velda þessum hópi að kom­ast inn á fast­eigna­mark­að­inn. Fyrstu kaup­endum býðst til að mynda að taka út sér­eigna­sparnað sinn skatt­frjálst og nýta í útborgun og svo gefst tekju­lágum kostur á að taka hlut­deild­ar­lán fyrir kaupum á íbúðum sem stand­ast ákveðin skil­yrði. Fyrir þá allra tekju­lægstu geta slík hlut­deild­ar­lán numið allt að 30 pró­sentum af kaup­verði íbúðar.

Lagt er til í fyrstu grein laga­breyt­inga­frum­varps­ins að fast­eigna­lán sem veitt eru sam­hliða hlut­deild­ar­lánum verði und­an­þegin umræddum lögum. Slík fast­eigna­lán væru því ekki háð þeim skil­yrðum sem lögð eru til í frum­varp­inu né heldur hámarks­hlut­falli veð­setn­ingar. Nú þegar eru settar ákveðnar skorður við hámarks­af­borg­anir fast­eigna­lána sem veitt eru í tengslum við hlut­deild­ar­lán. Afborgun þeirra má ekki nema meira en 40 pró­sentum af ráð­stöf­un­ar­tekjum lán­taka.

„Jafn­framt má segja að fast­eigna­lán sem veitt eru í tengslum við hlut­deild­ar­lán séu með inn­byggt hámark á veð­setn­ing­ar­hlut­fall enda er þá fjár­mögnun hús­næð­is­ins almennt sam­sett af 5% eigið fé neyt­anda, 20–30% hlut­deild­ar­láni og 65–75% fast­eigna­láni,“ segir í grein­ar­gerð­inni og því ekki talin þörf á að tak­marka veð­setn­ing­ar­hlut­fallið.

Aðrir umsagnaraðilar gera ekki athugasemdir

Tvær aðrar umsagnir hafa borist við frum­varpið. „Um er að ræða mik­il­væg þjóð­hags­var­úð­ar­tæki og nauð­syn­legt að til staðar séu skýrar heim­ildir til beit­ingar þeirra ef aðstæður gefa til­efni til. Verði frum­varpið að lögum verður betur tryggt að Seðla­bank­inn hafi til­tæk nauð­syn­leg tæki til að styðja við fjár­mála­stöð­ug­leika og draga úr alvar­legum rösk­unum í fjár­mála­kerf­inu,“ segir í umsögn Seðla­banka Íslands sem telur mik­il­vægt að frum­varpið nái fram að ganga og mælir ein­dregið með sam­þykkt þess.

Hags­muna­sam­tök heim­il­anna gera ekki athuga­semdir við frum­varpið en í umsögn sam­tak­anna er hnýtt í verð­trygg­ing­una: „Þar sem þau ákvæði laga um fast­eigna­lán til neyt­enda sem frum­varp þetta lýtur að snú­ast um að stuðla að sem mestum fjár­mála­stöð­ug­leika, vilja sam­tökin benda á að besta ein­staka aðgerðin í átt að því mark­miði væri að afnema verð­trygg­ingu slíkra lána með öllu, enda er hún ein stærsta upp­spretta óstöð­ug­leika sem lengi hefur ein­kennt íslenskt fjár­mála­kerfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár