Pinnarnir frá Össuri virka ekki

Vonir voru bundnar við að hægt væri að nýta sýna­tökupinna frá stoð­tækja­fram­leið­and­anum Össuri en sam­kvæmt gæða­út­tekt sem gerð var á þeim í vik­unni virka þeir ekki.

Sýna­tökupinnar frá stoð­tækja­fram­leið­and­anum Össuri, sem hafa verið í prófun hjá Íslenskri erfða­grein­ingu, virka ekki. Frá þessu er greint á RÚV en Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi fyr­ir­tæk­is­ins, stað­festi þetta við frétta­stofu. Hún segir í sam­talið við RÚV þetta vera von­brigði og að nú sé verið að bíða eftir öðrum send­ingum.

Fram kom á blaða­manna­fundi Almanna­varna í gær að færri sýni hefðu verið tekin síð­ustu daga en dag­ana á und­an­ og engin sýni hefðu verið tekin hjá Íslenskri erfða­grein­ingu í tvo sól­ar­hringa. Þetta skýrð­ist af vöntun á sýna­tökupinn­um.

Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir sagð­ist binda vonir við það að fleiri pinnar kæmu til lands­ins í vik­unni en benti einnig á að verið væri að kanna gæði sýna­tökupinna sem stoð­tækja­fyr­ir­tækið Össur á. „Ef það reyn­ist vel þá er hægt að gefa aftur í í sýna­tök­um,“ sagði hann en nú hefur komið í ljós að pinn­arnir virka ekki.

Sex­tíu ný smit greindust í fyrra­dag sem er um 16 ­pró­sent af öllum sýnum sem tekin voru á sama tíma­bili. Þórólfur sagði að erfitt væri að sjá það á þess­ari stundu hvort að við­búið væri að verstu spár um út­breiðslu myndu ræt­ast eða þær bestu. Sveiflan í smitum væri tölu­verð á milli­ daga.

Þórólfur greindi enn fremur frá því á fund­in­um í gær að 60 pró­sent nýrra smita hefðu greinst hjá fólki sem þegar er í sótt­kví. Þetta sagði hann ánægju­legt og styddi enn fremur þær að­gerðir sem gripið hefur verið til hér á landi sem fel­ast í því að greina fljótt, ein­angra smit­aða og beita sótt­kví.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár