Lifir íslenskan snjalltækjaöldina af?

Enda­lokum íslensk­unnar hefur lengi verið spáð en sjaldan hefur hún verið í jafn­mik­illi hættu og nú. Eða hvað? Sér­fræð­ingar í íslenskri mál­fræði kynntu á dög­unum rann­sókn­ar­verk­efni sitt sem gengur út á að kanna áhrif ensku á íslensku í staf­rænum heimi.

Mörg snjalltæki bjóða upp á stýrikerfi á íslensku. Það á þó ekki við um Apple-vörur.
Mörg snjall­tæki bjóða upp á stýri­kerfi á íslensku. Það á þó ekki við um Apple-vörur. Mynd: Bára Huld Beck

Skiptar skoð­anir eru á því hver fram­tíð íslensk­unnar er og hvort hún muni lifa af þær miklu tækni- og sam­fé­lags­breyt­ingar sem orðið hafa á und­an­förnum árum. Þessar breyt­ingar fela meðal ann­ars í sér aukna notkun á snjall­tækjum, áhorf á efni sem ekki er þýtt og svo mætti lengi telja. Einnig má velta fyrir sér hvort íslenskan þoli alþjóða­væð­ing­una og hvort vin­sældir ensku meðal barna og ung­menna hafi sín áhrif.

Eiríkur Rögn­valds­son og Sigríður Sig­ur­jóns­dóttir, pró­fess­orar í íslenskri mál­fræði við Háskóla Íslands, kynntu 1. febr­úar síð­ast­lið­inn verk­efni sitt, Greining á mál­fræði­legum afleið­ingum staf­ræns mál­sam­býlis, sem fjallar um íslensku á tölvu­öld. Í kynn­ing­unni greindu þau frá hugs­an­legum afleið­ingum þess að enska sé notuð í auknum mæli og veltu fyrir sér hvort snjall­tækja­bylt­ing und­an­far­inna ára veiki íslensk­una.

Staðan brothætt

Eiríkur segir að því sé oft haldið fram að íslenska standi sterkt í mál­sam­fé­lag­inu. Menn nefni það oft að staða tungu­máls­ins fari ekki fyrst og fremst eftir fjölda mál­not­enda heldur eftir því hver staða máls­ins er í því sam­fé­lagi sem það er notað. „Vissu­lega er það þannig að mestu leyti að íslenska er notuð á öllum sviðum sam­fé­lags­ins. Hún er notuð í stjórn­kerf­inu, mennta­kerf­inu, verslun og við­skiptum, fjöl­miðlum, menn­ing­ar­líf­inu, á net­inu og í öllum dag­legum sam­skiptum fólks. Og þá spyr maður: Hlýtur hún þá ekki að standa mjög sterkt?“ segir hann.

Það er ástæða til að ætla að íslenska verði fyrir mjög auknu álagi eða þrýst­ingi núna á allra síð­ustu árum, að mati Eiríks. Hann segir að þótt staðan virð­ist góð á yfir­borð­inu þá sé hún brot­hætt og að kannski þurfi ekki mikið til að veikja und­ir­stöð­urnar.

Eiríkur telur að aðstæður og umhverfi tungu­máls­ins hafi breyst mikið á ótrú­lega stuttum tíma. Þar af leið­andi hafi álagið auk­ist og muni aukast á næstu árum. Hann segir að ástæður þess séu utan­að­kom­andi og óvið­ráð­an­legar og teng­ist ýmsum þjóð­fé­lags- og tækni­breyt­ingum.

[quote font="0" align="right“]Við erum flest sítengd við þennan enska menn­ing­ar­heim, sem við erum með í lóf­anum, frá morgni til kvölds[/quote]

Ung börn sett fyrir framan skjáinn

Margt hefur breyst í sam­fé­lag­inu á und­an­förnum árum. Eiríkur segir að í fyrsta lagi megi nefna snjall­tækja­bylt­ing­una. „Við erum flest sítengd við þennan enska menn­ing­ar­heim, sem við erum með í lóf­anum, frá morgni til kvölds,“ segir hann og bætir við að það að horfa á myndir á ensku geti dregið úr venju­legum sam­skiptum á móð­ur­mál­inu.

Hann segir að einnig megi nefna gagn­virka tölvu­leiki. Yngra fólk spili mikið af tölvu­leikjum sem eru und­an­tekn­ing­ar­laust á ensku og að þeir séu margir spil­aðir á net­inu með þátt­tak­endur víða um heim. Og leik­irnir krefj­ist iðu­lega gagn­virkra sam­skipta á ensku.

Í þriðja lagi er vert að tala um, að mati Eiríks, YouTube og Netflix-væð­ing­una. „Við vitum að jafn­vel mjög ung börn eru sett fyrir framan sjón­varp og settir af stað þættir á YouTube eða Netflix á ensku og óþýddir,“ segir hann. Einnig telur hann að ferða­manna­straum­ur­inn skipti miklu máli. Það þurfi ekki annað en að fara niður í bæ til að sjá að allt er stílað upp á ferða­menn. Verð­merkn­ingar í búðum, skilti fyrir utan veit­inga­staði og svo fram­vegis. Og alls konar við­burðir, tón­leikar, sýn­ingar og annað slíkt, mið­ist meira og meira við ferða­menn og enskan sé því orðin mik­il­væg­ari en áður.

Enskan má ekki valta yfir

Fólki með annað móð­ur­mál fer fjölg­andi og heldur sú þróun áfram á næstu árum. Eiríkur bendir á að háskóla­nám fari meira fram á ensku en áður og að nú sé meiri þrýst­ingur að bjóða upp á náms­leiðir og kennslu á ensku vegna skiptinema. Þá sé spurn­ing hvort upp­renn­andi fræði­menn fái næga þjálfun í að tala og skrifa um við­fangs­efni sín á íslensku.

Að sögn Eiríks leikur alþjóða­væð­ingin einnig stórt hlut­verk. Hann segir að breytt heims­mynd geri það að verkum að fólk er hreyf­an­legra en áður og íslenskir ung­lingar sjái ekki fram­tíð sína endi­lega á Íslandi. Þeir sjái margir hverjir fyrir sér að læra, búa og starfa erlendis. Þá nýt­ist íslenskan þeim ekki mikið utan lands­ins og þá vakni sú spurn­ing hvaða áhrif það hafi á við­horf þeirra til íslensk­unnar.

Síðast en ekki síst talar Eiríkur um tal­stýr­ingu tækja. Hann segir að mörg tæki séu orðin tölvu­stýrð og verði á næst­unni stjórnað með tungu­mála­stýr­ingu. Þannig verði hægt að tala við þau og að ann­að­hvort þurfi að kenna tækj­unum íslensku eða fólk­inu ensku.

[quote font="0" align="right“]En allt þetta getur leitt til þess að ensk áhrif komi fram í orða­forða, setn­inga­gerð, beyg­ingum og fram­burði[/quote]

Allar þessar breyt­ingar eru í eðli sínu meira og minna jákvæðar, að mati Eiríks. Hann segir að þetta séu fram­farir að flestu leyti og að ágætt sé að fólk læri ensku sem best. „Það er ekk­ert að því, nema ef það verður til þess að enskan valti yfir íslensk­una. En allt þetta getur leitt til þess að ensk áhrif komi fram í orða­forða, setn­inga­gerð, beyg­ingum og fram­burði,“ segir hann. Þess vegna veltir hann því fyrir sér hvort hætta sé á að íslensk börn hafi ekki nógu mikla íslensku í kringum sig til að þeim tak­ist að byggja upp sterkt og öfl­ugt íslenskt mál­kerfi.

Áreitið meira en áður

Eiríkur segir að búið sé að spá íslensk­unni dauða í 200 ár og spyr sig hvers vegna hún ætti þá að vera í meiri hættu nú en áður. Hann tekur sem dæmi þegar kana­sjón­varpið kom upp úr 1960 en þá voru menn margir hverjir þess full­vissir að íslenskan væri á síð­asta snún­ingi. Þannig hafi þó ekki farið.

Eiríki sýn­ist að nokkur atriði gætu skipt máli núna og valdið því að tungu­málið sé í meiri hættu en fyrr. Hann nefnir í fyrsta lagi að áreitið sé meira og víð­tækara en áður og að enskan sé meira áber­andi á fleiri sviðum en nokkru sinni fyrr. Hann segir í öðru lagi að þetta enska máláreiti nái til yngri barna en áður í gegnum snjall­tæki, sjón­varps­á­horf og fleira. Í þriðja lagi sé gagn­virknin meiri sem margir telja að skipti máli. Ensku­notkun barna og ung­linga sé þannig orðin mikið gagn­virk­ari og þau noti ensk­una í sam­skiptum í tölvu­leikjum og svo fram­vegis.

Íslenskan örugg – eða hvað?

Samkvæmt kvarða UNESCO frá 2003 er íslenskan talin örugg. Tungu­málið er talað af öllum kyn­slóðum og flutn­ingur máls­ins milli kyn­slóða er ótrufl­aður. Eiríkur veltir því fyrir sér hvort eitt­hvað sé að ger­ast núna sem gæti breytt því. „Og svo má velta því fyrir sér hvort þessir kvarðar taki til­lit til tækni- og sam­fé­lags­breyt­inga sem eiga sér stað um þessar mundir,“ segir hann.

En þrátt fyrir að vera talin örugg þá er vert að spyrja hvort íslenskan eigi mögu­leika á staf­rænu lífi og hvort hún muni lifa af í staf­rænum heimi. Til þess verður að vera hægt að nota hana í raf­rænum sam­skiptum. Eiríkur segir að ekki sé vitað hver tengsl svo­kall­aðs staf­ræns dauða og raun­veru­legs dauða tungu­máls séu.

Hann bendir aftur á móti á nokkrar vís­bend­ingar þess. Í fyrsta lagi sé það hættu­merki þegar önnur mál taka yfir heilt svið í tungu­mál­inu, til dæmis í við­skiptum. Í öðru lagi skipti máli að borin sé virð­ing fyrir tungu­mál­inu en þetta kemur sér­stak­lega fram í við­horfum yngri kyn­slóð­anna. Í þriðja lagi þegar fólk skilur eldri kyn­slóð­ina en notar sjálft mjög ein­faldað mál­kerfi, setn­inga­gerð og minni beyg­ingar.

Samskipti skipta öllu máli

Fólk er sér­stak­lega næmt fyrir mál­töku á unga aldri og lýkur því tíma­bili við kyn­þroska­ald­ur­inn. Þetta segir Sigríður Sig­ur­jóns­dóttir, annar for­svars­maður verk­efn­is­ins, og bendir hún einnig á að mál­taka ger­ist ósjálfrátt á þessu tíma­bili en sá hæfi­leiki hverfi síðan við kyn­þroska. Hún segir að lítil börn geti ekki annað, ef þau eru heil­brigð og umhverfi eðli­legt, en að taka mál. Eftir kyn­þroska­ald­ur­inn sé miklu erf­ið­ara að læra tungu­mál og fólk þurfi virki­lega að leggja sig fram. Hún segir einnig að börn virð­ist vera mót­tæki­leg­ust fyrir máli í upp­hafi mál­töku­skeiðs­ins og til þess að ná fullu valdi á móð­ur­máli eða öðru máli þá þurfi máltakan yfir­leitt að fara fram fyrir sex til níu ára aldur.

[quote font="0" align="right“]Við vitum að móð­ur­mál og annað mál þró­ast hjá börnum á mál­töku­aldri í sam­skiptum við for­eldra og aðra í nán­asta umhverfi[/quote]

Að sögn Sigríðar bygg­ist þetta þó ekki ein­göngu á líf­fræði­legum þáttum því umhverfið skiptir einnig máli. „Því læra börnin málið að það er fyrir þeim haft“ segir mál­tækið og á vel við hér, að hennar mati. „Við vitum að móð­ur­mál og annað mál þró­ast hjá börnum á mál­töku­aldri í sam­skiptum við for­eldra og aðra í nán­asta umhverfi,“ segir hún og bætir við að þess vegna skipti sam­skipti öllu máli. Hún segir að málið spetti fram sjálf­krafa á þessum aldri en börn verði að skipt­ast á orðum í sam­tölum og mynda félags­leg tengsl. Tengsla­myndun verði að eiga sér stað til þess að börn myndi sér mál.

Börn læra ekki málið af sjónvarpi

Gerðar hafa verið rann­sóknir á því hvort börn geti lært mál af sjón­varpi og það virð­ist ekki ganga. Sigríður segir að börn geti hugs­an­lega bætt við orða­forða sinn en rann­sóknir bendi til að á heim­ilum þar sem kveikt er á sjón­varp­inu með talið á allan dag­inn séu börn seinni til máls. Það hægi á mál­töku miðað við börn sem alast ekki upp við slíkt. „Skýr­ingin er sú að sam­skiptin eru minni þar sem horft og hlustað er mikið á sjón­varp og fólk talar síður saman,“ segir hún.

Mannleg sam­skipti og málörvun eru því mjög mik­il­væg fyrir mál­töku, að mati Sigríðar. Hún segir að inni­halds­rík mann­leg sam­skipti á fyrstu ævi­ár­unum séu nauð­syn­leg for­senda þess að börn nái valdi á máli. Og fyrstu sex árin séu mjög mik­il­væg til að efla mál­þroska og mál­skiln­ing barna. Þá sé gott að börn hafi góðar mál­fyr­ir­myndir og fái nauð­syn­lega málörvun. Heil­brigð börn sem alist upp við góðar aðstæður læri málið sjálf­krafa en hún segir að mál­kenndin mót­ist í æsku og erfitt sé að breyta því sem mótað hefur verið síðar meir. Hún telur að gamla mál­tækið eigi því vel við: Lengi býr að fyrstu gerð.

Snjalltækjanotkun getur hægt á málþroska

Börnin bera íslensk­una áfram til kom­andi kyn­slóða. „Það má segja að yngstu börnin séu mik­il­væg­ust í þess­ari keðju því þau eru mót­tæki­leg­ust fyrir mál­inu,“ segir Sigríður. En hvaða áhrif hafa snjall­tæki og staf­rænir miðlar á mál­töku barna og þróun og fram­tíð íslensk­unnar? Svarið er marg­þætt og ekki ein­falt að mati Sigríðar. Hún segir að margt jákvætt sé við snjall­tækja­þró­un­ina, að börn geti til dæmis nýtt og eflt sköp­un­ar­gáfu sína og öðl­ast nýja þekk­ingu í gegnum tækin.

[quote font="0" align="right“]Annars vegar þarf að tala við börn og hlusta á þau til að þau myndi sér mál. Og snjall­tækja­væð­ingin getur truflað mál­töku barna ef hún veldur því að full­orðnir og börn tala það lítið saman að börnin fá ekki nauð­syn­legt máláreiti[/quote]

En þró­unin hefur líka ákveðnar hættur í för með sér að mati Sigríðar. „Annars vegar þarf að tala við börn og hlusta á þau til að þau myndi sér mál. Og snjall­tækja­væð­ingin getur truflað mál­töku barna ef hún veldur því að full­orðnir og börn tala það lítið saman að börnin fá ekki nauð­syn­legt máláreiti,“ segir hún. Börn þurfi að heyra íslensku í umhverf­inu, eins og áður hefur komið fram, til að byggja upp sterka mál­kennd. Þess vegna sé ekki gott fyrir mál­þroska barna að for­eldrar séu mikið í snjall­tækjum ef það kemur í veg fyrir að þeir tali við börn sín.

Börn byrja ung að nota netið

Hins vegar er það aukin notkun ensku sem Sigríður hefur áhyggjur af. Hún segir að aukið ensku­áreiti á mál­töku­skeiði barna geti valdið breyt­ingum á gerð og stöðu íslensk­unnar. Það geti leitt til ófull­kom­innar mál­töku barna eða jafn­vel tví­tyngis. Sigríður nefnir að árið 2013 var gerð könnun á því hvenær íslensk börn byrja að nota netið en í henni kom í ljós að flest íslensk börn byrja að nota netið á aldr­inum fimm til átta ára. Sum byrja fjög­urra ára eða yngri og vekur það athygli í þess­ari könnun að fleiri börn í fjórða og fimmta bekk en í sjötta til tíunda bekk í grunn­skóla byrj­uðu þá að nota netið. Þannig að þró­unin virð­ist vera sú að börn byrji fyrr að nota netið nú en áður.

Sigríður telur að þessi þróun geti verið fyrsta skrefið í tungu­mála­dauða. Breyt­ingar á mál­kunn­áttu eru alvar­legri að hennar mati en breyt­ingar á orða­forða. Hún segir að vegna þess að erfitt sé að breyta mál­kunn­áttu seinna meir geti gerð íslensk­unnar breyst og hugs­an­lega hafi jákvætt við­horf til ensku þar sitt að segja.

[quote font="0" align="right“]Ef móð­ur­málið er veikt þá verður kunn­átta í öðru máli líka veik. Þetta er allt sam­tengt[/quote]

„Það verður að tala við börn svo þau myndi sér mál,“ bendir Sigríður á. Og hún segir einnig að það sé á ábyrgð for­eldra og for­ráða­manna en ekki ein­ungis umönn­un­ar­að­ila og kenn­ara að gera slíkt. Nauð­syn­legt sé einnig að skapa góðan grunn í íslensk­unni því án hans sé mun erf­ið­ara að læra önnur tungu­mál. „Ef móð­ur­málið er veikt þá verður kunn­átta í öðru máli líka veik. Þetta er allt sam­tengt,“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár