Þúsundir gengu úr þjóðkirkjunni á síðustu mánuðum ársins 2017

Alls sögðu 3.738 íslenskir rík­is­borg­arar sig úr þjóð­kirkj­unni í fyrra. Þorri þeirra gerði það á síð­ustu mán­uðum árs­ins eftir að biskup lét umdeild ummæli um notkun fjöl­miðla á gögnum falla og kjara­ráð ákvað að hækka laun hennar um tugi pró­senta.

Agnes M. Sigurðardóttir er biskup þjóðkirkju Íslands.
Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir er biskup þjóð­kirkju Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls sögðu 2.477 sig úr þjóð­kirkj­unni á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins 2017. Á sama tíma­bili gengu 231 í hana. Því gengu 2.246 fleiri lands­menn úr þjóð­kirkj­unni en í hana á tíma­bil­inu. Þegar allt árið 2017 er skoðað kemur í ljós að 3.738 sögðu sig úr þjóð­kirkj­unni, þar af 60 pró­sent á síð­ustu mán­uðum árs­ins. Á sama tíma­bili gengu 719 manns í kirkj­una. Þegnum hennar fækk­aði því um 3.019 á síð­asta ári.

[links]Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Þjóðskrá Íslands um breyt­ingar á trú- og líf­skoð­un­ar­fé­lags­að­ild á síð­asta árs­fjórð­ungi 2017.

Ekki siðferðislega rétt að stela gögnum og tugprósenta launahækkun

Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands og leið­togi þjóð­kirkj­unnar, rataði tví­vegis í fréttir á síð­ustu mán­uðum árs­ins 2017 vegna mála sem þóttu umdeild. Fyrst sagði hún í sam­tali við Morg­un­blaðið að henni þætti ekki sið­ferð­is­lega rétt að stela gögnum og fara á bak við fólk til að afhjúpa mál og leiða sann­leik­ann í ljós. Þessi ummæli féllu í sam­hengi við lög­bann sem Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafði sam­þykkt gagn­vart fjöl­miðla­fyr­ir­tækj­unum Stund­inni og Reykja­vík Media, vegna birt­ingar þeirra á fréttum sem unnar voru úr gögnum úr gamla Glitni.

[adspot]Síðara málið sem kom upp var í des­em­ber, þegar kjara­ráð ákvað að hækka laun Agnesar um tugi pró­senta. Heild­ar­laun hennar eftir hækk­un­ina eru 1.553.359 krónur. Hækk­unin var auk þess aft­ur­virk til 1. jan­úar 2017, sam­kvæmt úrskurð­in­um. Um ára­mót fékk því bisk­upein­greiðslu fyrir síð­asta árið en sú upp­hæð nemur 3,3 millj­ónir króna. Hækkunin kom í kjöl­far bréfs sem biskup sendi kjara­ráði þar sem ýmis rök voru færð fyrir því að hún ætti að fá launa­hækkun. Sér­stak­lega var til­greint að biskup greiddi nú húsa­leigu fyrir afnot af emb­ætt­is­bú­stað sem henni er skylt að búa í. Í Frétta­blað­inu þann 28. des­em­ber var greint frá því að leigan fyrir bisk­ups­bú­stað­inn, sem er 487 fer­metra hús í mið­borg Reykja­víkur, væri tæp­lega 90 þús­und krónur á mán­uði.

Yfir eitt hundrað þúsund utan þjóðkirkju

Frá árinu 2009 hefur fjöldi þeirra sem skráðir eru í þjóð­kirkj­unni dreg­ist saman á hverju ein­asta ári. Í byrjun árs 2017 voru þeir 236.481 tals­ins, sem þýddi að undir 70 pró­sent þjóð­ar­innar væri í kirkj­unni.

Nú eru þeir 233.462 og fækk­aði, líkt og áður sagði, um 3.019 á síð­asta ári. Alls sögðu 3.738 manns sig úr kirkj­unni á árinu 2017.

Það er næst­mesti fjöldi sem hefur sagt sig úr kirkj­unni á einu ári. Metið var sett á árinu 2010, þegar ásak­anir um þöggun þjóð­kirkj­unnar yfir meintum kyn­ferð­is­glæpum Ólafs Skúla­sonar, fyrr­ver­andi bisk­ups, voru settar fram. Þá fækk­aði um 4.242 í þjóð­kirkj­unni á einu ári.

Þegnum kirkj­unnar hefur fækkað mjög hlut­­falls­­lega á und­an­­förnum árum. Árið 1992 voru 92,2 pró­­­­sent lands­­­­manna skráðir í hana. Á árunum fyrir hrun fjölg­aði alltaf lít­il­­lega í hópi þeirra sem skráðir voru í þjóð­­kirkj­una á milli ára þótt þeim Íslend­ingum sem fylgdu rík­­is­­trúnni fækk­­aði alltaf hlut­­falls­­lega. Ein ástæða þess er að skipu­lagið hér­­­­­lendis var lengi vel þannig að nýfædd börn voru ætið skráð í trú­­­­fé­lag móð­­­­ur. Það þurfti því sér­­­­stak­­­­lega að skrá sig úr trú­­­­fé­lagi í stað þess að skrá sig inn í það. Þessu var breytt árið 2013 og nú þurfa báðir for­eldrar að til­­heyra sama trú- og lífs­­skoð­un­­ar­­fé­lagi til að barnið sé skráð í félag, ann­­ars skrá­ist barnið utan­ ­trú­­fé­laga.

Frá árinu 2009 hefur með­­limum þjóð­­kirkj­unnar fækkað á hverju ári. Þeir voru 236.260 í byrjun árs 2017, eða 69,9 pró­­sent mann­­fjöld­ans. Það var í fyrsta sinn síðan að mæl­ingar hófust sem að fjöldi með­­lima hennar fer undir 70 pró­­sent mann­­fjöld­ans.

Miðað við mann­fjölda­tölur í lok þriðja árs­fjórð­ungs síð­asta árs eru nú 69 pró­sent þjóð­ar­innar í þjóð­kirkj­unni.

Þeim íslensku rík­­­­is­­­­borg­­­­urum sem kusu að standa utan þjóð­­­­kirkj­unnar voru 30.700 um síð­­­­­­­ustu ald­­­­ar­­­­mót. Þeir eru nú yfir eitt hund­rað þús­und. Fjöldi þeirra hefur því rúm­lega þre­fald­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár