Skora á stjórnvöld að endurskoða niðurskurð til Hafrannsóknarstofnunar

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, Sjó­manna­sam­band Íslands, VM - Félag vél­stjóra og málm­tækni­manna og Félag skips­stjórn­ar­manna skora á stjórn­völd að end­ur­skoða hið fyrsta fyr­ir­hug­aðan nið­ur­skurð á fjár­fram­lagi til Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar.

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Sjómannasamband Íslands, VM - Félag vélstjóra og málmtæknimanna og Félag skipstjórnarmanna skora á stjórnvöld að endurskoða hið fyrsta fyrirhugaðan niðurskuðri á fjárframlagi til Hafrannsóknarstofnunar. „Sú ákvörðum er skammsýni. Það eru miklu meiri heildarhagsmunir fólgnir í því að styðja við og efla rannsóknir en að stefna þeim í voða. Þannig rísum við undir þeirri ábyrgð sem okkur er falin í umgengni við sjóinn.“ segir í tilkynningu frá samtökunum.

Án rannsókna myndu menn renna blint í sjóinn

Í tilkynningunni segir að sá árangur sem náðst hefur í fiskveiðistjórnin á Íslandsmiðum grundvallist á rannsóknum. „Án þeirra myndu menn renna blint í sjóinn, í bókstaflegri merkingu. Margir stofnar við Ísland eru nýttir á sjálfbæran hátt. Stærri fiskistofnar leiða til þess að hægara verður að veiða fiskinn og veiðarnar verða umhverfisvænni.“

Jafnframt segir í tilkynningunni að menn víða um heim líti til reynslu Íslendinga af stjórn fiskveiða en þar hafi Hafrannsóknarstofnun verið í forystu- og lykilhlutverki að byggja þá stjórn á vísindalegri nálgun. Því ættu Íslendingar að vera stoltir af framlagi hennar og því er nauðsyn og skylda að hlúa að stofnuninni. Nú hafi hins vegar verið boðuð verulega skert fjárframlög til stofnunarinnar. Því segja samtökin að það sé óskiljanlegt að stjórnvöld hyggjast draga svo úr máttinn úr stofnuninni að henni verði í raun meinað að sinna þeim grundvallarrannsóknum, sem sjósókn Íslendinga byggist á.

Íslenskur sjávarútvegur greiðir tugi milljarða til hins opinbera

Samtökin benda á að skerðing fjármuna veki ekki síst furðu í ljósi þess að íslenskur sjávarútvegur í heild sinni greiði tugi milljarða til hins opinbera á ári hverju. Veiðigjaldið nam hátt í 11,5 milljörðum króna í fyrra en lögum samkvæmt er gjaldinu, meðal annars, ætlað að standa undir kostnaði ríkisins við rannsóknir, stjórn, eftirlit og umsjón með fiskveiðum og fiskvinnslu. „Það er því miður að löggjafinn fylgi ekki þeirri reglu sem hann sjálfur hefur sett,“ segir í tilkynningunni.

Á sérstökum hátíðarfundi Alþingis í sumar var samþykkt tillaga til þingsályktunar um að láta smíða hafrannsóknarskip. Í greinargerðinni með ályktuninni segir að meginforsenda þess að Íslendingar geti tekist á við þær breytingar sem eiga sér nú stað á umhverfi hafsins og vistkerfi þess séu viðamiklar haf- og fiskirannsóknir, þ.m.t. reglulegar stofnmælingar á helstu nytjastofnum. Því sé nauðsynlegt til að nýtingin sé sjálfbær og hún sé byggð á bestu fáanlegu þekkingu.

Jafnframt segir í greinargerðinni að „Íslendingar þurfa að ráða yfir góðum og vel búnum rannsóknaskipum sem geta sinnt haf- og umhverfisrannsóknum, eru vel búin til bergmálsmælinga á uppsjávarstofnum, útbúin veiðarfærum til rannsókna á stofnum í upp-, mið- og botnsjó auk þess að geta rannsakað umhverfi með myndavélum og fjölgeislamæli. Þá eru rannsóknaskipin mikilvægur vettvangur kennslu og rannsókna fyrir háskólanema og til uppfræðslu á öðrum skólastigum.“

Samtökin fjögur taka undir það sem kemur fram í greinargerðinni og skora á stjórnvöld að endurskoða niðurskurð sinn til Hafrannsóknarstofnunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár