Ósátt við frétt um einelti og segja hana ranga

Svein­fríður Olga Vet­ur­liða­dóttir, skóla­stjóri grunn­skól­ans á Ísafirði, gagn­rýnir harð­lega DV vegna fréttar um ein­elti í bæj­ar­fé­lag­inu sem byggði á óbeinni heim­ild. Móðir drengs­ins segir að honum hafi sárnað við frétt­ina.

Svein­fríður Olga Vet­ur­liða­dóttir, skóla­stjóri grunn­skól­ans á Ísafirði, er harð­orð vegna fréttar um ein­elti gegn ungum dreng í bænum, sem byggð var á einni óbeinni heim­ild. Hún segir efni frétt­ar­innar rangt. Fréttin var ein mest lesna frétt dv.is í síð­ustu viku.

Frétt DV á laug­ar­dag­inn síð­ast­lið­inn fjall­aði um að ungur drengur í bænum hefði verið lagður í ein­elti með þeim hætti að krakkar í bænum hefðu snið­gengið afmæl­is­veislu hans. Fréttin byggði alfarið á frá­sögn eins íbúa á Ísafirði, en eig­in­kona manns­ins er skyld drengnum. 

Stundin náði tali af móður drengs­ins sem um ræðir og segir hún að ekk­ert ein­elti hafi átt sér stað. „Hann hefur ekki orðið fyrir ein­elti í skóla. Það kom eitt til­vik upp fyrir nokkrum árum síðan en það var lagað á þremur dögum,“ segir móðir drengs­ins.

Hún segir að allt það helsta sem skipti máli hafi komið fram í til­kynn­ingu sem for­eldrar nem­enda í 10. bekk, kenn­arar og stjórn­endur grunn­skóla Ísa­fjarðar sendu frá sér í gær. Hún segir þó að sér og syni sínum hafi veru­lega sárnað frétt DV og þá sér í lagi athuga­semdir við hana. „Mér sárn­aði þetta og hann sá DV-frétt­ina og fór að lesa kommentin. Þá kall­aði hann í mig og spurði hágrát­andi: „er þetta virki­lega ég sem er verið að tala um?““ segir móðir drengs­ins.

Frétt DV á laug­ar­dag­inn síð­ast­lið­inn fjall­aði um að ungur drengur í bænum hefði verið lagður í ein­elti með þeim hætti að krakkar í bænum hefðu snið­gengið afmæl­is­veislu hans. Fréttin byggði alfarið á frá­sögn eins íbúa á Ísafirði, en eig­in­kona manns­ins er skyld drengnum. 

Stundin náði tali af móður drengs­ins sem um ræðir og segir hún að ekk­ert ein­elti hafi átt sér stað. „Hann hefur ekki orðið fyrir ein­elti í skóla. Það kom eitt til­vik upp fyrir nokkrum árum síðan en það var lagað á þremur dögum,“ segir móðir drengs­ins. 

Hún segir að allt það helsta sem skipti máli hafi komið fram í til­kynn­ingu sem for­eldrar nem­enda í 10. bekk, kenn­arar og stjórn­endur grunn­skóla Ísa­fjarðar sendu frá sér í gær. Hún segir þó að sér og syni sínum hafi veru­lega sárnað frétt DV og þá sér í lagi athuga­semdir við hana. „Mér sárn­aði þetta og hann sá DV frétt­ina og fór að lesa kommentin. Þá kall­aði hann í mig og spurði hágrát­andi: „er þetta virki­lega ég sem er verið að tala um?“,“ segir móðir drengs­ins.

Fréttin beinlínis röng

Svein­fríður Olga segir að eftir að hafa rætt við móður drengs­ins sé ekk­ert sem bendi til þess að ein­elti hafi átt sér stað. Að sögn hennar er fréttin bein­línis röng, öll for­föll í afmæli drengs­ins hafi átt sér eðli­legar skýr­ingar. Hún segir að börnin í grunn­skól­anum séu miður sín eftir frétta­flutn­ing­inn.

Fyr­ir­sögn frétt­ar­innar er: „Einelti á Ísafirði: Enginn mætti í afmæli ungs pilts“. Að sögn for­eldra og skóla­stjórn­enda er fyr­ir­sögnin röng, þar sem ekki hafi verið um ein­elti að ræða og ekki sé rétt að eng­inn hafi mætt í afmælið, þótt for­föll hafi orðið af eðli­legum ástæðum, að þeirra sögn. DV hefur ekki leið­rétt frétt­ina eða fyr­ir­sögn­ina, en vísað til þess að rætt hafi verið við mann­inn sem sagði frá ein­elt­inu í Facebook-status, og að hann hafi stað­fest að hafa skrifað status­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár