Vill leyfa heimabruggun áfengis

Helgi Hrafn Gunn­ars­son þing­maður Pírata hefur lagt fram frum­varp um afnám banns við heima­bruggun. Segir áfeng­is­neyslu rót­gró­inn hluta af íslenskri menn­ingu.

Helgi Hrafn Gunn­ars­son þing­maður Pírata tal­aði í dag fyrir afnámi á banni við heima­bruggun áfengis til einka­neyslu.

Helgi hefur lagt frum­varpið fram áður án þess að það hafi hlotið afgreiðslu.

Í frum­varp­inu kemur fram að fram­leiðsla áfengis sé sam­kvæmt núgild­andi lögum heimil í atvinnu­skyni með leyfi útgefnu af rík­is­lög­reglu­stjóra. Hins vegar sé fram­leiðsla áfengis til einka­neyslu með öllu óheimil.

Helgi Hrafn og með­flutn­ings­menn hans á frum­varp­inu halda því fram í grein­ar­gerð sem því fylgir að áfeng­is­neysla sé rót­gró­inn hluti af íslenskri menn­ingu. Hann segir að þrátt fyrir bannið hafi fram­leiðsla áfengis til einka­neyslu tíðkast mjög víða og mjög lengi í sam­fé­lag­inu án þess að tekið hafi verið á þeim brotum. „Þvert á móti hefur á und­an­förnum árum orðið til rík menn­ing heima­brugg­unar, en athygli vekur að fólk sem stundar heima­bruggun gerir jafnan enga til­raun til að fela hana.“ Að auki segir að lítil með­vit­und virð­ist vera um að athæfið sé yfir­leitt bannað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár