Hnýta í fjölmiðla vegna afmælis Framsóknarflokksins

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­maður hans, hefur boðið Fram­sókn­ar­mönnum í kjör­dæmi hans til veislu á Akureyri í til­efni af 100 ára afmæli flokks­ins. Veislan fer fram á sama tíma og 100 ára afmæl­is­há­tíð flokks­ins fer fram í Þjóð­leik­hús­inu, næst­kom­andi föstu­dags­kvöld.

Fjöl­miðlar hafa sagt frá þess­ari veislu Sig­mundar Davíðs, og hafa greint frá því að óánægja sé með þetta útspil Sig­mundar Davíðs og því velt upp hvort þetta jafn­gildi úrsögn hans úr flokknum. Hann vísar þessu á bug í færslu á Facebook-síðu sinni.

Sig­mundur Davíð talar um frétta­flutn­ing Vísis af mál­inu sér­stak­lega og segir að þar hafi birst „dæma­laust vit­laus „frétt“ eða rit­gerð á Vísi sem virð­ist fyrst og fremst snú­ast um hug­renn­ingar eða skoð­anir blaða­manns­ins. 100 ára stjórn­mála­flokkur ætti að sjá í gegnum slíkt.“ Sig­mundur Davíð listar einnig upp ýmsa við­burði sem haldnir verði vegna afmæl­is­ins, meðal ann­ars þann sem hann hefur boðið til á Akureyri.

Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, gagn­rýnir einnig frétta­flutn­ing af mál­inu, og segir að vef­síðan kaffid.is, sem sagði fyrst frá veislu­höldum Sig­mundar Davíðs, sé „kjafta­síða.“ Því sé stillt upp sem stríðs­yf­ir­lýs­ingu Sig­mundar að halda veisl­una, en „þá er vænt­an­lega skollin á heims­styrj­öld því fram­sókn­ar­menn í Skaga­firði halda uppá þetta merka afmæli sama dag.“ Hann og Elsa Lára, þing­menn flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, hafi boðað komu sína norður „og ekki erum við á leið úr flokknum. Lengi var óljóst hvernig hátíð­ar­höldum flokks­ins yrði háttað og skila­boðin sem komu frá for­manni flokks­ins voru þau að gera sem mest úr deg­inum sem víð­ast! Það er í raun ótrú­legt að fjöl­miðlar skuli hlaupa á eftir kjafta­gangi og bulli,“ skrifar Gunnar Bragi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár