Alþjóðaheilbrigðisstofnunin á hæsta viðbúnaðarstig vegna apabólu

Yfir 16 þús­und apa­bólu­til­felli hafa verið greind í 75 löndum. Vonir standa til að hækkun við­bún­að­ar­stigs muni flýta þróun bólu­efna og stuðla að því að tak­mark­anir verði teknar upp til að hindra för veirunnar.

Dr. Tedros Adhanom Ghebreyesus er forstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, WHO.
Dr. Tedros Adhanom Ghebr­eyesus er for­stjóri Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar, WHO. Mynd: EPA

Faraldur apa­bólu hefur verið skil­greindur sem heilsu­far­s­vanda­mál sem heims­byggð­inni stafar hætta af. Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin (WHO) hefur lýst yfir hæsta við­bún­að­ar­stigi af þessum sökum en mikil fjölgun hefur orðið á greindum til­fellum apa­bólu að und­an­förnu.

Neyð­ar­nefnd WHO kom saman í annað sinn vegna far­ald­urs apa­bólu og hækk­aði við­bún­að­ar­stig sitt í kjöl­far fund­ar­ins. Að sögn T​​edros Adhanom Ghebr­eyesus, for­stjóra WHO, hafa yfir 16 þús­und til­felli nú verið greind í 75 löndum. Fimm hafa lát­ist af völdum apa­bólu.

Evrópubúum meiri hætta búin en öðrum

Á vef BBC segir að ekki hafi ríkt ein­hugur innan neyð­ar­nefnd­ar­innar um að færa við­bún­að­ar­stig í hæsta flokk. Dr. Ghebr­eyesus taldi það aftur á móti nauð­syn­legt vegna þess hversu hröð dreif­ing veirunnar hefur verið og vegna þess að málið snerti heims­byggð­ina alla.

„WHO metur það sem svo að hætta af apa­bólu sé í með­al­lagi á öllum svæðum heims­ins, fyrir utan Evrópu, en þar metum við hætt­una vera mikla,“ er haft eftir Dr. Ghebr­eyesus. Hætta sé á að dreif­ing muni aukast en í kjöl­far auk­ins við­bún­aðar er við­búið að þróun bólu­efna verði hrað­ari auk þess sem við­bún­að­ar­stigið stuðli að því að teknar verði upp tak­mark­anir sem hefti för veirunnar.

Smánun og mismunun geti verið hættuleg

WHO mun gefa út leið­bein­ingar varð­andi tak­mark­anir og von­ast stjórn­endur WHO til þess að lönd taki þær upp til að vernda við­kvæma hópa og koma í veg fyrir mikla útbreiðslu veirunnar.

Dr. Ghebr­eyesus sagði að mest væri um smit meðal karla sem hafa átt í nánum sam­böndum við karla og þá sér­stak­lega meðal karla sem eigi marga rekkju­nauta. Hann bætti því við að lönd heims­ins þyrftu ráð­ast í aðgerðir til þess að vernda heilsu þeirra, mann­rétt­indi og virð­ingu. „Smánun og mis­munun geta verið alveg jafn hættu­leg og hver önnur veira,“ sagði Dr. Ghebr­eyesus.

Níu smitast á Ísland

Í það minnsta níu manns hafa greinst með apa­bólu hér á landi. Á mið­viku­dag sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir í sam­tali við frétta­stofu RÚV að engar vís­bend­ingar væru um að far­aldur apa­bólu væri í rénun og að von væri á bólu­efni gegn veirunni frá Danmörku.

„Við erum að fá bólu­efni sem Danir eru að lána okkur, 40 skammta, og Land­spít­al­inn mun sjá um bólu­setn­ing­una. Síðan erum við ennþá að bíða eftir fleiri skömmtum frá Evr­ópu­sam­band­inu. Það er ekki ljóst hvenær þeir koma en ég held að það farist nú að stytt­ast mjög í það,“ sagði Þórólfur í við­tali við RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

apabóla

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár