Ályktar að varðhundar lífeyrissjóðakerfisins séu haldnir „Ponzi heilkennum“

Formaður VR segir að varla nokkrum manni detti í hug að líf­eyr­is­sjóðum lands­ins muni takast að standa við þau lof­orð um líf­eyr­is­greiðslur sem gefin hafa verið, ætli þeir sér að reiða sig alfarið á mark­aðs­legar for­sendur.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að sterkar vís­bend­ingar séu um að íslenska líf­eyr­is­kerfið sé offjár­magnað og að það detti varla nokkrum manni í hug að líf­eyr­is­sjóð­unum tak­ist að standa við þau lof­orð um líf­eyr­is­greiðslur sem gefin hafa verið með því að reiða sig alfarið á mark­aðs­legar for­sendur. „Af orð­ræð­unni að dæma má því álykta að helstu varð­hundar núver­andi kerfis séu haldnir ein­hvers­konar Ponzi heil­kennum.“

Þetta kemur fram í langri stöðu­upp­færslu Ragnars Þórs á Facebook þar sem hann fer yfir stöðu líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins. VR skipar helm­ing stjórn­ar­manna í stjórn næst stærsta líf­eyr­is­sjóð lands­ins, Líf­eyr­is­sjóð verzlunarmanna.

[adspot]Tilefni skrifa Ragnars Þórs eru nýjar tölur sem birtar voru í síð­ustu viku og sýna að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafi átt um 4.700 millj­arða króna í lok júní. Eignir sjóð­anna hafa sam­eig­in­lega auk­ist um 570 millj­arða króna það sem af er ári. Þar af eru inn­lendar eignir þeirra 3.351 millj­arðar króna. Aukning á virði eigna sjóð­anna er að mestu til­komin vegna þess að eignir þeirra hafa hækkað í virði, þótt hluti upp­hæð­ar­innar sé vita­skuld vegna inn­greiðslna sjóðs­fé­laga til þeirra. Sú eign sem hefur hækkað mest í verði á árinu eru hluta­bréf í Marel, en mark­aðsvirði þess félags er nú 58 pró­sent meira en það var í byrjun árs. Mark­aðsvirði Marel er nú 448 millj­arðar króna og hefur auk­ist um 165 millj­arða króna frá ára­mótum. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Gildi Líf­eyr­is­sjóður eru á meðal stærstu hlut­hafa í Marel, með sitt hvorn fimm pró­sent eign­ar­hlut­inn. Auk þess eiga aðrir sjóðir smærri hluti í félag­inu.

Hagkerfið þarf að standa undir of hárri ávöxtunarkröfu

Ragnar Þór segir að reiknuð ávöxt­un­ar­krafa sjóð­anna sé 3,5 pró­sent og að ef hún stand­ist þá telji sjóð­irnir sig geta staðið undir 74-76 pró­sent af með­al­launa­rétt­indum. „Þetta þýðir að hag­kerfið, fyirr­tækin og ein­stak­lingar, þurfa að standa undir ríf­lega 117 millj­arða ávöxt­un­ar­kröfu sjóð­anna sem er til við­bótar þeim 170 millj­örðum sem tekin eru í iðgjöld á ári hverju og fer hækk­andi. Miklar inn­lendar eignir sjóð­anna gera því ríka kröfu á aukna arð­semi af inn­lendum fjár­fest­ingum þeirra. Þetta skilar sér í hærri vöxtum (minni lækkun). Þó mark­aðsvextir hafi lækkað mikið und­an­farið hafa líf­eyr­is­sjóðir aukið gríð­ar­lega álagn­ingu sína ofan á mark­aðsvexti, þó svo þeir hafi lækkað mikið hefur lækk­unin því aðeins skilað sér að hluta til neyt­enda ekk­ert ósvipað því og olíu­fé­lögin gera þar sem ávinn­ingur af geng­is­styrk­ingu og lækkun á heims­mark­aði virð­ist skila sér seint og illa til neyt­enda öfugt við það þegar þró­unin er í hina átt­ina.“

[adspot]Há ávöxt­un­ar­krafa hafi því nei­kvæð áhrif á vöru­verð, vexti, kaup­mátt og kostnað fyr­ir­tækja. „Þetta myndar hvata til að halda launum niðri og álagn­ingu uppi. Aukin áhættu­sækni í stað þess að fjár­festa í innviðum og leggja áherslu á lífs­gæði og kaup­mátt allra sjóð­fé­laga, alla ævi, í stað þess að ein­blína ein­göngu á hug­mynda­fræði sem margt bendi til að sé komin í þrot.

Sjóð­irnir hafa samt aukið erlendar eignir sínar, sem er tví­eggja sverð, þar sem rekja má veik­ingu krón­unnar síð­asta árs til auk­inna umsvifa líf­eyr­is­sjóða í erlendum fjar­fest­ingum. Veik­ingin skilar sér svo hærra vöru­verði og lægri kaup­mætti greið­andi og þiggj­andi sjóð­fé­laga.“

Margir spenar sjúga fast

Ragnar Þór gagn­rýnir einnig yfir­bygg­ingu og rekstr­ar­kostnað sjóð­anna, en í dag eru alls 22 sjóður með aðild að Lands­sam­bandi líf­eyr­is­sjóða. Það telur Ragnar Þór vera allt of háa tölu og að það sé „galið“ af 360 þús­und manna þjóða að vera með slíka yfir­bygg­ingu. „Sem dæmi má nefna að árið 2016 greiddu 11 stærstu líf­eyr­is­sjóð­irnir 43 æðstu stjórn­endum sínum ásamt stjórn­ar­mönnum rúm­lega 940 millj­ónir í laun. Árið 2018 var þessi sami kostn­aður kom­inn yfir einn millj­arð. Annar rekstr­ar­kostn­aður ásamt upp­gefnum og áætl­uðum fjár­fest­ing­ar­gjöldum nam rúm­lega 13,7 millj­örðum króna árið 2016 hjá 11 líf­eyr­is­sjóðum af 22 en er komin yfir 15 millj­arða hjá þessum 11 fyrir árið 2018 og eru þetta var­lega áætl­aðar tölur sem eru teknar úr árs­reikn­ingum sjóð­anna. Það eru fjöl­margir spenar á kerf­inu og margir sem sjúga fast.“

Efast um getu sjóðanna til að standa við loforð

Ragnar Þór segir að ekk­ert sé vitað um raun­veru­legar eignir sjóð­anna fyrr en þær verði seldar. „Sagan hefur kennt okkur að mark­aðir munu sveifl­ast með til­heyr­andi kreppum og kerf­is­hrunum. Er hægt að bjarga þessu kerfi og hvernig verður það gert? Já það er hægt. Fyrst verðum við að við­ur­kenna vand­ann og setj­ast niður og fara í heild­ar­end­ur­skoðun á líf­eyr­is­kerf­inu, kostum þess og göllum, og hvaða leiðir eru bestar til að tryggja betur rétt­indi og jafna þau frekar til fram­tíðar.

[adspot]Með hækkun iðgjalda í 15,5 pró­sent hafi átt að tryggja 74-76 pró­sent með­al­launa­rétt­indi eftir 67 ára aldur miðað 40 ára inn­greiðslu. Nú sé hins vegar greitt mun meira inn í kerfið og mun lengur. „Þetta þýðir að reiknuð rétt­indi eru í raun mun hærri og skila sem dæmi hjá einum stærsta sjóðnum um 106% með­al­launa­rétt­indum miðað við 50 ára inn­greiðslu. Þetta gefur sterk­lega til kynna að kerfið okkar sé nú þegar offjár­magnað og til að færa enn frek­ari rök fyrir því munu 4% og allt að 6% við­bót­ar­líf­eyr­is­sparn­aður, (sam­tals 21,5% iðgjöld) færa sömu með­al­launa­rétt­indi í allt að 168%.“

Þetta segir Ragnar Þór að hljómi ótrú­lega og að kerfið sé vissu­lega ótrú­legt. „Það dettur varla nokkrum manni í hug að sjóð­unum tak­ist að standa við þessi lof­orð með því að reiða sig alfarið á mark­aðs­legar for­sendur? Af orð­ræð­unni að dæma má því álykta að helstu varð­hundar núver­andi kerfis séu haldnir ein­hvers­konar Ponzi heil­kennum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár