Fór að hugleiða að hætta við strax og Guðni Th. tilkynnti um framboð

Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, seg­ist hafa byrjað að velta því fyrir sér strax 5. maí, þegar Guðni Th. Jóhann­es­son til­kynnti um for­seta­fram­boð sitt, að það væru að mynd­ast kring­um­stæður þar sem „að þjóðin væri loks­ins eftir fjög­urra mán­aða leit að finna sér ein­stak­ling sem gæti notið nægi­legs stuðn­ings.“ Þá hafi hann sett á blað nokkrar hug­leið­ingar út frá eigin rök­stuðn­ingi fyrir því að bjóða sig aftur fram og dag­inn eftir hafi hann gert slíkt hið sama. Þegar Davíð Oddsson ákvað síðan að bjóða sig fram hafi rök­semd­ar­færslan leitt sig að þeirri skýru nið­ur­stöðu að ekki væri lengur þörf fyrir Ólaf Ragnar að bjóða sig fram til emb­ættis for­seta á ný. Þetta kemur fram í við­tali við Ólaf Ragnar í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar segir for­set­inn að það sé „ekki aðeins merki­legt nú, heldur í raun og veru ein­stakt í sögu for­seta­kosn­inga og lýð­veld­is­ins, að jafn öfl­ugur fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og fremsti fræði­maður þjóð­ar­innar gangi fram á völl­inn og gefi kost á sér til að sinna þessu emb­ætti sem þeir báðir hafa haft langvar­andi tengsl við, þótt með ólíkum hætti sé.“

Í við­tal­inu segir Ólafur Ragnar að umfjöllun um aflands­fé­laga­eign Dorritar Moussaieff, eig­in­konu hans, hafi ekki haft neitt að gera með ákvörðun hans um að draga sig í hlé. Sú umfjöllun hafi verið full af rang­færslum sem nú hafi verið leið­réttar.

Í fyrstu skoð­ana­könn­un­inni sem birt hefur verið frá því að Guðni Th. til­kynnti fram­boð sitt á fimmtu­dag, könnun MMR sem birt var í gær, mæld­ist stuðn­ingur við hann 59,2 pró­sent. Ólafur Ragn­ar, sem hafði mælst með 52,6 pró­sent fylgi í skoð­ana­könnun MMR sem birt var 27. apr­íl, mæld­ist nú með 25,3 pró­sent fylg­i. Andri Snær Magna­­son mæld­ist með 8,8 pró­sent fylgi, Halla Tóm­a­s­dóttir með 1,7 pró­sent og Davíð Odds­­son mælist með 3,1 pró­­sent. Davíð var bætt inn sem svar­­mög­u­­leika um leið og hann til­­kynnti fram­­boð sitt í gær, en 27 pró­sent svar­enda í könn­un­inni fengu hann sem svar­­mög­u­­leika.

Hætti við að hætta við að hætta við

Ólafur Ragnar sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær þar sem fram kom að hann væri hættur við að bjóða sig aftur fram til emb­ætt­is­ins. Þar sagði Ólafur Ragnar að það hafi orðið ljóst með atburðum síð­ustu daga að þjóðin eigi nú „kost á að velja fram­bjóð­endur sem hafa umfangs­mikla þekk­ingu á eðli, sögu og verk­efnum for­seta­emb­ætt­is­ins; nið­ur­staða kosn­ing­anna gæti orðið áþekk­ur ­stuðn­ingur við nýjan for­seta og fyrri for­setar fengu við sitt fyrsta kjör. Við þessar aðstæður er bæði lýð­ræð­is­legt og eðli­legt, eftir að hafa gegnt emb­ætt­inu í 20 ár, að fylgja í ljósi alls þessa rök­semda­færslu, grein­ingu og ­nið­ur­stöðu sem ég lýsti í nýársávarp­in­u. Ég hef því ákveðið að til­kynna með þess­ari yfir­lýs­ingu þá ákvörðun mína að gefa ekki kost á mér til end­ur­kjör­s."

Þremur vikum áður, þann 18. apríl, hafði hann boðað til blaða­manna­fundar á Bessa­stöðum og til­kynnt að hann ætl­aði fram í sjötta sinn. Ástæðan væri mikil óvissa í sam­fé­lag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár