Söngvaskáld gefur út Skrifstofuplöntu

Söngvaskáldið Sveinn Guð­munds­son safnar fyrir útgáfu nýrrar plötu á Karolina Fund.

Skrif­stofu­planta er tit­ill­inn á nýrri plötu söngvaskálds­ins Sveins Guð­munds­sonar sem er að koma út á næstu vikum. Hóp­fjár­mögnun, sem nú stendur yfir á Karolina Fund, snýst um að safna fyrir vinyl­út­gáfu á plöt­unni.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Ég gaf út gömlu plöt­una mína „Fyrir herra Spock, MacGyver og mig“ á geisla­disk í lok árs 2013. Nokkrum árum seinna létu vinir mínir gera eitt stykki vín­yl­plötu af „Fyrir herra Spock, MacGyver og mig“ og gáfu mér í útskrift­ar­gjöf.

Mér fannst svo gaman að fá plöt­una mína á vinyl og eiga hana í plötu­safn­inu mínu að ég ákvað að ef ég næ að taka upp aðra plötu þá myndi ég reyna að koma henni út á vinyl. Þannig að það er aðal­mark­mið verk­efn­is­ins, að safna fyrir útgáfu á nýju plöt­unni á vinyl og eiga eitt sjálfur í safn­inu.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Platan sjálf og lögin eru flest um sjálfan mig og eins konar sjálfs­þerapía. Til dæmis lagið „Drasl“ var samið fyrir nokkrum árum er ég átt­aði mig á því að hug­ar­á­stand mitt og ástand eigna minna var það sama, það var allt í drasli, bæði heima hjá mér og í höfð­inu mínu. Er ég átt­aði mig á ástand­inu fór ég að taka til, að innan sem utan. „Drasl“ er þegar komið út sem smá­skífa af plöt­unni ásamt öðru lagi „Húð og hár“ á net­inu.
Í grunnin eru lögin mín afar ein­föld en ná stundum að flækj­ast með fleiri hljóð­færum. Þannig eru sum lögin bara með rödd, kassagítar og bassa og önnur með áslætti, raf­magns­gítar, hljóð­gervlum og allskyns óhljóðum. Öll lögin eru tekin upp í hljóð­ver­inu Ald­in­garð­ur­inn undir stjórn Magnúsar Leifs Sveins­sonar. Hann er afar lið­tækur á tökk­unum sem og á hin og þessi hljóð­færi. Magnús Leifur á til dæmis afar skemmti­legt gít­ar­stef í einu lagi sem er að koma út í þessum skrif­uðu orðum og er tit­il­lag plöt­unnar. Ég ræði útsetn­ingar lag­anna við hann, fæ álit og saman höfum við til dæmis smíðað hljóð­gervla­línur til að lyfta lög­unum upp hér og þar.
[adspot]Ég er búinn að vera að taka upp lög hægt og rólega síð­ustu þrjú ár þegar ég hef haft tæki­færi til. Fyrst ætl­aði ég að gera EP plötu með fjórum til fimm lögum og gefa út á vinyl en svo átti ég svo mörg lög sem mig lang­aði til að taka upp líka að ég ákvað loks að gera stærri plötu.

Eitt lag sem mig lang­aði til að koma inn á plöt­una er samið við texta eftir Helgu systur mína. Hún samdi fyrir mörgum árum mjög fal­legt og skemmti­legt ljóð á ensku sem ég fékk að aðlaga að mér og mínum stíl. Ég þýddi ljóðið yfir á íslensku og með hennar leyfi nefndi það „Ábót“. Það verður fyrsta lagið á plöt­unni og er svo­lítið morg­un­lag.

Svo er annað lag sem mig lang­aði mikið til að hafa með en það er ábreiða af lagi með hljóm­sveit­inni Randver. Faðir minn, Guð­mundur Sveins­son, var í þeirri sveit og söng lagið inn á plötu fyrir meira en 40 árum síðan. Lagð heitir „Dansinn“ er samið af gít­ar­leik­ara Randver, Jóni Jónassyni, við kvæði alþýðu­skálds­ins Káinn. Ég fékk svo bróður minn Krist­mund og föð­ur­bróður minn Gunnlaug til að syngja það með mér á upp­tök­unni.
Þannig að þó ég sé að miklu leyti ein­yrki í tón­list­inni þá á ég góða að sem setja sinn brag á lögin.“

Hér er hægt að taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár