Duldir möguleikar melgresis

„Með því að líta til okkar nærum­hverfis og finna stað­bundin tæki­færi til efnis- og mat­væla­gerðar getum við tekið skref í rétta átt og verið fyr­ir­myndir fyrir aðrar þjóðir,“ segja þau Sveinn Steinar Bene­dikts­son, Signý Jóns­dóttir og Kjartan Óli Guð­munds­son um verk­efni sem þau unnu sem rann­sak­aði fjöl­breytta mögu­leika íslensks mel­gresis.

Melgresi og fjöl­breytt nýt­ing þess birt­ist í ýmsum myndum á heim­ilum fólks og nærum­hverfi á öldum áður. En hvað hefur það upp á að bjóða nú á tímum? Þetta er spurn­ingin sem þau Sveinn Steinar Bene­dikts­son, mastersnemi í vöru­hönnun í Lista­há­skóla Íslands, Signý Jóns­dóttir vöru­hönn­uður og Kjartan Óli Guð­munds­son, mat­reiðslu­maður og vöru­hönn­uður, varpa fram. Verkefni þeirra Sveins og Signýjar, Mögu­leikar mel­gresis, sem þau unnu í sam­starfi við Kjartan, Land­græðsl­una og Rannís, var til­nefnt sem önd­veg­is­verk­efni Nýsköp­un­ar­verð­launa for­seta Íslands nú í lok jan­úar. Þau standa einnig fyrir tveimur við­burðum í Lista­safni Reykja­víkur, Hafn­ar­húsi, sem nefn­ast Melur Mathús þar sem gestum gefst kostur á að snæða fjög­urra rétta mál­tíð unna úr mel­gresi og meira að segja að smakka bjór brugg­uðum úr sama hrá­efni. 

Kjartan seg­ist hafa velt fyrir sér mögu­leikum mel­gresis löngu áður en hann hóf nám í vöru­hönnun. „Ég tók eftir því að öxin á mel­gresi litu út eins og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár