Spennan áþreifanleg

Kosn­ingar til Alþingis fara fram í dag, og bendir allt til þess að spennan verði mikil.

Lands­menn ganga til kosn­inga í dag til Alþing­is en síð­ast var kosið fyrir sléttu ári, 28. októ­ber. Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sprakk í skjóli nætur, eins og frægt er orðið, eftir að stjórn Bjartar fram­tíðar ákvað að segja sig frá rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með Sjálf­stæð­is­flokki og Viðreisn.

Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir tók við sem for­maður Við­reisnar eftir að Benedikt Jóhann­es­son ákvað að stíga til hliðar sem for­maður flokks­ins, og segja má að mik­ill ákafi hafi ein­kennt kosn­inga­bar­átt­una til þessa, enda óvenju stuttur fyr­ir­vari og má segja að um hálf­gert kosn­inga­sprett­hlaup hafi verið að ræða.

Mik­il þátt­taka hef­ur verið í utan­kjör­staðaat­kvæða­greiðslu í sam­an­burði við utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðslu í fyrra. Um fjögur þús­und fleiri hafa greitt atkvæði í utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðslu heldur en í fyrra.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærstur þessi miss­erin, miðað við kosn­inga­spána, en erfitt er að segja til um hvernig rík­is­stjórn­ar­sam­starf getur mynd­ast þegar búið að telja upp úr köss­unum.

Níu flokkar bjóða fram í öllum kjör­dæmum.

Listabókstafir þeirra eru eftirfarandi

  • A-listi Bjartrar fram­tíðar.
  • B-listi Fram­sókn­ar­flokks­ins.
  • C-listi Við­reisnar.
  • D-listi Sjálf­stæð­is­flokks­ins.
  • F-listi Flokks fólks­ins.
  • M-listi Mið­flokks­ins.
  • P-listi Pírata.
  • S-listi Sam­fylk­ing­ar­innar.
  • V-listi Vinstri grænna.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár