Tungumálakennsla númer eitt, tvö og þrjú

Pólski sendi­herr­ann á Íslandi segir að til þess að pólsk börn geti lært íslensku vel þá sé mik­il­vægt fyrir þau að fá góða kennslu í pólsku einnig.

Gerard Pokruszyński, sendiherra Póllands á Íslandi.
Gerard Pokruszyński, sendi­herra Póllands á Íslandi. Mynd: Bára Huld Beck

Pólska sendi­ráði leggur áherslu á aðeins einn hlut: Að bæta aðstöðu fyrir pólsk börn í skólum. „Fyrir þá sem ákveða að dvelja á Íslandi til lengri tíma er mik­il­vægt að huga að pól­skri tungu­mála­kennslu fyrir börnin. Það er nauð­syn­legt að geta við­haldið móð­ur­mál­inu því þegar börn eru vel stödd þar þá eiga þau auð­veld­ara með læra önnur tungu­mál.“

Þetta segir Gerard Pokruszyński, fyrsti pólski sendi­herr­ann á Íslandi, í sam­tali við Kjarnann.

Hann segir að auð­vitað verði börnin að læra íslenska tungu­málið en til þess að þau geti gert það vel þá sé mik­il­vægt fyrir þau að fá góða kennslu í pólsku einnig. „Ef þau velja síðan að búa hér áfram þá aukast tæki­færi þeirra ef þau eru góð í íslensku. Þetta hef ég einnig rætt við mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ann, Lilju Alfreðs­dóttur, að börnin læri pólsku og íslensku. Það er auð­vitað eðli­legt að þau læri tungu­málið í land­inu þar sem þau búa.“

[box]

Telur að færri muni koma með batnandi ástandi í Póllandi

Gerard segir að erfitt geti verið að reikna út nákvæman fjölda Pólverja á Íslandi því þrátt fyrir að sam­kvæmt Þjóðskrá séu þeir rúm­lega 20.000 þús­und tals­ins þá sé lík­legt að þeir séu fleiri. „Inn í þess­ari tölu eru til dæmis ekki þeir sem einnig eru orðnir Íslend­ingar en þeir eru á bil­inu fjögur til fimm þús­und tals­ins.“

[links]Sendi­herr­ann segir að Pól­verjum fjölgi um 2.000 á hverju ári hverju. „Ég tel að þessi þróun muni halda áfram næstu ár. Vegna þess að efna­hags­á­stand í Póllandi er að verða mun betra þá munu færri koma hingað til lands, að mínu mati. Atvinnu­leysi er um fimm pró­sent núna í Póllandi og er það á stefnu­skrá nýrrar rík­is­stjórnar að hækka lægstu launin. Ef þau mark­mið nást þá þýðir það að lægstu launin, sem og miðl­ungs, verða á við helm­ings­laun á Íslandi. Og vegna þess að það kostar mjög mikið að lifa hér á landi þá verða launin svipuð fyrir sömu vinnu hér og í Póllandi,“ segir hann.

[adspot]

Á næstu fjórum til átta árum mun fólk því halda áfram að flytja frá Póllandi til Íslands, að hans mati en eftir það mun fjöld­inn snar­minnka. „Sumir munu auð­vitað ákveða að halda áfram að búa hér á landi en aðrir munu óhjá­kvæmi­lega flytja aftur til Póllands.“

Margir sneru til baka í og eftir hrun

Gerard bendir á að oft dvelji Pól­verjar hér á landi og vinni í nokkur ár og fari síðan til baka. „Hinn hefð­bundni Pólverji dvelur hér á landi í tíu til tólf ár en á ein­hverjum tíma­punkti ákveði hann hvort hann vilji halda áfram að vera hér eða fara til baka.“ Þar skipti miklu máli hvort börn séu í spil­inu, hvort fólk vilji að afkom­end­urnir alist upp á Íslandi eða í Póllandi. „Ef börnin fara í íslenska skóla þá er það ákveðnum vand­kvæðum bundið að fara til baka.“

Lang­flestir Pól­verjar fluttu hingað til lands fyrir efna­hags­hrunið 2008. Fjölgaði þeim í kjöl­far þess að Pólland gekk í Evr­ópu­sam­bandið árið 2004 og þegar tak­mörk­unum á frjálsu flæði launa­fólks frá nýjum ríkjum ESS var aflétt á Íslandi um vorið 2006. Efna­hags­upp­gangur hér á landi á þessum árum hafði mikið að segja og ekki var vöntun á atvinnu í aðdrag­anda hruns­ins.

Í og eftir hrunið sneru aftur á móti um 7.000 manns aftur til heima­lands­ins og fór þá fjöldi Pólverja á Íslandi niður í rúm­lega 9.000 manns árið 2012.

Hægt er að lesa ítar­lega frétta­skýr­ingu um Pólverja á Íslandi hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár