Milli tveggja heima – Pólskur veruleiki á Íslandi

Miklar breyt­ingar hafa orðið á íslensku sam­fé­lagi á síð­ustu ára­tugum og er ein breytan þar gíf­ur­legur fjöldi inn­flytj­enda sem hefur ákveðið að taka sitt haf­urtask, söðla um og flytj­ast landa á milli.

Pól­verjar á Íslandi fóru yfir 20 þús­unda múr­inn í sumar og eru þeir lang­fjöl­menn­asti hópur inn­flytj­enda hér á landi. Þeir byrj­uðu að koma hingað fyrir mörgum ára­tugum en í góð­ær­inu fyrir hrun jókst fjöldi þeirra til muna. Sá fjöldi minnk­aði í og eftir hrun og nú heldur þeim áfram að fjölga. En hvernig líður Pól­verjum á Íslandi, hvaða áskor­anir þurfa þeir helst að glíma við hér á landi og hvernig er hægt að hjálpa þeim að aðlag­ast landi og þjóð?

Vinnu­að­stæður hér á landi hafa breyst á síð­ustu ára­tugum og má jafn­framt merkja ákveðnar breyt­ingar í við­horfi gagn­vart inn­flytj­endum. Kjarninn náði tali af tveimur Pól­verjum sem búsettir eru hér á landi til að ræða mál­efni tengd pólsku sam­fé­lagi á Íslandi. Annar er sendi­herra Póllands og hinn er sér­fræð­ingur sem unnið hefur á Íslandi og rann­sakað tengsl pólsks verka­fólks á Íslandi við heima­landið og hvaða áhrif þessi tengsl hafa á hversu vel þeir hafa sam­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi.

Fer að hægjast á innflytjendum frá Póllandi

Gerard Pokruszyński er fyrsti pólski sendi­herr­ann á Íslandi en hann tók við stöð­unni í lok árs 2017. Hann segir í sam­tali við Kjarnann að erfitt geti verið að reikna út nákvæman fjölda Pólverja á Íslandi því þrátt fyrir að sam­kvæmt Þjóðskrá séu þeir rúm­lega 20.000 þús­und tals­ins þá sé lík­legt að þeir séu fleiri. „Inn í þess­ari tölu eru til dæmis ekki þeir sem einnig eru orðnir Íslend­ingar en þeir eru á bil­inu fjögur til fimm þús­und tals­ins.“

Sendi­herr­ann segir að Pól­verjum fjölgi um 2.000 á hverju ári hverju. „Ég tel að þessi þróun muni halda áfram næstu ár. Vegna þess að efna­hags­á­stand í Póllandi er að verða mun betra þá munu færri koma hingað til lands, að mínu mati. Atvinnu­leysi er um fimm pró­sent núna í Póllandi og er það á stefnu­skrá nýrrar rík­is­stjórnar að hækka lægstu launin. Ef þau mark­mið nást þá þýðir það að lægstu launin, sem og miðl­ungs, verða á við helm­ings­laun á Íslandi. Og vegna þess að það kostar mjög mikið að lifa hér á landi þá verða launin svipuð fyrir sömu vinnu hér og í Póllandi,“ segir hann.

Á næstu fjórum til átta árum mun fólk því halda áfram að flytja frá Póllandi til Íslands, að hans mati en eftir það mun fjöld­inn snar­minnka. „Sumir munu auð­vitað ákveða að halda áfram að búa hér á landi en aðrir munu óhjá­kvæmi­lega flytja aftur til Póllands.“

Gerard Pokruszyński, sendiherra Póllands á Íslandi.
Gerard Pokruszyński, sendi­herra Póllands á Íslandi.

Margir sneru til baka í og eftir hrun

Gerard bendir á að oft dvelji Pól­verjar hér á landi og vinni í nokkur ár og fari síðan til baka. „Hinn hefð­bundni Pólverji dvelur hér á landi í tíu til tólf ár en á ein­hverjum tíma­punkti ákveði hann hvort hann vilji halda áfram að vera hér eða fara til baka.“ Þar skipti miklu máli hvort börn séu í spil­inu, hvort fólk vilji að afkom­end­urnir alist upp á Íslandi eða í Póllandi. „Ef börnin fara í íslenska skóla þá er það ákveðnum vand­kvæðum bundið að fara til baka.“

Lang­flestir Pól­verjar fluttu hingað til lands fyrir efna­hags­hrunið 2008. Fjölgaði þeim í kjöl­far þess að Pólland gekk í Evr­ópu­sam­bandið árið 2004 og þegar tak­mörk­unum á frjálsu flæði launa­fólks frá nýjum ríkjum ESS var aflétt á Íslandi um vorið 2006. Efna­hags­upp­gangur hér á landi á þessum árum hafði mikið að segja og ekki var vöntun á atvinnu í aðdrag­anda hruns­ins.

Í og eftir hrunið sneru aftur á móti um 7.000 manns aftur til heima­lands­ins og fór þá fjöldi Pólverja á Íslandi niður í rúm­lega 9.000 manns árið 2012.

Tungumálakennsla númer eitt, tvö og þrjú

Þegar hann er spurður út í það hvort íslensk stjórn­völd geti gert eitt­hvað til að taka betur á móti Pól­verjum svarar hann að þau í sendi­ráð­inu leggi áherslu á aðeins einn hlut: Að bæta aðstöðu fyrir pólsk börn í skólum. „Fyrir þá sem ákveða að dvelja á Íslandi til lengri tíma er mik­il­vægt að huga að pól­skri tungu­mála­kennslu fyrir börnin. Það er nauð­syn­legt að geta við­haldið móð­ur­mál­inu því þegar börn eru vel stödd þar þá eiga þau auð­veld­ara með læra önnur tungu­mál.“

Auðvitað verði þau að læra íslenska tungu­málið en til þess að þau geti gert það vel þá sé mik­il­vægt fyrir þau að fá góða kennslu í pólsku einnig. „Ef þau velja síðan að búa hér áfram þá aukast tæki­færi þeirra ef þau eru góð í íslensku. Þetta hef ég einnig rætt við mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ann, Lilju Alfreðs­dóttur, að börnin læri pólsku og íslensku. Það er auð­vitað eðli­legt að þau læri tungu­málið í land­inu þar sem þau búa.“

Fengu tækifæri til að aðlagast

Anna Wojtynska er doktor í mann­fræði frá Háskóla Íslands en hún kom fyrst til Íslands árið 1996 og lýsir hún gjör­ó­líkum aðstæðum Pólverja hér á landi á þeim tíma. Hún segir að þeir hafi ein­ungis verið nokkur hund­ruð tals­ins, flestir hafi búið í þorpum úti á landi og aðeins örfáir í Reykja­vík.

Hún flutti síðan til Ísa­fjarðar árið 2005. „Fyrst þegar pólskir inn­flytj­endur fluttu til þess­ara þorpa þá höfðu þeir tæki­færi til að aðlag­ast sam­fé­lag­inu. Til að mynda var litið á pólskar konur sem komu til Ísa­fjarðar og eign­uð­ust íslenskan maka og töl­uðu íslensku sem inn­fæddar. Svo þegar fólk talar um „þessa Pólverja“ þá er það lík­leg­ast ekki að tala um til dæmis þessar konur.“ Þannig megi segja að þegar Pól­verjar aðlag­ist vel þá sé á vissan hátt ekki lengur litið á þá sem „Pólverja“.

Svo þegar fólk talar um „þessa Pólverja“ þá er það lík­leg­ast ekki að tala um til dæmis þessar konur.

Hún hefur rætt við marga Pólverja í rann­sóknum sínum, bæði úti á landi og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en flestir vinna í fisk­vinnslu úti á landi. „Fólk finnur því ekki fyrir því að það sé lág­stétt og jafn­vel hér í Reykja­vík segja sumir að vinna þeirra sé metin að verð­leikum og þar af leið­andi séu þeir einnig metnir að verð­leikum.“

Upplifun ólík eftir einstaklingum

Anna telur þó að þetta hafi breyst að ein­hverju leyti á und­an­förnum árum. Eftir að svo margir Pól­verjar komu til lands­ins til að vinna og eftir að sam­band atvinnu­rek­enda og laun­þega breytt­ist þá hafi við­horfin jafn­framt breyst. Þá hafi til að mynda einn við­mæl­andi hennar sagt að Íslend­ingar komi fram við þau eins og varn­ing. Sumum líði eins og þeir séu inn­flutt vinnu­afl og ekk­ert meira. Hún tekur sér­stak­lega fram að ástandið hafi þó ekki verið full­komið hér áður fyrr og sé ekki alslæmt núna. Sumt hafi lag­ast með tím­anum og nefnir hún sem dæmi að ákveðin vit­und­ar­vakn­ing hafi orðið varð­andi mik­il­vægi pólska tungu­máls­ins. Á öðrum sviðum hafi við­horf Íslend­inga versnað.

Anna Wojtynska kom fyrst til Íslands árið 1996.
Anna Wojtynska kom fyrst til Íslands árið 1996.

Hópur Pólverja fjölbreyttur

Að flytja búferlum milli landa og festa rætur í öðru landi getur verið flókið. Þegar Anna er spurð út í við­horf Pólverja gagn­vart Íslandi sem heim­kynnum þá segir hún að það sé auð­vitað ólíkt milli ein­stak­linga. „Ein pólsk kona sem ég tók við­tal við fyrir um þremur árum og býr enn hér á Íslandi, en hún hefur lík­lega búið hér hálfa ævina, talar enn eins og hún sé hérna tíma­bundið. Það er til fólk eins og hún. Og hún lifir sínu eigin lífi á Íslandi en eng­inn úr fjöl­skyld­unni hennar býr á Íslandi þannig að í hvert sinn sem hún á frí þá fer hún heim til þeirra," segir hún og bætir því við að vinnan haldi þess­ari til­teknu konu hér á landi.

„En stundum er ekki hægt að gefa ein­falt svar við þess­ari spurn­ingu. Nýlega kynnt­ist ég konu sem flutti hingað, dvaldi í stuttan tíma og sneri aftur til Póllands en nú er hún aftur komin og seg­ist vilja búa á Íslandi,“ segir hún.

Anna segir að önnur breyt­ing sem orðið hafi á und­an­förnum árum sé sú að hópur Pólverja sé orð­inn mjög fjöl­breyttur hvað varðar aldur, plön og vonir og hvaðan þau komi frá Póllandi. „Hér eru far­and­verka­menn sem eiga fjöl­skyldur í Póllandi og munu þeir snúa aftur til síns heima. Svo er til fólk sem er mitt á milli og einnig fólk sem er búið að koma sér vel fyrir hér.“

Pólska samfélagið hér á landi svipað hinu íslenska

Þegar Anna er spurð út í það hvort pólska sam­fé­lagið standi styrkum fótum hér á landi segir hún að það virki svipað og hið íslenska. „Sumir Pól­verjar myndu segja að við séum ekki nógu sam­heldin og hjálp­umst ekki nægi­lega að en á hinn bóg­inn hef ég séð að þetta virkar eins og á meðal Íslend­ing­anna. Sam­fé­lagið er smátt þannig að við vitum hvert af öðru og það er mun auð­veld­ara að mynda sam­bönd.“ Hún telur sjálf að pólska sam­fé­lagið sé mjög sam­heldið enda hafi hún séð mörg dæmi þess á þessum árum sem hún hefur dvalið á Íslandi.

Sam­fé­lagið er smátt þannig að við vitum hvert af öðru og það er mun auð­veld­ara að mynda sam­bönd.

Hún segir frá pól­skri vin­konu sinni sem flutti til Dan­merkur eftir að hafa búið hér á landi um nokk­urt skeið. „Hún sagði að það væri mun auð­veld­ara að tengj­ast Pól­verjum hér en úti í Kaup­manna­höfn. Hún vann í þrifum þar rétt eins og hér en borgin er svo stór.“

Hóparnir innan pólska sam­fé­lags­ins eru orðnir nokkuð margir, að sögn Önnu. Þá sé til að mynda búið að stofna hlaupa­hóp, ljós­mynd­ara­hóp og svo fram­vegis. Þannig séu Pól­verjar orðnir nógu margir á Íslandi til að mynda ýmiss konar hópa í kringum ákveðin áhuga­mál.

„Það er ljóst að Pólverja langar að hitt­ast og koma sér á fram­færi. Og þeir telja Íslend­inga á meðal sinna bestu vina og kunna vel við þá sem ein­stak­linga. Aftur á móti getur heild­ar­myndin litið aðeins öðru­vísi út, sér­stak­lega hvað varðar vinnu­að­stæður. Þær hafa breyst mikið, finnst mér, síðan góð­ærið hófst. Þær hafa versnað,“ segir hún.

Skiptir máli að vera hluti af vinnustaðnum

Varðandi við­horf gagn­vart Pól­verjum á Íslandi þá segir Anna að vegna stærðar hóps­ins þá sé auð­veld­ara að líta á þau sem nafn­lausan hóp frekar en sem ein­stak­linga og sem fjöl­mennt vinnu­afl í ófag­lærðum störfum. „Áður fyrr var hrein­gern­inga­fólkið oft­ast ráðið beint af atvinnu­rek­and­anum en nú er það breytt. Nú sjá sér­stök fyr­ir­tæki um ráðn­ingar og hefur það fyr­ir­komu­lag breytt teng­ingu inn á vinnu­stöð­unum. Nú er það fólk, sem ráðið er í gegnum þjón­ustu­fyr­ir­tæki, ekki hluti af starfs­manna­hópnum. Það skapar sundr­ung.“

Anna telur þar af leið­andi að þegar fólk er ráðið beint en ekki í gegnum þjón­ustu­fyr­ir­tæki mynd­ist önnur dýnamík milli starfs­manna. Það skipti máli að vera hluti af vinnu­staðnum en ekki ein­hvern veg­inn á jaðr­inum. Þess vegna gagn­rýnir hún til að mynda þessi ræst­ing­ar­fyr­ir­tæki og segir hún að launin séu oft það lág að fólk rétt nær endum saman.

Geta fallið milli tveggja heima

En hvernig er það að vera inn­flytj­andi á Íslandi, að mati Önnu? Hún segir í því sam­hengi að sjálfs­mynd fólks sé mis­mun­andi, enda aðlag­ist fólk með ólíkum hætti og jafn­framt séu aðstæður ólíkar. Hún bendir á að aug­ljós­lega líti Pól­verjar, sem búið hafa lengi hér á landi, á sig í fyrsta lagi sem Pólverja en einnig sem Íslend­inga. „Fyrir suma er mik­il­vægt að halda í þessa sjálfs­mynd. Fyrir börn er þetta aftur á móti flókn­ara. Stundum eru for­eldr­arnir bæði Íslend­ingar og Pól­verjar,“ segir hún. Þá falli þau jafn­vel milli þess­ara tveggja heima og geti börnin litið á sig sem bæði Íslend­inga og Pólverja.

„Við lifum á tímum þar sem fjöl­breyti­leik­anum er fagnað. Það er því ákveð­inn kostur þegar fólk er með ólíkan bak­grunn. Það er þó erf­ið­ara fyrir Pólverja að við­ur­kenna þjóð­erni sitt á Íslandi þegar hlut­irnir eru orðnir þannig að þeir vinna í lág­launa­vinnu. Ef sam­fé­lagið verður mjög stétta­skipt – jafn­vel eftir þjóð­erni – þá erum við komin á mjög slæman stað,“ segir hún.

Frétta­skýr­ingin birt­ist einnig í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið undanfarið ár