Segir hömlur vanta á ávanabindandi lyf

Andrés­ Magnús­son­ geð­lækn­ir segir að þrátt fyrir alvar­legar afleið­ingar við lang­tíma­töku ávana­bind­andi lyfja séu litlar skorður settar við ávís­anir á þau. Um 1.700 ein­stak­ling­ar fengu meira en þrjá dags­skammta af ávana­bind­andi lyfjum í fyrra.

Alls fengu 1730 ein­stak­lingar meira en þrjá dag­skammta af ávana­bind­andi lyfjum í fyrra en hægt er að áætla að þeir sem taka reglu­lega þrjá eða fleiri ráð­lagða dag­skammta af ávana­bind­andi lyfjum séu háðir þeim. Þá fengu 40 manns í fyrra tíu eða fleiri ráð­lega dag­skammta ávís­aða á dag af ávana­bind­andi lyfjum. Þetta kom fram í erindi Andrés­ar Magnús­son­ar geð­lækn­is á fundi Lækn­aráðs sem fjallað er um í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðs­ins.

Mikið álag á heilbrigðiskerfið

[links]Af OECD löndum nota Íslend­ingar mest af lyfjum sem verka á tauga­kerf­ið, það eru meðal ann­ars verkja­lyf, svefn­lyf, þung­lynd­is­lyf og lyf við athygl­is­bresti með ofvirkn­i. Í ágúst í fyrra gaf Land­læknir út við­vörun um afleið­ingar ávana­bind­andi lyfja vegna fjöl­miðlaum­fjöll­un­ar um notk­un ung­menna á slíkum lyfjum. Lyfj­un­um er skipt í þrjá flokka, sterk verkja­lyf, ró­andi lyf og örv­andi lyf. „Ef of stór skammt­ur ávana­bind­andi lyfja er tek­inn geta af­leið­ing­arn­ar verið bæði bráðar og óaft­ur­kræf­ar fyr­ir ein­stak­ling­inn,“ segir á vef Land­læknis.

Á fundi Lækna­ráðs sagði Andrés Magn­ús­son geð­læknir að mikið álag væri á heil­brigðis­kerfið vegna notk­unar­ ávana­bind­andi lyfja. „Fyrir utan tíð and­lát voru fjöl­margar komur á bráða­mót­tök­una á síð­asta ári vegna lyfja­eitr­unar,“ sagði Andrés. Þær hafi verið 450 vegna lyfja almennt en vegna ávana­bind­andi lyfja hafi margar inn­lagnir verið á gjör­gæslu, ara­grúi inn­lagna vegna lyfjafíknar á Vog, fíknig­eð­deild Land­spít­ala, geð­deildir og almennar deildir, “ sagði Andrés.

Andrés sagði jafn­framt í sam­tali við Lækna­blaðið að þrátt fyrir alvar­legar afleið­ingar við lang­tíma­töku ávana­bind­andi lyfja og lít­inn ávinn­ing, fyrir utan við skamm­tíma- og lífsloka­með­ferðir, séu litlar skorður settar við ávís­anir á þau. Hann sagði að þörf sé á skýr­ari reglum og að læknir hafi kallað eftir því að geta sagt að regl­urnar bjóði ekki upp á að við­kom­andi læknir skrifi upp á meiri ávana­bind­andi lyf.[adspot]

Að hans mati er hægt að fara ýmsar leiðir til þess að aðstoða lækna við að tak­marka ávís­anir ávana­bind­andi lyfja. Til dæmis sé hægt að ákveða að ef notkun ávana­bind­andi lyfja fer yfir til dæmis einn ráð­lagðan dags­skammt á dag alla daga árs­ins skuli gjöf ávana­bind­andi lyfja hætt. Þá bætti hann jafn­framt við að ekki ætti að vera hægt að end­ur­nýja ávana­bind­andi lyf í gegnum síma eða Heilsu­veru.

Andrés benti þó jafn­framt á að nú þegar sé verið að þrengja að notkun ákveð­inni lyfja, til dæmis séu ADHD-lyf aðeins afgreidd þeim sem hafa grein­ingu og skír­teini og ekki megi skrifa út lyf­seðil með ávana­bind­andi lyfi ef annar slíkur lyf­seð­ill er fyrir í lyfja­gátt­inni. 

Lagt til að herða eftirlit með ávísunavenjum lækna

Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra skip­aði í febr­úar í fyrra starfs­hóp til að sporna við mis- og ofnotkun geð- og verkja­lyfja. Hópurinn skil­aði skýrslu til ráð­herra með nið­ur­stöðum og til­lögum í maí í fyrra. Í skýrslu starfs­hóps­ins segir að ástæður mik­illar lyfja­notk­unar hér á landi séu marg­þættar. Skapast hafi vænt­ingar og menn­ing sem líti á lyf sem lausn margra vanda­mála og sam­hliða miklu magni af ávana­bind­andi lyfjum í umferð auk­ist hætta á of- og mis­notkun.

Hópurinn lagði til til­lögur til aðgerða í níu liðum en til­lög­urnar mið­uðu að því að tak­marka aðgang að ávana­bind­andi lyfjum og herða eft­ir­lit með ávís­una­venjum lækna. Jafn­framt taldi hóp­ur­inn að gera ætti kröfur um að bætta grein­ingu á ADHD og bæta aðgang að öðrum úrræðum en lyfjum við með­ferð á ADHD, svefn­vanda, kvíða­rösk­unum og lang­vinnum verkjum.

Ekki til tölur um ávísanir lækna til nákomna

Ólafur B. Ein­ars­son, verk­efna­stjóri lyfja­mála, sagði í sam­tali við Vísi fyrr á þessu ári, að í dag séu þrjú til fjögur hund­ruð læknar mjög virkir í ávís­unum ávana­bind­andi lyfja til sjúk­linga. Í fyrra voru stofnuð 45 ný mál vegna eft­ir­lits með ávís­unum lækna sem voru til við­bótar við önnur eldri mál. Þá brá emb­ættið á það í jan­úar að senda fimm­tíu hæstu lækn­unum bréf.

Ólafur sagði jafn­framt að fíkni­vanda væri þekkur atvinnu­sjúk­dóm meðal heil­brigð­is­starfs­manna en á fundi Lækna­ráðs kom fram að alls ávís­aði 441 læknir lyfi á sjálfan sig í fyrra og 102 tann­læknar. Auk þess ávís­uðu alls fimm læknir tvö­földum ráð­lögum dag­skammti eða meira af ávana­bind­andi lyfjum á sjálfan sig í fyrra. Þá kom jafn­framt fram á fund­inum að emb­ætti land­læknis á ekki tölur um ávís­anir lækna á nákomna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár