Ísraelski lyfjarisinn Teva borgar 40 milljarða dala fyrir Actavis

Ísra­elski sam­heita­lyfj­aris­inn Teva Pharmaceutical Industries hefur til­kynnt um kaup á sam­heita­lyfja­armi Allergan, sem er móð­ur­fé­lag Actavis á Íslandi. Teva mun greiða 33,75 millj­arða dala í pen­ingum og 6,75 millj­arðar verða greiddir með hluta­bréfum í Teva. Samhliða þessum kaupum hefur Teva hætt við kaup á keppi­nautnum Mylan.

Kaupin eru þau síð­ustu í röð margra stórra sam­runa í heil­brigð­is­geir­anum, en mikil sam­þjöppun hefur orðið í grein­inni, einkum vegna breyttrar heil­brigð­is­lög­gjafar í Banda­ríkj­unum.

Allergan hét áður Actavis og starf­semin á Íslandi er enn rekin undir nafni Actavis. Greint var frá því í lok júní að lyfja­verk­smiðja Actavis á Íslandi myndi flytj­ast frá Íslandi í hag­ræð­ing­ar­skyni. 300 manns vinna nú við lyfja­fram­leiðslu hér á landi en fram­leiðslan verður flutt í skrefum fram til árs­ins 2017. Þá var því heitið að önnur starf­semi á Íslandi yrði óbreytt, en 400 til við­bótar við þessi 300 starfa hjá fyr­ir­tæk­inu hér á landi.

Sigurður Óli Ólafsson, fyrr­ver­andi for­stjóri Actavis á Íslandi, er nú for­stjóri sam­heita­lyfja­sviðs Teva. Teva er stærsti fram­leið­andi sam­heita­lyfja í heim­inum og er fyr­ir­tækið metið á um sex­tíu millj­arða dala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár