118 umsækjendum um alþjóðlega vernd, viðbótarvernd og mannúðarleyfi synjað

Af þeim 229 umsóknum sem Útlend­inga­stofnun tók til efn­is­legrar með­ferðar á fyrstu sex mán­uðum árs­ins var í 118 til­vikum umsækj­endum synjað um alþjóð­lega vernd, við­bót­ar­vernd og mann­úð­ar­leyfi.

Mótmæli hælisleitenda þann 13. febrúar 2019
Mótmæli hæl­is­leit­enda þann 13. febr­úar 2019 Mynd: Bára Huld Beck

Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins voru umsóknir um alþjóð­lega vernd hér á landi 369. Stærstu hópar umsækj­enda eru rík­is­borg­arar Írak, Venes­ú­ela og Afganistan. Útlend­inga­stofnun veitti 111 ein­stak­lingum vernd, við­bót­ar­vernd eða mann­úð­ar­leyfi á sama tíma­bili, flestum frá Írak, Venes­ú­ela og Sýrlandi. Í 118 til­vikum var umsækj­endum synjað um alþjóð­lega vernd, við­bót­ar­vernd og mann­úð­ar­leyfi.

Þetta kemur fram á vef Útlend­inga­stofn­unar.

Samtals fékkst nið­ur­staða í 500 mál hjá stofn­un­inni en með­al­máls­með­ferð­ar­tími allra umsókna sem afgreiddar voru með ákvörðun á fyrri helm­ingi árs­ins var 171 dagur.

Heildarfjöldi umsókna 15% meiri en í fyrra

[links]Samkvæmt Útlend­inga­stofnun voru umsækj­endur um alþjóð­lega vernd á fyrri helm­ingi árs­ins af 58 þjóð­ernum og var heild­ar­fjöldi umsókna um 15 pró­sent meiri en á sama tíma­bili síð­asta ár. Hlutfall umsókna frá svoköll­uðum öruggum upp­runa­ríkjum var nokkru lægra en á síð­asta ári eða um 20 pró­sent.

Stærstu hópar umsækj­enda komu frá Írak, Venes­ú­ela og Afganistan. 66 pró­sent umsækj­enda voru karl­kyns og 34 pró­sent kven­kyns. 75 pró­sent umsækj­enda voru full­orðnir og 25 pró­sent yngri en 18 ára.

Útlend­inga­stofnun lok­aði 500 málum varð­andi alþjóð­lega vernd á fyrri helm­ingi árs­ins. Stofn­unin gerir sér­stak­lega athuga­semd við þessa atriði og bendir á að á bak við málin séu færri en 500 ein­stak­lingar þar sem stundum séu teknar fleiri en ein ákvörðun í máli ein­stak­lings.

101 fengu alþjóðlega vernd eða viðbótarvernd

Til efn­is­legrar með­ferðar voru teknar 229 umsóknir en þar af voru 36 mál afgreidd með ákvörðun í for­gangs­með­ferð. Í 187 til­vikum var umsækj­endum synjað um efn­is­lega með­ferð umsóknar, þar af voru 99 umsóknir afgreiddar með ákvörðun um end­ur­send­ingu á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar og 88 umsóknir á grund­velli þess að við­kom­andi höfðu þegar fengið vernd í öðru ríki. 84 umsóknir fengu svokölluð önnur lok, ýmist vegna þess að umsækj­endur drógu umsóknir sínar til baka eða hurfu frá þeim.

Af þeim 229 umsóknum sem Útlend­inga­stofnun tók til efn­is­legrar með­ferðar lauk 101 með ákvörðun um veit­ingu alþjóð­legrar verndar eða við­bót­ar­verndar og 10 með veit­ingu dval­ar­leyfis af mann­úð­ar­á­stæðum. Í 118 til­vikum var umsækj­endum synjað um alþjóð­lega vernd, við­bót­ar­vernd og mann­úð­ar­leyfi, eins og áður segir.

Flestum synjað frá Moldóvu

Flestar veit­ingar voru til umsækj­enda frá Írak, Venes­ú­ela og Sýrlandi en flestir þeirra sem var synjað komu frá Moldóvu, Írak og Georgíu.

Með­al­af­greiðslu­tími allra umsókna um alþjóð­lega vernd hjá Útlend­inga­stofnun á fyrri helm­ingi árs­ins 2019 var 171 dagur en var 156 dagar allt árið 2018. Samkvæmt Útlend­inga­stofnun er meg­in­skýr­ingin á því hlut­falls­leg fækkun mála sem afgreidd eru í for­gangs­með­ferð og fjölgun mála sem afgreidd eru í hefð­bund­inni efn­is­með­ferð.

Með­al­af­greiðslu­tími umsókna sem afgreiddar voru á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar og verndar í öðru landi stytt­ist milli fyrsta og ann­ars árs­fjórð­ungs og er nú 152 dagar í Dyfl­inn­ar­með­ferð og 104 dagar í vernd­ar­málum. Á sama tíma lengd­ist með­al­af­greiðslu­tími í hefð­bund­inni efn­is­með­ferð lít­il­lega úr 226 dögum í 230 daga. Það sem Útlend­inga­stofnun kallar ber­sýni­lega til­hæfu­lausar umsóknir umsækj­enda frá öruggum upp­runa­ríkjum voru að jafn­aði afgreiddar á fimm dögum í for­gangs­með­ferð á öðrum árs­fjórð­ungi.

335 einstaklingar í þjónustu hjá sveitarfélögum

Ein­stak­lingum í þjón­ustu í vernd­ar­kerf­inu fjölg­aði á fyrstu mán­uðum árs­ins en hefur fækkað aftur á und­an­förnum mán­uðum.

Í byrjun júlí nutu sam­tals 585 umsækj­endur um vernd þjón­ustu í kerf­inu. 335 ein­stak­lingar voru í þjón­ustu hjá félags­þjón­ustu Reykja­vík­ur­borgar, Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staðar og Reykja­nes­bæjar á grund­velli þjón­ustu­samn­inga við Útlend­inga­stofnun. Móttöku- og þjón­ustuteymi Útlend­inga­stofn­unar veittu 250 ein­stak­lingum þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár