Segir ríkislögreglustjóra bera skyldu til að tilkynna um spillingu

Verðandi for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar segir að Haraldur Johann­es­sen eigi að til­kynna um spill­ingu sem hann viti af. Í við­tali í gær lét hann í það skína að slík væri til staðar.

„Ef að rík­is­lög­reglu­stjóri veit af spill­ingu innan lög­regl­unnar ber honum skylda til þess að til­kynna slíkt.“ Þetta segir Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata og lík­ast til verð­andi for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, í nýrri stöðu­upp­færslu á Facebook.

Þar segir hún enn fremur að henni finn­ist vel skoð­andi að láta Harald Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóra koma fyrir nefnd­ina til að skýra orð sín í við­tali við Morg­un­blaðið í gær, en til stendur að kjósa Þórhildi Sunnu sem for­mann nefnd­ar­innar á fundi hennar á morgun.

Í við­tal­inu í Morg­un­blað­inu sagði að verið sé að reyna að hrekja hann úr emb­ætti með því að dreifa vís­vit­andi rang­færslum og róg­burði um hann.

[adspot]Þeir sem séu að gera það séu lög­reglu­menn sem telji sig eiga harma að hefna gegn hon­um, meðal ann­ars vegna þess að hann hafi gripið inn í vegna starfs­hátta eða fram­komu þeirra eða vegna þess að þeir hafi ekki fengið stöður sem þeir sótt­ust eft­ir. Ef til starfs­loka hans komi kalli það á enn ít­­ar­­legri um­­fjöll­un af hans hálfu um valda­bar­átt­una bak við tjöld­in.

Telur aðför vera í gangi gegn sér

Þar sagði Har­aldur að gagn­rýni hans á fram­göngu lög­reglu­manna eigi þátt í því sem hann kallar aðför gegn sér. Hann sagð­ist hafa bent á að spill­ing ætti ekki að líð­ast innan lög­regl­unn­ar. „Hluti af umræð­unni sem er að brjót­­ast fram núna er kannski einnig vegna þeirr­ar af­­stöðu minn­­ar. Ég hef til dæm­is bent á að það fari ekki sam­an að lög­­­reglu­­menn séu með­fram starfi sínu í póli­­tísku vaf­stri. Það fer að mínu viti ekki sam­­an.“ Umræða um bíla­­mál lög­­regl­unn­ar sé hluti af þeirri rógs­her­­ferð að óreiða sé í fjár­­­mál­um rík­­is­lög­­reglu­­stjóra.

Haraldur sagði í við­tal­inu að „sví­v­irði­leg­um aðferðum [sé beitt] í valda­tafli, hags­muna­­gæslu og póli­­tík“ og að of stór­ hluta af fjár­­mun­um til lög­­regl­unn­ar á Íslandi renna í „há­timbraða yf­ir­­manna­­bygg­ing­u“. Því þurfi að ráð­ast í sam­ein­ingu lög­­­reglu­emb­ætta.

Stjórn­sýslu­út­tekt í farvatninu

Tölu­verðar deilur hafa verið innan lög­­regl­unn­­ar, og þá einkum í garð Rík­­is­lög­­reglu­­stjóra, að und­an­­förnu, en í fréttum RÚV hefur meðal ann­­ars komið fram að þær tengis fata­málum lög­­­reglu og bíla­málum, ásamt öðrum mál­u­m.

Fjöl­­mörg lög­­­reglu­emb­ætti í land­inu hafa lýst yfir stuðn­ingi við stjórn Lands­­sam­­bands lög­­­reglu­­manna sem hafa und­an­farið sett þrýst­ing lög­­­reglu­­stjóra lands­ins á að láta fara fram al­hliða stjórn­­­sýslu­út­­­tekt á emb­ætti rík­­is­lög­­reglu­­stjóra.

Ákveðið var að Rík­is­end­ur­skoðun ráð­ist í slíka úttekt í lið­inni viku.

Har­aldur sendi frá sér yfir­­lýs­ingu á fimmtu­dag þar sem sagði að álykt­­anir lög­­­reglu­­fé­laga, gegn emb­ætti rík­­is­lög­­reglu­­stjóra, væru ekki til þess fallnar að skapa frið um störf lög­­­reglu. Þá sagði að yfir­­lýs­ingar sem „ali á ótta“ geti verið til þess fallnar að bitna á öryggi almenn­ings og það sé ámæl­is­vert. „Við þetta ástand verður ekki unað enda kastar það rýrð á lög­­regl­una og störf hennar sem grefur undan því mikla trausti sem almenn­ingur ber til lög­­regl­unn­­ar. Á end­­anum gæti þetta ástand því komið niður á öryggi almenn­ings,“ sagði í yfir­­lýs­ing­unni.

Hann sagð­ist þar einnig fagna fyr­ir­hug­aðri út­­tekt rík­­is­end­­ur­­skoð­anda á emb­ætt­in­u.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár