Heilsusamlegt líf á að vera áreynslulaust líf

Læknar sem sameinuðu krafta sína með stofnun Félags lífsstíls­lækninga á Íslandi vilja efla heilsu­læsi og minnka álag á heilbrigðis­kerfið til lengri tíma. Í hröðu nútíma­samfélagi hefur þörfin aldrei verið jafnrík og nú. Lífsstíls­breytingar eru krefjandi en sjálfs­mildi er mikilvægt fyrsta skref.

Heilbrigður lífsstíll á að vera aðgengilegur
Heil­brigður lífs­stíll á að vera aðgengi­legur Lífs­stíls­lækn­ingar eiga fullt erindi í nútíma­sam­fé­lagi að mati lækn­anna Svölu Sig­urð­ar­dóttur, Teklu Hrundar Karls­dóttur og Kjartans Hrafns Lofts­sonar. Markmið lífs­stíls­lækn­inga er að vald­efla og styrkja ein­stak­linga til að við­halda heilsu á öllum ævi­skeiðum. Mynd: Golli

Hraði nútíma­samfélagsins eykst með degi hverjum með hvers kyns áreiti og það reynist þrautin þyngri að lifa heilsu­samlegu lífi. Því vilja læknarnir Svala Sigurðar­dóttir, Kjartan Hrafn Loftsson og Tekla Hrund Karlsdóttirbbreyta. Þau tilheyra hópi lækna sem vilja setja aukna áherslu á lífsstíls­lækningar sem birtast einna helst með þeim hætti að það á að vera áreynslu­laust að lifa heil­brigðu lífi. 

En hvað eru eiginlega lífsstíls­lækningar? 

„Lífsstíls­lækningar er vísinda­lega studd nálgun sem valdeflir og styrkir einstaklinga til að viðhalda heilsu á öllum æviskeiðum,“ segir Kjartan. Hugmynda­fræði lífsstíls­lækninga byggir á aðferðum til að fyrir­byggja, bæta meðferð og jafnvel snúa við lífsstíls­tengdum sjúkdómum.   

Kjartan og Tekla eru hjón og störfuðu um árabil í hefð­bundnu heilbrigðis­kerfi, til að mynda á heilsu­gæslunni, í endur­hæfingu og stafrænni heilbrigðis­þjónustu og þekkja kosti og galla þess. Lífsstíls­lækningar hafa verið þeim ofarlega í huga lengi en þegar þau voru búsett í Svíþjóð fyrir um áratug fóru þau að gera breytingar á eigin lífi. „Við höfum alltaf reynt að vera meðvituð, passa upp á sykurinn og svona, en það varð einhver breyting þarna, nálgunin breyttist,“ segir Tekla. Síðustu tíu ár hafa þau farið í saumana á lífsstíls­tengdum sjúkdómum og jafnframt skoðað ítarlega hvernig hægt er að finna merki og einkenni þess að heilsan sé að stefna í óefni. 

Lífsstíls­lækningar voru til umfjöllunar á einu af fjölmörgum málþingum á Lækna­dögum sem fram fóru í síðustu viku. Nærðu hugann – fyrir aukin afköst og bjartari framtíð var yfir­skrift málþingsins sem Svala Sigurðar­dóttir læknir stýrði. Hún hefur alltaf haft áhuga á heil­brigðum lífsstíl, er einka­þjálfari og lærði næringar­fræði áður en hún byrjaði í læknis­fræði og það kom henni á óvart hversu lítið var fjallað um næringu og lífsstíls­tengda þætti í læknis­fræðinni. „Við lærum ekkert um hvað veldur heilsu, við lærum bara hvað veldur sjúkdómum. Við lærum ekkert um áhrifa­þætti heil­brigðis.“ Kjartan tekur í sama streng. „Við áttum að sjá um lækningar, ekki næringu. Lífs­stíllinn er nefndur, en það er ekkert kennt um hann, það er farið beint í lyfin.“

„Við lærum ekk­ert um hvað veldur heilsu, við lærum bara hvað veldur sjúk­dómum
Svala Sig­urð­ar­dóttir læknir
um lækna­námið

Kveikjan að því að stofna sérstakt lífsstíls­lækninga­félag varð þegar Svala, Tekla og Kjartan störfuðu saman hjá Sidekick Health, hugbúnaðar­fyrirtæki sem þróar og markaðs­setur stafrænar heilbrigðis­meðferðir, fyrir nokkrum árum. Þar kynntust þau Thomas Ragnari Wood, bresk-íslenskum lækni, stofnanda Félags lífsstíls­lækna á Bretlandi, sem er í forsvari fyrir félag lífsstíls­lækna á Bretlandi og veltu fyrir sér hvernig þau gætu innleitt starfsemi félagsins í störfum sínum hér á landi (viðtal við Thomas má einnig finna í þessu tölublaði). „Hann stakk upp á því að við myndum stofna okkar eigið íslenska félag,“ segir Kjartan. Þau létu slag standa og í september 2023 stofnuðu þau, ásamt Jens K. Guðmunds­syni lækni, Félag íslenskra lífsstíls­lækninga (e. ILMA - Icelandic Lifestyle Medicine Association). ILMA er í nánu samstarfi við bresku samtökin, British Society of Lifestyle Medicine (BSML) og er einnig hluti af evrópsku heims­samtökum lífsstíls­lækninga. 

FormaðurKjartan Hrafn Loftsson er for­maður Lífs­stíls­lækn­inga­fé­lags Íslands. Hann hefur starfað í yfir ára­tug í heilsu­gæslu og starfar í dag sem ábyrgð­ar­læknir heilsu­efl­andi mót­töku Heil­brigð­is­stofn­unar Suð­ur­nesja.
„Við áttum að sjá um lækn­ingar, ekki nær­ingu
Kjartan Hrafn Loftsson læknir
um lækna­námið

Lífsstíls­lækningar eiga fullt erindi í nútíma­samfélagi að mati Kjartans, Teklu og Svölu, samfélagi þar sem hraði og áreiti einkenna daglegt líf. „Þetta er það eina sem „meikar sens“ í þessu samfélagi sem við búum í. Það er kannski lausnin sem maður sér í að minnka álag á heilbrigðis­kerfið og fá meiri orku í landsmenn. Þetta snýr að lífsgæðum almennt,“ segir Tekla. „Þetta snýst líka um samfélagið. Þetta eru lífsstíls- og samfélags­lækningar,“ bætir Svala við. Hún segist ekki vilja gera lítið úr fólki og sjúklingum en telur að það geti verið snúið að lifa í nútíma­samfélagi. „Fólk er ekki aumingjar, það er erfitt að iðka heil­brigðan lífsstíl eins og samfélagið er í dag með öllu áreitinu sem þar er, alls konar ómótstæðilegar vörur sem við eigum ekki séns í,“ segir hún og nefnir sem dæmi úrval skyndi­bita og alls kyns annarra skyndi­lausna í mataræði.

Kjartan tekur undir. „Eftir að hafa verið að grúska í þessu lengi sér maður að þetta snýst ekki bara um að hjálpa fólki að grennast eða losna við sykursýki,“ segir hann. Samfélags­legir þættir hafa einnig áhrif á kvíða, ADHD-einkenni og andlega þætti. En fleiri þættir tala saman. „Læknis­fræðin bútar líkamann svolítið niður, geðlæknis­fræði er heilinn, tauga­læknisfræði er það sem heilinn sendir út og svo framvegis. Þegar við erum búin að skoða þetta svona mikið þá sér maður að þetta er allt nátengt. Við erum að reyna að byggja upp hvað frumurnar vantar til að starfa eðlilega. Það hefur áhrif á heila­heilsuna og restina af líkamanum,“ segir Kjartan. 

Snýst allt um sex grunnstoðir heilsu

Lífsstíls­lækningar byggja á sex grunn­stoðum heilsu, þær eru: Tengsl, mataræði, svefn, hreyfing, öndun og umhverfi. „Allar þessar grunn­stoðir snúa að því að mæta okkar grunn­þörfum. Þegar grunn­þörfunum er betur mætt virkar þetta betur, þá er meiri heilsa,“ segir Tekla. 

Þetta hljómar kannski einfalt. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að það geri okkur gott að eiga í góðum tengslum við fólkið sitt og samfélagið, borða hollan mat, hreyfa sig reglulega, sofa vel, anda (hver gerir það ekki?) og verja tíma í nátt­úrunni. En þegar eitthvað í heilsunni gefur sig skiptir máli að líta til þessara grunn­stoða. Þar koma lífsstíls­lækningar sterkar inn.  „Þetta er vísinda­lega studd heildræn nálgun sem miðar að því að fyrir­byggja, meðhöndla og snúa við lífsstíls­tengdum sjúkdómum. Þetta byggir á þessum grunn­stoðum heilsu. Það er rauði þráðurinn, að fara betur í þessa sjúkra­sögu með einstaklingum til að valdefla og fræða um hvað sé hægt að gera til að byggja upp góða heilsu,“ segir Kjartan. 

Sex grunn­stoðir heilsuLífs­stíls­lækn­ingar byggja á sex grunn­stoðum sem snúa að því að mæta okkar grunn­þörfum.

Tekla nefnir tengsl sem dæmi. „Þróunar­lega séð er svo mikilvægt að standa saman. Það var ógn við þínu öryggi ef þú varst einhvers staðar einn á stangli. Við höfum alltaf þurft á hvert öðru að halda. Þetta er kjarna­stoð hjá okkur, það er ein af okkar frum­hvötum að tilheyra. Með meiri skautun í samfélaginu er verið að ögra þessari stoð.“ Tengsl hafi ef til vill aldrei verið mikil­vægari en í nútíma­samfélagi. „Við erum meira einmana í dag en samt höfum við aldrei verið tengdari, ef við lítum á símana,“ bendir Kjartan á. 

Félag lífsstíls­lækninga talar ekki fyrir einu sérstöku mataræði heldur leggur áherslu á fjöl­breytni. „Við viðurkennum að það eru til margar leiðir til þess að ná góðri heilsu með mataræði en það þarf að einstaklings­miða og fara eftir væntingum og markmiðum,“ segir Kjartan. Gott fæðu­öryggi skiptir lykilmáli. „Í því felst stöðugt orku­framboð og uppbyggileg næring. Þá finnur líkaminn að hann hefur allt sem hann þarf til að virka vel og þá hættir löngunin í óhollustuna og ofát,“ segir Tekla, sem er umhugað um efnaskipta­heilsu. „Sama hvert markmið okkar er þurfum við orku til að knýja okkur áfram. Þar er lykillinn í efnaskipta­heilsu sem gerir okkur kleift að gefa öllum frumum þá orku sem þær þurfa.“

Ábati hreyfingar hefur verið marg­rannsakaður. „Hreyfing getur verið allt, hún getur verið forvörn og hluti af meðferð en hún getur líka verið eitthvað sem er áreiðanlegt og eftirsóknar­vert að gera án þess að vera hluti af meðferð. Endanlega markmiðið hlýtur að vera að það verði viðurkennt að horfa til allra þessara þátta,“ segir Svala. 

Ávinningur svefns hefur sömuleiðis verið rann­sakaður ítarlega. „En þetta snýst ekki bara um svefn, það er dægursveiflan og birtan sem við fáum á morgnana sem þarf líka að hafa í huga,“ segir Kjartan. Þegar kemur að öndun og streitu­stjórnun bendir Tekla á að öndunin er besta tólið til að róa tauga­kerfið og kerfið í heild sinni ef út í það er farið. 

Sjötta grunn­stoðin, umhverfi og náttúra, felst einna helst í að forðast neikvæða áhrifa­valda í umhverfinu sem hafa skaðleg áhrif á heilsuna, allt frá tóbaki til óheilnæms húsnæðis. Tekla spyr hvort við séum að horfa á sjúkdóma sem óhjá­kvæmileg örlög. „Erum við fórnar­lömb normsins sem lífsstíls­sjúkdómar eru? Er það eðlilegt að svona mörg prósent séu með astma og svona mörg sykursýki? Er eitthvað í umhverfinu sem má breyta og gera öðruvísi?“ Spurningarnar eru óteljandi. Að mati Teklu felast tækifærin í lífsstíls­lækningum í því að líta aðeins í eigin barm. 

Að sýna sér sjálfsmildi

Það er ekki til einn leiðar­vísir fyrir alla að heil­brigðum lífsstíl heldur þarf að taka mið af þörfum hvers og eins. „Ef við myndum gefa út leið­beininga­spjald fyrir alla yrði það bitlaust,“ segir Kjartan. Sex lykil­stoðir heilsu eru eins konar leiðar­vísir og líta má á það sem heilsu­hjól eins og Tekla kemst að orði. „Það er hægt að meta hvar þú ert og hvar þú átt inni. Ég myndi vilja að fólk gæti mátað sig hvar það stendur og hvort þú sért mótiveraður til að breyta einhverju, hvort sem það er hreyfing eða mataræði. Við þurfum að sjá styrk­leika og mismun­andi þarfir hvers og eins. Hvar er maður tilbúinn að byrja?“

Sjálfs­mildi er fyrsta skrefið þegar kemur að lífsstíls­breytingu, það geta þau öll þrjú verið sammála um. „Það er ógeðslega erfitt að breyta um lífsstíl. Sjálfs­mildi er eitt það mikil­vægasta,“ segir Svala. Að sýna sér sjálfs­mildi hefst á því að einbeita sér að því sem við getum gert, ekki því sem við getum ekki gert. „Það skiptir miklu máli að skilja þínar frum­hvatir, þá fylgir því meiri sjálfs­mildi. Við höfum verið að vinna með skömm, að þetta séu lífsstíls­vandamál og þú ert að klúðra því. Við þurfum að valdefla fólk í gegnum fræðslu, þá gengur þetta upp,“ segir Tekla.  

Heilsu­efl­andi sam­fé­lagHeilsa á hvorki að vera áskorun né und­an­tekn­ing að mati Svölu, Kjartans og Teklu, sem komu að stofnun Félags lífs­stíls­lækn­inga á Íslandi.

Lífsstílslækningar fyrir alla 

Félag lífsstíls­lækninga á Íslandi er ungt félag og er öllum opið, óháð læknis­menntun. Orðið „lífsstíls­lækningar“ er örlítið óþjált og læknarnir tala ekki endilega um lífsstíls­lækningar í almennu tali. „Við tölum um hvað hvetur fólk áfram til að gera breytingar. Það vita flestir að það er gott að borða hollt og sofa vel. En þegar maður er að vinna með hverjum og einum þarf maður að vita af hverju fólk vill halda heilsunni eða hvort það sé með einhver markmið sem það vill ná,“ segir Kjartan. 

Viðhorfið gagnvart lífsstíls­lækningum í samfélaginu er almennt gott að mati Kjartans, Teklu og Svölu, en yngri læknar eru almennt opnari en þeir sem eldri eru. Svala lýsir viðhorfi sem hún mætti sem nýútskrifaður læknir, full eldmóðs: „Þú getur ekkert sagt fólki að breyta um lífsstíl,“ voru skila­boðin sem hún fékk. Svala svaraði fullum hálsi: „Ég bara: Víst!“ segir hún. Mikil­vægast er, að hennar mati, að mæta fólki þar sem það er statt á vegferð breytinganna. „Þú þarft að tengja við breytinguna,“ bætir Tekla við. 

„Það á að vera áreynslu­laust að lifa heil­brigðu lífi
Svala Sig­urð­ar­dóttir læknir
Víst! Svala Sig­urð­ar­dóttir læknir hefur unnið að því frá útskrift að stuðla að heilsu­efl­andi sam­fé­lagið meðal ann­ars með lífs­stíls­breyt­ingum og jákvæðri sál­fræði.

Lífsstíls­lækningar eru ekki viðurkennt sérnám innan læknis­fræðinnar og það kann að trufla fólk, einkum innan fagstéttarinnar. Umræða um að innleiða lífsstíls­lækningar inn í sérnám í heimilis­lækningum er hins vegar hafin. Tekla segir að í raun ætti að byrja mun fyrr, strax í grunn­skóla. „Ef við skiljum betur hvað við þurfum þá verður allt miklu auðveldara. Þetta eru grunn­fræði sem þú ættir að kunna þegar þú ert að læra á heiminn. Þú þarft að vita hvernig þú virkar sjálfur.“

Stóra verkefnið fram undan sé að skapa og viðhalda heilsu­eflandi samfélagi. „Heilsa á hvorki að vera áskorun né undan­tekning. Þetta eru kannski líka umhverfis- og samfélags­lækningar,“ segir Tekla. Til að lifa heilsu­samlegu lífi í dag þarf að fara út í ákveðnar öfgar að hennar mati og að það veki sérstaka athygli ef fólk lifi heilsu­samlegu lífi. „Í dag þarftu að grípa til aðgerða ef þú ætlar að reyna að búa til öruggt og heilsu­eflandi umhverfi. Ef þú ert að sneiða hjá sykri og afþakkar marengs­kökuna í matarboði þá ertu álitin spes, mögulega með eitthvert vandamál.“ Það á ekki að vera þannig, segir Tekla. 

Breyt­ingar„Í dag þarftu að grípa til aðgerða ef þú ætlar að reyna að búa til öruggt og heilsu­efl­andi umhverfi,“ segir Tekla Hrund Karls­dóttir læknir. Því vill hún breyta.

Heilsu­eflandi umhverfi eigi að vera normið. Svo það gerist verði ákveðnar samfélags­breytingar að eiga sér stað. „Heilsu­efling á að vera almenn þekking, innleidd í skóla­kerfið, að þú skiljir hvað þú getir gert til að vera með góða heilsu. Og samfélagið þarf að breytast líka. Það á að vera áreynslu­laust að lifa heil­brigðu lífi. En á meðan við erum ekki komin þangað er það markmið okkar að skýra fyrir kollegum okkar hvað við getum einblínt á og hvað við getum gert til að hjálpa fólki og hjálpa því að hjálpa sér sjálft,“ segir Svala. 

Tilgangur Félags lífsstíls­lækninga á Íslandi er að efla menntun og rann­sóknir á sviði lífsstíls­lækninga, veita faglegan stuðning og umræðu­vettvang fyrir lækna, heilbrigðis­starfsfólk og aðra sem hafa  áhuga á þessu sviði. Öllum er frjálst að ganga í félagið, ekki síst til að efla heilsu­læsi og hegðun almennings til þess að hafa áhrif á þróun íslensks samfélags og minnka álag á heilbrigðis­kerfið til lengri tíma. „Það eru ekki bara læknar sem sinna lífsstílsslækningum, við hvetjum allar stéttir til að notfæra sér þetta,“ segir Kjartan. „Við viljum líka eiga í beinu samtali við fólkið þannig að þetta sé bæði fræðsla milli kollega og til að valdefla einstaklinginn. Það þurfa ekki allir að fara til lífsstíls­læknis, upplýsingarnar eiga að vera aðgengilegar,“ segir Tekla. 

Kjartan, Tekla og Svala vinna nú hörðum höndum að skipulagningu fyrstu ráðstefnu lífsstíls­lækninga hér á landi síðar á þessu ári. Öllum er velkomið að taka þátt í umræðunni um lífsstíls­lækningar á Facebook: Félag lífsstíls­lækninga á Íslandi.

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár