Sjónvarpsrisinn LG notar hugmyndir Andra Snæs í nýja auglýsingaherferð

Andri Snær Magnason gaf út bókina Draumalandið árið 2006 þar sem hann fjallar um hugmyndir sínar um að slökkva götuljós á næturnar svo fólk geti séð stjörnurnar og norðurljósin.
Andri Snær Magnason gaf út bók­ina Drauma­landið árið 2006 þar sem hann fjallar um hug­myndir sínar um að slökkva götu­ljós á næt­urnar svo fólk geti séð stjörn­u­rnar og norð­ur­ljósin. Mynd: Samsett mynd / Birgir Þór

Hugmynd Andra Snæs Magna­sonar um að slökkva ætti ljósin í Reykja­vík svo að fólk gæti séð stjörn­u­rnar og norð­ur­ljósin er aðal­at­riði í nýrri aug­lýs­inga­her­ferð kóreska raf­tækj­arís­ans LG. Hug­mynd­ina setti Andri Snær fram í bók sinni Drauma­land­inu sem kom fyrst út árið 2006 á íslensku og árið 2008 á ensku.

Í nýrri aug­lýs­inga­her­ferð LG þar sem ný gerð sjón­varpa frá fyr­ir­tæk­inu er kynnt er Reykja­vík og him­in­inn yfir Íslandi í aðal­hlut­verki. Í kynn­ing­ar­mynd­bandi fyrir nýju her­ferð­ina sést að aug­lýs­ingin var tekin upp hér á landi að vetri til, enda er erfitt að greina norð­ur­ljós á björtum sum­ar­kvöldum.

Í til­efni af her­ferð­inni hefur LG leigt tón­list­ar­húsið Hörpu annað kvöld og stendur fyrir tón­leikum og ljósa­sýn­ingu. Fram koma íslensku tón­list­ar­menn­irnir Ólafur Arnalds og Ásgeir Trausti og elektróníska ofur­bandið GusGus.

Á vef Hörpu má lesa um dag­skrá tón­leik­anna. Þar segir að tón­leika­sal­ur­inn Silf­ur­berg sé þegar óþekkj­an­legur vegna þess að búið er að skreyta hann „bak og fyrir með sjón­varps­skjáum frá LG“ með það að mark­miði að lýkja eftir norð­ur­ljósastemn­ingu.

Andri Snær vakti athygli á þessum við­burði á Facebook-síðu sinni í dag. Í Drauma­land­inu setti hann fram margar hug­myndir sínar um hvernig Íslend­ingar gætu gengið betur um nátt­úru lands­ins og notið hennar betur. Þremur árum eftir að bókin kom fyrst út var gerð heim­ild­ar­mynd eftir for­skrift bók­ar­innar og kom hún út árið 2009. „[S]vona getur ein blað­síða í bók orðið að stór­tón­leikum á vegum LG í Kóreu 10 árum síðar,“ skrifar Andri Snær á Facebook.

Nokkrum sinnum hefur verið slökkt á götu­ljósum í bæjum og borgum Íslands síðan bók Andra Snæs kom út fyrir tíu árum. Það var fyrst gert 28. sept­em­ber 2006 þegar götu­ljós voru slökkt í 30 mín­útur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, í Reykja­nesbæ og á Akranesi í til­efni af opnun Alþjóð­legu kvik­mynda­há­tíð­ar­innar í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár