Katrín Jakobs: Kosningar og bein aðkoma almennings

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, segir kröfu vera uppi um að boðað verði til kosn­inga og almenn­ingur verði þannig lát­inn móta næstu skref. „Það er uppi hávær krafa um kosn­ingar, það er það sem fólk er að kalla eftir,“ sagði Katrín, í við­tali við Einar Þor­steins­son, frétta­mann RÚV. Hún árétt­aði einnig, að hún væri enn að átta sig á stöðu mála, eins og aðrir, en nú reyndi á að hinir kjörnu full­trúar á Alþingi ræddu um stöðu mála, og væru í góðu sam­starfi á meðan atburða­rásin væri að skýr­ast.

Eins og kunn­ugt er, þá óskaði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra eftir því við Ólaf Ragnar Grímsson, for­seta Íslands, að hann veitti honum heim­ild til að rjúfa þing. Ólafur Ragnar sagð­ist ekki til­bú­inn til að veita honum slíka heim­ild þar sem for­sæt­is­ráð­herra náði ekki að sann­færa for­set­ann um að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri sam­þykkur slíku. Þetta kom fram á skyndi­legum blaða­manna­fundi sem nú stendur yfir á Bessa­stöðum.

Ólafur Ragnar hefur þess í stað ákveðið að eiga fund með Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, síðar í dag. Eftir atvikum mun hann ræða við for­menn eða leið­toga ann­arra flokka.

Ólafur Ragnar sagði það ekki við hæfi að for­set­inn væri dreg­inn inn í þá atburð­ar­rás sem hófst með ein­hliða yfir­lýs­ingu Sig­mundar Davíðs á Facebook í morgun um að hann væri til­bú­inn í þing­rof og kosn­ingar með þeim hætti sem for­sæt­is­ráð­herra hafði lagt upp. Eftir að hafa rætt við Sigmund Davíð í síma í gær höfðu þeir ákveðið að hitt­ast klukkan 13 í dag. Í morgun klukkan 11, eftir fund sinn með Bjarna Bene­dikts­syni, hafi for­sæt­is­ráð­herra farið fram á að fund­inum yrði flýtt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár