Kór og hljómsveit sem flytja saman rokktónlist

Karolina Fund verk­efni vik­unnar er plata með Stormsveit­inni úr Mos­fellsbæ.

Stormsveitin sam­anstendur af kór og hljóm­sveit sem flytur rokktón­list í útsetn­ingum fyrir karla­kór. Þeir Stormsveit­ar­menn hleyptu nýlega af stokk­unum söfnun á Karolina Fund. Markmiði þeirra er að safna 4000 evrum sem dugir þeim til að full­vinna og gefa út hljóm­disk og mynddisk með efni sem tekið var upp á þrett­ánda­tón­leikum á síð­asta ári og nú í ár í Hlégarði. Kjarninn hitti Hauk Þór Har­alds­son, einn af með­limum sveit­ar­innar, og tók hann tali.

Hvaðan er Stormsveitin upp­runnin og hvenær komst hún á legg?

„Stormsveitin er upp­runnin í Mos­fellsbæ og Kjal­ar­nesi. Þaðan skilst mér að nafnið sé upp­runnið, það er víst ekki alltaf blessuð blíðan þarna undir Esjunni. Fyrstu með­limir voru flestir félagar í Karlakór Kjal­nes­inga. Þar var líka Sigurður Hansson en hann átti hug­mynd­ina að því að taka hefð­bundin karla­kórs­lög og gera úr þeim rokk­músík.

[adspot]

Þetta var árið 2011 og sveitin hefur reglu­lega verið að troða upp síðan. Í dag koma með­limir sveit­ar­innar víðar að en ég held að óhætt sé að segja að Mos­fell­ingar séu okkar dygg­ustu áhan­gendur. Stormsveitin er fasta­gestir á ákveðnum upp­á­komum í Mos­fellsbæ og Mos­fell­ingar fylla árlega þrett­ánda­tón­leika okkar. Þetta er 20 manna söng­sveit, allt reyndir söng­menn og 5 manna rokk­hljóm­sveit sem er mjög vel skipuð.“

Hvers konar tón­list eru þið að taka ykkur fyrir hendur?

„Við flytjum alla­vega tón­list. Við syngjum öllu jafna fjór­raddað, und­ir­leiks­laust ef þannig ber undir eða með rokk­hljóm­sveit á fullu gasi, allt eftir því hvert til­efnið er. Mark­miðið er að syngja flott lög í vönd­uðum útsetn­ingum. Á prógramm­inu eru t.d. nokkrir þjóð­legir fimm­und­ar­söngvar, dæmi­gerðar íslenskar karla­kór­a­perlur, dæg­ur­lög og þjóð­lög af ýmsu tagi og svo arg­asta popp og rokk í bland. Sumar útsetn­ing­arnar hafa gengið í arf kóra á milli en aðrar höfum við látið gera fyrir okkur sér­stak­lega. Páll Helgason heit­inn á t.d. margar af okkar bestu radd­setn­ing­unum. Ungur snill­ingur að nafni Arnór Sig­urðs­son hefur svo verið öðrum dug­legri við að búa lögin til flutn­ings með hljóm­sveit­inni. Við tökum oft með okkur gesti. Stefanía Svav­ars­dóttir hefur verið fremst í þeim flokki, hún er eig­in­lega orðin ein af strák­unum. Birgir Har­alds­son (Biggi úr Gildrunni) hefur líka verið tíður gestur, Stefán Jak­obs­son (Dimma) var með okkur á síð­ustu tón­leikum þannig að list­inn yfir góð­vini Stormsveit­ar­innar er nokkuð langur.“

Hvaða upp­á­komur hafið þið sem kór mest gaman að?

„Stormsveita­ræf­ing­arnar eru alltaf bráð­skemmti­legar upp­á­komur. Þetta eru kátir karlar og það gengur á ýmsu. Við syngjum síðan á alla­vega skemmt­unum. Við höfum troðið upp á mörgum árs­há­tíðum, haldið kirkju­tón­leika, sungið í umferð­ar­mið­stöðvum og í flug­stöð­inni svo eitt­hvað sé nefnt. Sungið á börum, á vinnu­stöðum og í jarð­ar­förum. Við erum árlegir gestir á svið­inu við ára­móta­brennu í Mos­fellsbæ og höfum í nokkur ár haldið tón­leika á þrett­ánd­anum í Hlégarði. Engar gift­ingar eða skírnir á afreka­skránni en við erum opnir fyrir öllu. Við erum vel græj­aðir og syngjum öllu jafna í míkró­fóna en okkur þykir líka voða gaman að syngja óraf­magnað þegar aðstæður og hljóm­burður leyfir.“

Hvað er á döf­inni hjá ykkur?

„Við erum með nokkur gigg á döf­inni. Syngjum t.d. á stórri árs­há­tíð í þessum mán­uði. Svo erum við auð­vitað að von­ast eftir að ná að safna fyrir plöt­unni okkar. Ef það gengur eftir þá full­vinnum við það sem til er og tökum kannski upp smá í við­bót. Stefnum á að gefa út disk með vor­inu. Það má heita á okkur 3000 krónum og fá diskinn sendan heim þegar hann er til­bú­inn. Disk­ur­inn býðst líka raf­rænn fyrir 2000 króna áheit. Þann 19. mars ætlum við að halda tón­leika í Guð­ríð­ar­kirkju í Graf­ar­vogi. Tón­leik­arnir eru liður í söfn­un­inni því fyrir 4000 króna áheit fá menn miða á tón­leik­ana. Við ætlum að skrúfað aðeins niður og halda raf­magns­litla, lág­stemmda tón­leika. Sumir af okkar fasta­gestum þykir okkur takast best upp þegar þannig ber undir. Við stefnum á að vera með píanó­und­ir­leik, áslátt­ar­hljóð­færi og ein­hver huggu­leg­heit. Lofum nota­legum sunnu­dags­eft­ir­mið­degi í kirkj­unni. Bara að skott­ast inná karolina­fund.com og heita á Stormsveit­ina!“

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár