Orkan klárast á endanum

Orkuþörf vegna orku­skipta í samgöngum gæti verið allt að 15 terawattsstundir. Það slagar hátt upp í alla orku sem framleidd er á Íslandi í dag. Þó enn sé talsvert af óbeislaðri orku í landinu má áætla að við séum nú þegar búin að virkja upp undir 45 prósent hennar.

Orku­kostir sem undir eru í þriðja áfanga ramma­áætlunar myndu samanlagt hafa uppsett afl upp á rétt rúmlega 4.000 megawött. Orku­framleiðsla allra virkjana sem geta verið í rekstri á Íslandi í dag hafa afl upp á 3.127, samkvæmt gögnum frá Orku­stofnun. Það tekur þó til varaafls og fleiri þátta sem ekki eru í virkri notkun. Nær lagi er að tala um að uppsett afl virkjana sé um tæplega 3.000 megawött.

Miðað við þær forsendur hafa Íslendingar þegar virkjað um 40 prósent af þeirri orku sem raunhæft er að virkja í landinu, eins og staðan er í dag, án sérstaks tillits til umhverfis­þátta. Þessar tölur byggja þó á fræðilegri getu virkjananna og kostanna til orku­framleiðslu en ekki því sem raun­verulega kemur til með að fást á ári. 

Ekki takmarkalaus orka

Orku­framleiðsla undan­farin ár hefur verið á bilinu 19-20 terawattsstundir á ári. Þeir kostir sem eru undir í þriðja áfanga …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár