Páll Kvaran í bruggverksmiðjunni sinni í Kampala.
Páll Kvaran í bruggverk­smiðj­unni sinni í Kampala. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

Íslenskur ævintýramaður stofnaði vinsælt brugghús í Úganda

Páll Kvaran vildi hafa áhrif, mennt­aði sig í þró­un­ar­fræðum og hefur síð­ustu ár unnið að verk­efnum sem stuðla að bættum kjörum bænda við mið­baug. Og svo bruggar hann bjór í fyrsta hand­verks­brugg­húsi Úganda.

Ég flutti hingað fyrst til að vinna fyrir Þró­un­ar­sam­vinnu­stofnun sem þá var og hét,“ segir Páll Kvaran sem búið hefur í Úganda í ára­tug. Hann er mennt­aður í þró­un­ar­fræðum og bauðst á sínum tíma að velja um starf í Malaví eða Úganda. Hann las sér til um þau bæði og fannst Úganda meira spenn­andi. „Og hér er ég enn,“ segir hann og brosir glettn­is­lega.

Blaða­maður Kjarnans hitti Pál í Nakasero-hverfi Kampala, höf­uð­borgar Úganda, til að for­vitn­ast um veru hans í land­inu græna við mið­baug. Landi sem er ólíkt Íslandi á ótal vegu, hefur sína kosti og galla eins og gengur og ger­ist, þar sem hlut­irnir eiga það til að ger­ast hægt, „stundum mjög hægt“ en er að sama skapi upp­fullt af tæki­færum og allslags ævin­týrum.

Í fyrstu starf­aði Páll að jafn­réttis- og umhverf­is­málum á vegum Þró­un­ar­stofn­unar. Eftir ár í því starfi réði hann sig í vinnu hjá úgönsku fyr­ir­tæki sem sinnir verk­efnum á sviði land­bún­aðar. „Mig lang­aði að hafa meiri áhrif. Og land­bún­að­ur­inn er mik­il­væg­asta atvinnu­greinin í mörgum löndum Afríku. Innan hans hafa margir spenn­andi hlutir verið að ger­ast sem hefur orðið og verður von­andi enn meiri lyfti­stöng fyrir sam­fé­lögin hér.“

Páll hélt m.a. utan um verk­efni sem snéru að því að auka sam­vinnu bænda á ýmsum sviðum, inn­leiða nútíma­legri aðferðir við ræktun og auð­velda þeim aðgengi að lánum og mörk­uðum með afurðir sínar svo dæmi séu tekin. „Mér fannst ég sjá árangur af þess­ari vinnu, að þetta bætti kjör fólks­ins. Og það var einmitt það sem ég vildi gera.“

Saknaði Íslands

Að nokkrum árum liðnum var Páll far­inn að sakna Íslands. Honum bauðst starf sem frétta­maður á RÚV og ákvað að slá til. Þar var hann í um fimm mán­uði og færði sig svo yfir á vef­mið­il­inn Eyjuna. En eftir ár í frétta­mennsku á Íslandi var Úganda aftur farið að toga í hann af krafti. Því var aftur pakkað ofan í tösku og flogið til Afríku.

Páll í klettaklifri í Úganda en hann gekk þar í fjallaklúbb og var fljótlega kominn þar í stjórn.
Páll í kletta­klifri í Úganda en hann gekk þar í fjalla­klúbb og var fljót­lega kom­inn þar í stjórn.

Páll vann að land­bún­að­ar­verk­efn­unum áfram eftir kom­una til Úganda en hóf svo störf hjá rann­sókn­ar­stofn­un­inni Innovations for Poverty Action (IPA). „Sú stofnun sér­hæfir sig í að rann­saka hvað virkar og hvað virkar ekki í þró­un­ar­málum. Og sann­leik­ur­inn er sá að það er ýmis­legt sem hefur verið reynt sem virkar ekki. Hjálpar ekki raun­veru­lega fólk­inu sem verk­efnin bein­ast að og hefur jafn­vel í sumum til­vikum haft nei­kvæð áhrif á nær­sam­fé­lagið.“

Í Úganda eru fjöl­margar stofn­anir og sam­tök ýmis­konar að störfum í verk­efnum þar sem beitt er marg­vís­legri nálgun. Mik­il­vægt að þessir aðilar geti sótt sér þekk­ingu í þann reynslu­banka sem til hefur orðið síð­ustu ára­tugi í þró­un­ar­málum.

Um ítar­legar lang­tíma­rann­sóknir er að ræða og beitt er aðferðum sem við erum farin að kann­ast vel við eftir far­aldur COVID-19: Tveir hópar, sem í velst fólk af handa­hófi, eru rann­sak­aðir: Annar er innan þess þró­un­ar­verk­efn­is­ins sem um ræðir en hinn fær „lyf­leysu“, þ.e. er utan verk­efn­is­ins.

Eftir ár hjá IPA færði hann sig yfir til ráð­gjafa­fyr­ir­tækis í staf­rænum land­bún­aði. Starfið þar gekk m.a. út á að aðstoða stór land­bún­að­ar­fyr­ir­tæki að borga bændum raf­rænt fyrir afurðir sínar. Hann tekur dæmi af tefyr­ir­tæki í Austur-Úganda sem borg­aði bændum með því að henda pen­inga­sekkjum út úr flug­vél niður á akrana. „Það var ekki aðeins hættu­legt heldur kostn­að­ar­samt,“ segir Páll.

Páll vann með mörgum land­bún­að­ar­fyr­ir­tækjum um allt Úganda en einnig ann­ars staðar í Afríku, m.a. í Gana, á Fíla­beins­strönd­inni og í Sambíu. Hann sinnir enn ráð­gjafa­störfum, m.a. fyrir Alþjóða­bank­ann og Sam­ein­uðu þjóð­irnar, en krafta sína nýtir hann nú einnig í fyr­ir­tæki sem hann stofn­aði ásamt vini sínum, Kanada­mann­inum Adam.

„Ég og vinir mínir hér í Kampala vorum með brugg­klúbb,“ byrjar hann á að segja um til­urð fyr­ir­tæk­is­ins. „Við hitt­umst reglu­lega til að brugga og smakka bjór­inn. Fólk kemur og fer mikið hérna og allt í einu vorum við tveir eftir í klúbbnum. Þetta var bara tóm­stundagaman og átti aldrei að fara neitt lengra en það. En allt í einu átt­uðum við okkur á því að bjór­inn væri bara orð­inn frekar góður.“

Þannig hófst það ævin­týri sem end­aði með stofnun Banange, fyrsta hand­verks­brugg­húss Úganda.

Bjór hafði vissu­lega verið brugg­aður í Úganda lengi en stóru fyr­ir­tækin tvö sem réðu mark­aðnum fram­leiddu ein­göngu lag­er­bjór.

Í nágranna­land­inu Kenía er hins vegar nokkuð síðan að brugg­hús fóru að spretta upp. „Það er oft talað um að Kenía sé um það bil ára­tug á undan Úganda í fram­þróun,“ segir Páll. „Ég fór oft til Kenía og sá öll þessi brugg­hús og fór að velta þessu fyrir mér. Hvort að það væri ef til vill mark­aður fyrir að minnsta kosti eitt slíkt hér í Úganda.“

Páll og félagi hans gáfu sér góðan tíma eða um tvö ár í að setja saman við­skipta­á­ætlun og leita að fjár­festum. „Við þurftum að prófa okkur áfram á mark­aðnum áður en við færum af stað. Við urðum að vera þess full­vissir að fólk væri til­búið að borga meira fyrir bjór­inn okkar, sem er dýr­ari í fram­leiðslu en inn­lendi lag­er­bjór­inn. Svo að allt gengi upp þurftum við að selja hann á tvö­falt hærra verði og spurn­ingin var hvort að það væri yfir höfuð raun­hæft.“

Framleiðslugeta brugghússins í Kampala er um 20 þúsund lítrar.
Fram­leiðslu­geta brugg­húss­ins í Kampala er um 20 þús­und lítrar.

Á nokk­urra mán­aða tíma­bili brugg­uðu þeir Adam nokkur hund­ruð bjóra og aug­lýstu hann svo til sölu á því verði sem til þurfti. „Við hugs­uðum með okkur að ef allt myndi selj­ast upp á tveimur vikum þá gætum við sagt áhuga­sömum fjár­festum að það væri næg eft­ir­spurn. En svo seld­ist hann allur upp á tveimur dögum,“ segir Páll og breitt bros fær­ist yfir and­litið. Þar með voru þeir komnir með sönnun fyrir því að bjór­inn myndi rennan ljúf­lega ofan í hinn úganska markað. Eftir þetta fóru hjólin að snú­ast mjög hratt.

Um tutt­ugu fjár­festar ákváðu að slá til og bygg­ing brugg­húss­ins hófst í Nakasero-hverf­inu í Kampala á sömu lóð og finna má úrvals jap­anskan veit­inga­stað sem var svo fyrstur til að taka bjór­inn í sölu. Smám saman bætt­ust fleiri veit­inga­staðir og barir í hóp við­skipta­vina og áður en langt um leið var farið að selja bjór­inn víða. Í fyrstu var hann aðeins seldur í kútum sem rúllað var út eins og heitum lummum.

En svo kom COVID og allt breytt­ist og það frekar hratt.

Páll sýnir áhugasömum gestum starfsemi Banange-brugghússins.
Páll sýnir áhuga­sömum gestum starf­semi Banange-brugg­húss­ins.

„Það eru liðin rétt rúm­lega þrjú ár síðan að við opn­uðum og í tvö þeirra hefur geisað heims­far­aldur,“ segir Páll. Far­ald­ur­inn hafi vissu­lega sett strik í reikn­ing­inn hjá hinu nýstofn­aða fyr­ir­tæki.

„Sett var á útgöngu­bann í Úganda,“ útskýrir hann, „og þetta var alls­herjar útgöngu­bann í fyrstu. Allir veit­inga­staðir, barir og hrein­lega allt var lokað. Engir bílar eða skell­inöðrur á göt­unum. Ekkert. Einhvers konar útgöngu­bann var í gildi í heil tvö ár, því var aðeins nýlega aflétt. Þetta þýddi í raun að á þessum tíma mátti ekki selja áfengi á þessum stöðum“.

Þetta varð til þess að salan hjá Banange minnk­aði um heil 85 pró­sent fyrst í stað.

Og þá voru góð ráð dýr. „Við fórum strax að reyna að finna leiðir til að halda við­skipt­unum gang­andi,“ rifjar Páll upp. Þeir Adam ákváðu svo að bregð­ast við með því að hefja átöppun á flöskur og bjóða heim­send­ingu. Einnig lögðu þeir mikið á sig við að koma bjórnum í sölu í stærstu mat­vöru­versl­un­unum.

Þessi skjótu við­brögð skil­uðu árangri og um átta mán­uðum eftir að útgöngu­bannið var sett á var salan komin á svipað ról og hún hafði verið fyrir far­ald­ur­inn.

En þetta hefur ekki gengið þrauta­laust fyrir sig. Að selja bjór á kútum er nokkuð ein­falt en að selja bjór í flöskum kallar á fleiri starfs­menn, nýjar vélar og fleira í þeim dúr og svo dúkk­uðu upp ýmis vanda­mál sem kunna að koma Íslend­ingum spánskt fyrir sjónir.

„Við þurftum við að læra að ger­ilsneyða bjór­inn,“ byrjar Páll á að lýsa en í hit­anum í Úganda er allt annað en ein­falt mál að halda bjór á flöskum í góðum gæðum. „Á Vest­ur­löndum er hægt að tryggja að flösku­bjór sé kældur nær allan tím­ann frá því að hann kemur út úr verk­smiðj­unni og þar til hann er kom­inn í ísskáp neyt­and­ans. En hér þarf að gera ráð fyrir að hann sé sjaldn­ast geymdur í kæli frá því að hann er fram­leiddur og þar til hann er opn­aður. Að hann þoli að vera í 25 stiga hita í allt að sex mán­uði án þess að flösk­urnar fari að springa. Þess vegna verður að ger­ilsneyða hann.“

Fleiri hindr­anir þurfti að yfr­stíga. „Að kaupa flöskur var eitt og sér vanda­mál. Það er ekki hægt að kaupa þær hér nema í gríð­ar­legu magni og við þurfum því að panta þær frá Tansaníu.“

Og ýmis­legt hefur svo komið upp á sem ekki var fyr­ir­séð. „Það hefur kviknað í öllu sem er brenn­an­legt í brugg­hús­inu,“ segir hann og hlær. Annað dæmi er öllu und­ar­legra. „Einn dag­inn byrj­uðu allar vélar að ganga aft­urá­bak í brugg­hús­inu. Ég leit ofan í einn ket­il­inn, sá þetta og hugs­aði hvað í ósköp­unum væri í gangi.“

Hann komst svo að því að starfs­maður raf­magns­veitu rík­is­ins hafði verið að störfum í nágrenn­inu og tengt svo allt heila klabbið öfugt saman. „Ég hafði ekki gert mér grein fyrir að þetta gæti einu sinni gerst – að þetta væri raun­veru­leg áhætta!“

Sóttuð þið bætur?

„Ertu að grín­ast! Það hefði verið hlegið að okkur.“

Útbúa varð sér­staka vél í verk­smiðj­unni til að tryggja að þetta myndi ekki end­ur­taka sig.

Vatnið er svo enn eitt sem ekki er hægt að stóla á. „Vatns­veitan skellir stundum klór út í vatnið án þess að láta nokkurn vita. Mælarnir okkar fóru einu sinni að sýna mikið magn af klór og þar sem ekki er hægt að fá þá til að til­kynna þetta fyr­ir­fram urðum við að kaupa vél til að filt­era vatnið.“

En núna eru þessi vand­ræði úr sög­unni og allt gengur smurt fyrir sig í brugg­hús­inu. Starfs­mönnum hefur fjölgað jafnt og þétt og eru nú orðnir tólf.

Í dag er hægt að kaupa Bangange-bjór á yfir hund­rað stöðum. Og þar sem útgöngu­bann­inu hefur loks verið aflétt er fyr­ir­séð að salan eigi eftir að taka kipp og sölu­stöðum fjölga. „Það er mik­ill vöxtur framundan,“ spáir Páll.

Banange (borið fram nákvæm­lega eins og það er skrifað) er upp­hrópun á lúganda, tungu meiri­hluta Úganda­manna. „Þetta þýðir eitt­hvað eins og „guð minn góður!“ eða „vá!“ Orð sem fólk notar þegar eitt­hvað kemur því skemmti­lega á óvart og það vill vekja athygli á því,“ útskýrir Páll sem segir orðið mikið notað í almennu tali. „Úganda­menn fíla þetta nafn á bjórnum mjög vel og hlæja þegar þeir sjá það og heyra.“ Lit­skrúð­ugir mið­arnir á flösk­unum, lógóin, hafa ekki síður vakið lukku bæði heima­manna og ann­arra. Á þeim má sjá nokkur af þekkt­ustu dýrum lands­ins, þau hin sömu og fólk flykk­ist hingað til að sjá.

Hjá Banange hafa verið brugg­aðar átta teg­undir af bjór en núna, í ljósi feng­innar reynslu, hefur þeim verið fækkað niður í fjórar.

Bragð sem þarf að venjast

Í Úganda starfa margir útlend­ingar frá öllum heims­hornum. Sumir starfa hjá alþjóða­stofn­unum, aðrir hjá hjálp­ar­sam­tökum og enn aðrir hjá ýmsum fyr­ir­tækjum. Þá eru ótaldir ferða­menn sem og fólk sem dvelur í Úganda en er í fjar­vinnu frá heima­land­inu. Þetta fólk er alla jafna kallað „expatar“ – og meiri­hluti þess staldrar aðeins tíma­bundið við, í nokkra mán­uði eða örfá ár. Í þessum hópi er fólk sem þekkir vel til hand­verks­brugg­húsa í sínum heima­löndum og eru „nokkuð aug­ljós mark­aður“ fyrir Banange-bjór­inn að sögn Páls.

En þar sem Banange er fyrsta slíka brugg­húsið í Úganda þekktu heima­menn fæstir til fram­leiðslu þeirra. „Þetta eru bragð­teg­undir sem þarf aðeins að venj­ast. Þær vinna á með tím­anum. Það eru ekk­ert svo mörg ár síðan að fyrstu brugg­húsin voru opnuð á Íslandi. Annars höfðu Íslend­ingar sem bjuggu í útlöndum verið þeir sem kom­ist höfðu á bragðið. Og það er sama sagan hér.“

Banange er sannarlega handverksbrugghús. Joan sölu- og markaðsstjóri límir miða á flöskur og Kenneth, aðstoðar bruggmeistari, rífur niður appelsínur sem notaðar eru til að bragðbæta eina bjórtegundina.
Banange er sann­ar­lega hand­verks­brugg­hús. Joan sölu- og mark­aðs­stjóri límir miða á flöskur og Kenneth, aðstoðar brugg­meist­ari, rífur niður app­el­sínur sem not­aðar eru til að bragð­bæta eina bjór­teg­und­ina.

Eftir far­ald­ur­inn er fjár­hagur margra enn þrengri en hann var. Ferða­þjón­ustan, ein arð­bærasta atvinnu­greinin, hrein­lega lagð­ist af svo dæmi sé tekið og það mun að mati Páls taka tíma fyrir hag­kerfið að jafna sig. „Premium bjór er því skilj­an­lega ekki efstur á inn­kaupa­lista fólks.“

Páll segir stór­und­ar­legt ástand hafa skap­ast er útgöngu­bannið var sett á í byrjun far­ald­urs­ins. Fólk mátti t.d. ekki fara á milli borg­ar­hluta og lög­reglan setti upp vega­tálma. Aðeins þeir sem voru með sér­stök leyfi máttu yfir höfuð aka og fara í gegn. „Kampala varð allt önnur borg,“ rifjar hann upp. Göturnar tómar, aðeins fót­gang­andi á ferð þar sem áður var iðandi mann­líf og alveg svaka­legar umferð­ar­teppur.

Og talandi um umferð­ar­teppur.

Er eitt­hvað sem þú saknar frá Íslandi?

„Ég sakna umferð­ar­innar,“ segir Páll. „Mitt per­sónu­lega met á leið­inni í vinn­una, sem er spöl­korn frá heim­ili mínu, er um fjórir tímar.“

Þá seg­ist hann einnig sakna skil­virkn­innar á Íslandi. „Hér tekur flest langan tíma. Stundum mjög langan,“ bætir hann við kím­inn.

Páll kann vel við sig í kayak á Nílarfljóti.
Páll kann vel við sig í kayak á Níl­ar­fljóti.

En líf Páls í Úganda hefur svo sann­ar­lega ekki ein­göngu ein­kennst af vinnu.

Hann er mik­ill úti­vist­ar­maður og hefur lagt stund á ýmsar jaðar­í­þróttir. Í Úganda hefur hann til dæmis reynt fyrir sér í kletta­klifri og „kitesurf­ing“, stundum nefnt sjó­dreka­flug á íslensku, í Kenía.

En þetta er bara brot af því sem Páll hefur haft ástríðu fyrir á árunum í Afríku og lík­lega eru það kayak-sigl­ingar sem standa upp úr en þær hóf hann fljót­lega eftir kom­una til Úganda og varð fljótt hug­fang­inn af þeirri iðju. Að fara á kayak um flúðir Níl­ar­fljóts undir heitri Afr­íku­sól er engu líkt að hans sögn.

Hefur þú farið á kayak á Íslandi?

„Já,“ svarar hann, hlær og segir vart hægt að líkja þessu saman. „Þegar þú flippar kayak á Íslandi færðu „brainfreeze“ en hér flippar maður til að kæla sig!“

Og margt fleira hefur Páll haft fyrir stafni. Hann hefur spilað á trommur í nokkrum hljóm­sveitum sem skip­aðar voru bæði heima­mönnum og útlend­ingum. „Við vorum svona að reyna að koma með rokk og blús inn í tón­list­ar­menn­ing­una hér og spil­uðum víða.“

Páll ásamt Erlu systur sinni í skíðaferðalagi í Evrópu.
Páll ásamt Erlu systur sinni í skíða­ferða­lagi í Evrópu.

Að auki iðk­aði Páll og kenndi jiu-jitsu um tíma og það var einmitt í því sporti sem hann kynnt­ist kærust­unni sinni, Kylu Longman frá Banda­ríkj­unum. Nú búa þau saman á Kololo-hæð í Kampala ásamt hundi sem þau tóku að sér.

Íslend­inga­sam­fé­lagið í Úganda er ekki stórt en þó er lít­ill vísir að slíku til staðar. Á hverjum tíma eru alltaf ein­hverjir Íslend­ingar að vinna í sendi­ráð­inu í Kampala. Þá rekur Íslend­ingur hótel í borg­inni Entebbe og annar fyr­ir­tæki í græn­metis- og ávaxta­út­flutn­ingi. Svo koma annað slagið Íslend­ingar að vinna í hjálp­ar­starfi sem og hjá alþjóða­stofn­unum. „Síðasti Íslend­inga­hitt­ing­ur­inn var þegar Hatari keppti í Eurovision. Þá komum við saman til að horfa.“

Holur sem gleyptu bíla

En hvað hefur breyst í Úganda á þessum tíu árum?

„Kampala hefur breyst svaka­lega mikið,“ svarar Páll og nefnir þegar í stað veg­ina. Núna eru þeir flestir mal­bik­aðir (!) og oft (ekki alltaf) sæmi­lega við haldið. „Þegar ég kom hingað fyrst var risa­stór hola í göt­unni rétt hjá íslenska sendi­ráð­inu. Hola sem var stærri en bíll­inn minn. Þegar ég keyrði fyrst fram hjá henni þá átti ég ekki orð! En ég var hepp­inn að sjá hana áður en það rigndi. Því þegar það rigndi þá barma­fyllt­ist hún af vatni og virt­ist ekki vera nema stór drullu­pollur. Ég sá einu sinni bíl fljóta um í hol­unni. En þannig var það, í fín­asta hverf­inu í Kampala voru holur sem gátu gleypt bíla.“

Í dag er hægt að kaupa Bangange-bjór á yfir hundrað stöðum. Og þar sem útgöngubanninu hefur loks verið aflétt er fyrirséð að salan eigi eftir að taka kipp og sölustöðum fjölga. „Það er mikill vöxtur framundan,“ spáir Páll.
Í dag er hægt að kaupa Bangange-bjór á yfir hund­rað stöðum. Og þar sem útgöngu­bann­inu hefur loks verið aflétt er fyr­ir­séð að salan eigi eftir að taka kipp og sölu­stöðum fjölga. „Það er mik­ill vöxtur framundan,“ spáir Páll.

Önnur aug­ljós breyt­ing á ásýnd Kampala eru allar stóru versl­un­ar­mið­stöðv­arnar sem nú hafa risið. „Þegar ég kom fyrst voru þær tvær en núna eru þær örugg­lega að nálg­ast tutt­ugu.“

Tvennt hefur hins vegar lítið eða ekk­ert breyst: Stjórn­málin og veðrið. Sami for­seti hefur setið á valda­stóli frá árinu 1986 og er meðal þaul­setn­ustu þjóð­höfð­ingja ver­aldar. Veðrið í hita­belt­inu þarf svo vart að útskýra. Það er alltaf gott og oft­ast mjög gott.

Að auki má segja að á flesta mæli­kvarða hafi orðið umtals­verð fram­þróun í land­inu sem Páll segir að sé miklu örugg­ara og rólegra en marga Íslend­inga eflaust gruni. „Það eru ýmis merki á lofti um að Úganda eigi bjarta fram­tíð fyrir sér.“

Fyrir því er við­eig­andi að skála. Og þá auð­vitað í Banange-bjór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

úganda

Mest lesið undanfarið ár