Börn í kennlustund í Bumeru-skóla sem var byggður í samvinnu við íslensk stjórnvöld.
Börn í kennlu­stund í Bumeru-skóla sem var byggður í sam­vinnu við íslensk stjórn­völd. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

Undan mangótrjánum og inn í „íslenska“ skóla

„253“ stendur skrifað á töfl­una. Það eru 253 börn í bekknum – sam­an­komin í lít­illi skóla­stofu. Bukewa er dæmi­gerður grunn­skóli í Nama­y­ingo-hér­aði í Úganda. En nú hefur hann, ásamt fimm öðrum, verið end­ur­byggður fyrir íslenskt skattfé.

Á hverjum degi gengur Dorcas að minnsta kosti tíu kíló­metra. Flesta daga eru þeir miklu fleiri. Það gerir hún sér ekki til heilsu­bótar heldur til að kom­ast í skól­ann. Til að læra ensku, eft­ir­læt­is­fagið sitt, og allt hitt sem fylgir skóla­göngu sautján ára nem­anda. „Mig langar að verða end­ur­skoð­andi,“ segir hún og brosir feimn­is­lega þar sem hún stendur fyrir utan eina bygg­ing­una í Mutumba-skóla í Nama­y­ingo-hér­aði í Úganda.

Þetta er lágreist múr­steins­hús með báru­járns­þaki og þótt ekk­ert gler sé í litlu glugg­unum er loftið inni þungt. Skóla­stof­urnar eru litlar og virð­ast enn minni því setið er þétt við hvert ein­asta borð. Og líka á gólf­inu. Setið með stíla­bæk­urnar í kjölt­unni og náms­bókum deilt með sessu­naut­unum.

Fyrir utan leið­ina löngu í skól­ann þarf Dorcas, líkt og svo margar stúlkur og konur í land­inu, að fara nær dag­lega um langan veg að sækja vatn. Vatnið sem oft er mengað og af svo skornum skammti að biðin eftir að fylla brús­ana getur tekið óra­tíma. Einum brúsa er svo tyllt á höf­uðið. Um annan er gripið með hend­inni. Og svo er haldið heim á leið. Með jafn­vel fjöru­tíu lítra af vatni með­ferðis.

„Þessi vatns­burður, þessi enda­lausi vatns­burður, er meðal þess sem heldur stúlkum frá skóla,“ segir Finnbogi Rútur Arnarson, full­trúi í sendi­ráði Íslands í Úganda. „Og hér veitir væg­ast sagt ekki af því að byggja nýjan skóla.“

Dorcas dreymir um að verða endurskoðandi.
Dorcas dreymir um að verða end­ur­skoð­andi.

Rútur, eins og hann er ávallt kall­aður, er í reglu­legri eft­ir­lits­ferð um fiski­manna­þorpin í Nama­y­ingo norðan Vikt­or­íu­vatns. Íslenska ríkið hefur átt í þró­un­ar­sam­vinnu­verk­efnum í Úganda í yfir tvo ára­tugi, hefur byggt tugi skóla, brunna og vatns­bóla, fjölda almenn­ings­sal­erna, stutt við útgáfu skóla­bóka og kenn­ara til frek­ari mennt­unar. Allt verk­efni sem hafa það að mark­miði að bæta kjör barna og ung­menna eins og Dorcas. Byggja sterk­ari stoðir undir fram­tíð þeirra.

Í rúmt ár hafa Íslend­ingar átt sam­starfi við hér­aðs­stjórn Nama­y­ingo. Og í lok jan­úar, þegar blaða­maður Kjarnans slóst í för með Rúti til þorp­anna, höfðu þrír nýir skólar þegar risið og bygg­ing þriggja til við­bótar var í þann mund að hefj­ast.

Rútur er mættur á bygg­ing­ar­stað­ina ásamt verk­tökum sem fengu sam­þykkt til­boð í verkin. Blekið er enn blautt á samn­ing­unum sem skrifað var undir fyrr um morg­un­inn í ráð­húsi hér­aðs­ins. Nú á að afhenta verk­tök­unum bygg­ing­ar­svæðin form­lega og eitt af því er skól­inn hennar Dorcas.

Mutumba er nokkuð dæmi­gerður grunn­skóli á þessum slóðum. Sumar bygg­ing­arnar minna meira á gripa­hús en nokkuð annað. Stækan fnyk leggur frá sal­ern­unum sem standa stök í jaðri skóla­lóð­ar­innar.

Í Bukewa-skóla, sem afhentur er öðrum verk­taka þennan dag, er aðstaðan jafn­vel enn verri. Eftir far­aldur COVID-19 og tæp­lega tveggja ára lokun skóla í Úganda hefur orðið spreng­ing í fjölda nem­enda í fyrsta bekk.

Í fyrsta bekk í Bukewa-skóla eru um 500 börn í tveimur litlum kennslustofum.
Í fyrsta bekk í Bukewa-skóla eru um 500 börn í tveimur litlum kennslu­stofum.

Skóla­stjór­inn leiðir Rút inn í litlar og dimmar stof­urnar. „253“ stendur skrifað á töfl­una. Það eru 253 börn í stof­unni og fjöld­inn í þeirri næstu er svip­aður. Þrengslin eru gríð­ar­leg og meiri­hlut­inn verður að sitja á gólf­inu og reigja upp háls­inn til að fylgj­ast með kenn­ar­anum. Á hverjum kenn­ara hvíla því fimm hund­ruð fróð­leiks­fús augu. En athyglin sem hægt er að gefa hverju og einu barni er lítil. „Ég hef séð þrjú hund­ruð nem­endur í einni stofu,“ segir Rútur. „Og sumir stóðu fyrir utan og fylgd­ust með kennsl­unni í gegnum glugg­ana.“

Nama­y­ingo er eitt fátæk­asta hér­aðið á svæð­inu, benti hér­aðs­stjór­inn Edith Namayega á er skrifað var undir verk­taka­samn­ing­ana. Íbúarnir eru um 250 þús­und og fisk­veiðar í Vikt­or­íu­vatni eru lifi­brauð flestra. „Það eru for­rétt­indi að fá stuðn­ing frá íslenskum stjórn­völdum, stuðn­ing sem bætir menntun.“

Finnbogi Rútur Arnarson, alltaf kallaður Rútur, ávarpar hóp verktaka undir tré við Busiro-skólann. Sanya formaður héraðsstjórnarinnar fyrir miðri mynd.
Finnbogi Rútur Arnarson, alltaf kall­aður Rútur, ávarpar hóp verk­taka undir tré við Busiro-skól­ann. Sanya for­maður hér­aðs­stjórn­ar­innar fyrir miðri mynd.

Formaður hér­aðs­stjórn­ar­innar, Ronald Sanya, minnti verk­tak­ana á að þeir væru að fara með skattfé Íslend­inga. „Við tökum sam­vinnu ykkar ekki sem sjálf­sögðum hlut,“ sagði hann og beindi orðum sínum til Rúts handan fund­ar­borðs­ins í ráð­hús­inu.

Sanya bað verk­tak­ana vin­sam­leg­ast að ráða heima­menn í bygg­ing­ar­vinn­una. Margir ungir karl­menn á þessum slóðum þyrftu sár­lega á atvinnu að halda. „Og berið virð­ingu fyrir kon­unum,“ bætti hann við.

Rútur greip þennan bolta fim­lega á lofti. Að sjálf­sögðu ætti að bera virð­ingu fyrir konum en „ráðið þær í vinnu,“ sagði hann með þungri áherslu. „Ráðið líka konur,“ end­ur­tók hann.

Ein­hverjir við­staddra lyftu brúnum í undrun og gutu augum hver á annan. Konur eru í minni­hluta starfs­fólks í bygg­ing­ar­vinnu um allan heim en sjást vart í því starfi í Úganda. Þar spila hefðir og siðir í verka­skipt­ingu stórt hlut­verk, ekki síst í fiski­manna­þorp­unum við Vikt­or­íu­vatn.

En Sanya for­maður tók eftir örstutt hik bros­andi undir orð Rúts og verk­tak­arnir kink­uðu kolli til sam­þykkis.

Frímínútur í Mutumba-skólanum.
Frí­mín­útur í Mutumba-skól­anum.
Hvatning til nemenda í Bukewa-skóla. Skólahúsið lágreist múrsteinsbygging með litlum gluggum.
Hvatning til nem­enda í Bukewa-skóla. Skóla­húsið lágreist múr­steins­bygg­ing með litlum gluggum.

Rútur á eftir að ítreka þessi orð sín við verk­tak­ana við afhend­ingu á hverjum ein­asta bygg­ing­ar­stað. „Amma mín sagði alltaf að konur gætu gert allt það sem karlar geta og oft­ast betur,“ segir hann fyrir utan Busiro-skól­ann. Þar var hann að tala um Huldu Jak­obs­dóttur, fyrstu kon­una sem varð bæj­ar­stjóri á Íslandi og afa­systur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra.

„Konur sem geta borið 20 lítra af vatni á höfð­inu dag­ana út og inn geta borið múr­steina,“ segir hann þegar allir bygg­ing­ar­stað­irnir hafa verið afhentir verk­tök­unum og öku­ferðin um hol­óttu veg­ina í sveit­inni í átt til höf­uð­borg­ar­innar Kampala er hafin.

Nemendafjöld í skólastofu í Bukewa áður en húsnæðið var endurnýjað.
Nem­enda­fjöld í skóla­stofu í Bukewa áður en hús­næðið var end­ur­nýjað.

Rútur hefur ára­tuga reynslu af utan­rík­is­þjón­ust­unni og hefur sinnt störfum á hennar vegum í Asíu, Evrópu og nú Afríku. Það má segja að hann sé erind­reki fram í fing­ur­góma. Tein­réttur í baki, klæddur hvítum hörfatn­aði, með lit­ríka slaufu um háls­inn og fag­ur­lega ofinn hatt ætt­aðan frá Panama á höfði. Heilsar öllum sem hann hittir með breiðu brosi. Slær á létta strengi. Hann gengur hratt og ákveðið. Hlustar af ein­beitni, talar af festu og rögg­semd og lengir ekki mál sitt að óþörfu. Allt hans fas bendir til þess að hér fari maður sem er stað­fastur og krefst skil­virkni. Afkasta.

„Það eina sem við ætl­umst til af ykkur er að vera dug­leg að læra,“ sagði Rútur við Dorcas og hóp fleiri barna fyrir utan Mutumba-skól­ann er hann hafði hamrað á því við verk­tak­ann að til mik­ils væri ætl­ast af honum; gæða, skil­vísi og síð­ast en ekki síst að konur verði mættar til vinnu í næstu eft­ir­lits­ferð.

Börnin sýna skólabækurnar í Bukewa-skólanum.
Börnin sýna skóla­bæk­urnar í Bukewa-skól­anum.

Og það stenst. Um tveimur vikum síðar fer Rútur aftur út í þorpin við Vikt­or­íu­vatnið. Hann við­ur­kennir að það komi fyrir að hann taki „lítil brjál­æðisköst“ þegar fram­kvæmdir gangi ekki eftir áætlun en slíkt er óþarft í þetta skipti. Það er kom­inn miður febr­úar og verk­tak­arnir eru komnir á fullt. Allir hafa þeir ráðið konur.

„Þetta lofar góðu,“ segir hann að ferð lok­inni. Fagnar þó ekki fyrr en allt er í höfn og skól­arnir hafa verið afhentir, full­búnir.

Verk­tak­arnir eru valdir af kost­gæfni. Svo að til­boð þeirra séu tekin gild þurfa þau að stand­ast marg­vís­legar kröfur og skil­yrði. „Tilboðin eru tíu tommur á þykkt!“ segir Rútur. Þau eru yfir­farin af mörgum, m.a. verk­fræð­ingi sendi­ráðs Íslands í Úganda og verk­fræð­ingi sam­starfs­hér­aðs­ins, sem eru þeir hinir sömu og taka verkin reglu­lega út.

Konur í byggingarvinnu við Busiro-skóla.
Konur í bygg­ing­ar­vinnu við Busiro-skóla.
Kona ber vatn í hinum dæmigerða 20 lítra vatnsbrúsa framan við nýbyggingu í Busiro.
Kona ber vatn í hinum dæmi­gerða 20 lítra vatns­brúsa framan við nýbygg­ingu í Busiro.

Allir skil­málar eru skýrir og ekk­ert er greitt fyrr en ákveðnum áföngum er náð. „Það fer ekki króna í spill­ingu í þessum verk­efnum,“ full­yrðir Rútur. Með þessu fyr­ir­komu­lagi hafa valist góðir verk­takar til sam­starfs og sem dæmi þá skil­aði einn þeirra af sér nýjum skóla í Nama­y­ingo í jan­úar tveimur mán­uðum á undan áætlun.

Sá skóli var sér­stak­lega val­inn vegna þess að ástand hans var áber­andi slæmt. „Þegar ég kom þangað fyrst þá sátu börnin að læra undir mang­ó­tré,“ rifjar Rútur upp. Í rign­ingum var þeim safnað saman í skýli sem minntu á skreið­ar­hjalla. Aðgangur að vatni var lít­ill, hrein­læti því ábóta­vant og skóla­mál­tíðir skornar við nögl. „Skólaum­hverfið var óboð­legt,“ segir Edith hér­aðs­stjóri. Börn hafi hrein­lega ekki mætt í skól­ann. Þau yngri mörg hver aldrei hafið nám og þau eldri flosnað upp úr því.

Fyrir: Börn í kennslustund undir mangótré í Bumeru.
Fyrir: Börn í kennslu­stund undir mang­ó­tré í Bumeru.
Eftir: Mangótréð er enn í Bumeru en nýbyggingar umhverfis það hafa tekið við hlutverki kennslustofa.
Eftir: Mang­ótréð er enn í Bumeru en nýbygg­ingar umhverfis það hafa tekið við hlut­verki kennslu­stofa.

Hann heitir Bumeru. Skólinn sem nú hefur fengið svo gjör­breytt yfir­bragð að ekki er annað hægt en að smit­ast af ákafa starfs­fólks­ins og nem­end­anna sem læra og leika sér fjör­lega. Þeir fá hádeg­is­verð á hverjum degi sem eld­aður er í splunku­nýju og velút­búnu eld­húsi. Langar biðraðir hlykkj­ast um skóla­lóð­ina í hádeg­inu. Yngri börnin fá graut í bolla og fara svo heim að mál­tíð lok­inni. Þau eldri fá græn­meti, baunir og kássu úr bön­unum og rót­ar­græn­meti.

„Þetta er miklu meira en nýjar bygg­ingar,“ segir Sanya, for­maður hér­aðs­stjórn­ar­innar, er hann lítur með vel­þóknun yfir hlát­ur­mildan barna­skar­ann. „Þetta er nýtt upp­haf og áhrifin munu hrísl­ast um allt sam­fé­lagið.“

Drengur gengur fyrir framan nýju skólahúsin í Bumeru. Mangótréð til hægri.
Drengur gengur fyrir framan nýju skóla­húsin í Bumeru. Mang­ótréð til hægri.

Það er á ábyrgð for­eldra að koma með hrá­efni í hádeg­is­mat­inn. Í síð­ustu viku, segir Sanya, komu þeir með um 500 kíló af maís­mjöli. Í þess­ari viku voru kílóin orðin 2.500. „Allir vilja leggja hönd á plóg til að sjá til þess að þörfum barn­anna sé mætt, hvort sem það varðar kennslu eða nær­ingu. For­eldrar hafa fyllst auknum krafti.“

Nem­end­urnir eru einnig með nýjar skóla­bækur og í Bumeru og öðrum nýjum skólum sem Ísland styður við, fær hver sína bók. Í björtum skóla­stof­unum þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja eru ný skrif­borð. Að þessum nýja skóla lað­ast líka góðir kenn­arar enda fram­halds­menntun og íbúðir fyrir þá í boði.

Hádegismatur í Bumeru er reiddur fram í nýja eldhúsinu.
Hádeg­is­matur í Bumeru er reiddur fram í nýja eld­hús­inu.
Skólaeldhúsið í Busiro er dæmigert fyrir Namayingo.
Skóla­eld­húsið í Busiro er dæmi­gert fyrir Nama­y­ingo.

Skólinn hefur alveg frá því að hann var opn­aður í jan­úar verið eft­ir­sóttur. Börnin koma langt að til að sækja hann. „Það er mann­legt,“ segir Rútur, „for­eldrar vilja auð­vitað að börn þeirra fái bestu menntun sem völ er á.“

En þessu hafa vissu­lega fylgt áskor­anir. Áætlanir gerðu ráð fyrir að nem­end­urnir yrðu um 1.200 en þeir eru nú yfir 1.800. Í einni eft­ir­lits­ferð Rúts sá hann að við borð sem ætluð eru þremur nem­endum sátu jafn­vel fimm. Og hann lét panta 400 í við­bót hið snarasta.

„Við höfum ráðið fleiri kenn­ara en við þurfum enn fleiri,“ segir Edith hér­aðs­stjóri. Hluti af sam­komu­lag­inu við íslensk stjórn­völd felst í því að veita meira fé til nýbyggðu skól­anna svo hægt sé að fjölga kenn­urum og við­halda bygg­ingum og inn­an­stokks­munum þegar á þarf að halda. Þannig er von­ast til að sam­starfs­verk­efnin verði sjálf­bær til fram­tíðar.

En álagið er mikið því börnin hafa misst tæp­lega tvö ár úr skóla. „Við þurfum að styðja kenn­ar­ana í þessu verk­efni svo að börnin fái þá menntun sem þau þurfa og nái árangri í nám­inu,“ segir Edith.

Fyrir: Salernisaðstaða við Mutumba.
Fyrir: Sal­ern­is­að­staða við Mutumba.
Eftir: Nýju salernin við Bumeru-skóla.
Eftir: Nýju sal­ernin við Bumeru-skóla.

Í Bumeru voru byggð ný sal­erni og á því sem stúlk­urnar nota er einnig hægt að baða sig. Þessi nýlunda, sem lögð er mikil áhersla á í íslensku verk­efn­unum, breytir öllu fyrir skóla­sókn stúlkna sem forð­ast að mæta í skól­ann þegar þær eru á blæð­ingum ef engin er hrein­læt­is­að­staðan.

Við skól­ann gefur einnig að líta vold­uga vatns­tanka, fulla af hreinu vatni, og einn þeirra er stað­settur utan skóla­lóð­ar­innar fyrir íbúa í nágrenn­inu. „Góður aðgangur að vatni er ekki aðeins heil­brigð­is­mál heldur skýrt jafn­rétt­is­mál,“ segir Rútur. „Stúlkur sækja vatn og tím­inn sem það tekur er tími sem þær eru ekki í skól­anum.“

Rútur leit við í kennslustund í eldri bekkjum Bumeru-skóla. Stofurnar eru stórar og bjartar.
Rútur leit við í kennslu­stund í eldri bekkjum Bumeru-skóla. Stof­urnar eru stórar og bjartar.

Þetta blasir við með­fram öllum vegum vítt og breitt um Úganda. Hópar nem­enda á leið heim úr skóla mæta ungum stúlkum að bera stóra vatns­brúsa.

„Í þessu sam­fé­lagi höfum við glímt við margar hindr­anir í tengslum við vatns­öflun,“ segir Annet Nakesa. Hún gengur með stóran, gulan brúsa að vatns­bóli rétt við þorpið sitt. Áður var þar for­ar­leðja og ausa varð brún­leitu vatn­inu upp í brús­ana til að fylla þá. Annet gengur nú niður stein­steyptar tröppur og kemur brús­anum fyrir undir kröft­ugri bunu af hreinu vatni.

Þetta er eitt af nýju vatns­bólunum í Nama­y­ingo sem reist hafa verið í sam­starfi við Íslend­inga. Það tekur enga stund að fylla brús­ann og Annet, sem er ólétt af sínu þriðja barni, segir vants­bólið dýr­mæta gjöf. Áður hafi ýmist þurft að ganga niður að Vikt­or­íu­vatni, um átta kíló­metra leið, eða í næsta þorp sem er enn lengra í burtu.

Fyrir: Vatnsbólið í Nahaiga var oft eitt drullusvað.
Fyrir: Vatns­bólið í Nahaiga var oft eitt drullu­svað.
Eftir: Annet að fylla á brúsa í nýútbúnu vatnsbólinu.
Eftir: Annet að fylla á brúsa í nýút­búnu vatns­bólinu.

„Vatns­bólin hafa þornað upp. Vatns­bólin hafa meng­ast. Dýrin hafa drukkið og farið um sömu upp­sprettur og við urðum að nota,“ segir Annet. „Þetta var hættu­legt börnum. Það eru dæmi um að þau hafi drukknað. Við þetta þurftum við að búa.“

Árið 2020 segir hún þorps­búa hafa fengið nóg og beðið hér­aðs­stjórn­ina um aðstoð. Þeim var sagt að ef tæki­færi gæf­ist yrði bætt úr. „Og bænum okkar var svarað alla leið­ina frá Íslandi. Þess vegna höfum við núna aðgang að góðu vatni. Við, kon­urnar á þessu svæði, erum fullar þakk­lætis.“

21. mars 2022.

Leiðin frá Kampala þar sem íslenska sendi­ráðið er til húsa og til Nama­y­ingo-hér­aðs tekur heilan dag. Það hefur ekki mikið með kíló­metra­fjöld­ann að gera heldur umferð­ar­tepp­urnar í nágrenni höf­uð­borg­ar­innar og svo veg­ina hol­óttu í dreifð­ari byggðum sem minna stundum á gamla línuslóða á hálendi Íslands.

Þess vegna gera íslensku sendi­ráðs­full­trú­arnir, Rútur og Þórdís Sig­urð­ar­dóttir, for­stöðu­maður sendi­ráðs­ins í Kampala, sér næt­ur­stað í Jinja, litlu borg­inni við upp­tök Níl­ar­fljóts, og halda svo snemma morg­uns af stað til Nama­y­ingo. Til­gangur ferð­ar­innar er að skoða skól­ana þrjá sem nú eru komnir vel á veg.

Edith héraðsstjóri fer yfir árangur af samstarfsverkefnunum. Fundurinn er haldinn í ráðhúsinu í Namayingo.
Edith hér­aðs­stjóri fer yfir árangur af sam­starfs­verk­efn­unum. Fund­ur­inn er hald­inn í ráð­hús­inu í Nama­y­ingo.

En fyrst form­leg­heitin: Fundur með hér­aðs­stjór­anum og for­manni hér­aðs­stjórnar í litla fund­ar­her­berg­inu í ráð­hús­inu. Til við­bótar, rétt eins og við und­ir­ritun verk­taka­samn­ing­anna, eru ýmsir starfs­menn bæði sendi­ráðs­ins og hér­aðs­ins við­staddir.

Edith hér­aðs­stjóri sest við enda stóra borðs­ins. Á veggnum gengt henni hangir mynd af for­seta Úganda, Museveni, sem setið hefur á valda­stóli í 35 ár. Stór dreka­fluga líður létti­lega um her­bergið og hani galar stöðugt fyrir utan.

Þetta er dæmi­gerður dagur í Úganda.

Biskup er kynntur til leiks. Hann mun leiða bæn, segir Edith, og fólk drúpir höfði á meðan hann blessar sam­kom­una og sam­starfið.

Fyrir: Börnum kennt í skýli í Namayingo.
Fyrir: Börnum kennt í skýli í Nama­y­ingo.
Eftir: Börn í splunkunýrri kennslustofu í Bumeru.
Eftir: Börn í splunku­nýrri kennslu­stofu í Bumeru.

Edith er brosmild og í dag hlær hún oft­sinnis. „Við sjáum þegar jákvæð áhrif,“ segir hún við sendi­ráðs­full­trú­ana. Fleiri börn eru komin í skóla, áhug­inn á menntun og þátt­taka for­eldra hefur stór­auk­ist.

„Brosin eru farin að koma á and­lit fólks­ins,“ segir Sanya for­maður hér­aðs­stjórn­ar­innar. „Við höfum glímt við erf­ið­leika en núna á þessum stutta tíma sjáum við breyt­ingar.“

Börn sem sátu áður undir trjám eða í hrör­legum skýlum eru komin inn í skóla­stofur. „Þetta er stór­kost­legur munur,“ segir for­mað­ur­inn, „og það eru íslenskir skatt­greið­endur sem hafa stutt okkur“.

Fyrir: Skýli í Bumeru fyrir breytingar.
Fyrir: Skýli í Bumeru fyrir breyt­ingar.
Eftir: Pauline fjármálastjóri íslenska sendiráðsins heldur á myndinni af skýlinu framan við nýtt hús sem í stað þess er risið.
Eftir: Pauline fjár­mála­stjóri íslenska sendi­ráðs­ins heldur á mynd­inni af skýl­inu framan við nýtt hús sem í stað þess er risið.

Þrír skólar full­byggðir. Aðrir þrír við það að klár­ast og stefnt að fleirum. Fimmtíu bor­holur, sex brunnar og fimmtán almenn­ings­kló­sett. Edith ljómar er hún telur upp það sem þegar hefur verið gert. „Rútur er orð­inn eins og einn af okkur, far­inn að tala tungu­málið,“ segir hún hlæj­andi um tíðar eft­ir­lits­ferðir hans.

Hersing bíla ekur frá ráð­hús­inu. Smám saman fækkar bílum og mót­or­hjólum á veg­inum og reið­hjól og tveir jafn­fljótir taka við sem far­ar­skjótar. Við erum í kassava-hér­aði. Rótin liggur nið­ur­skorin á segl­dúkum í veg­köntum. Sölu­básar sem klambrað hefur verið saman úr afgangstimbri standa í röðum í litlum þorpum. Við bás­ana sitja konur með hrauka af tómötum og avókadó fyrir framan sig. Enginn kúnni er í aug­sýn en það verður að reyna að koma upp­sker­unni í verð.

Á milli kof­anna fara geitur um í gengjum. Staldra við til að kroppa í gras­toppa sem hafa skotið sér upp úr rauðri mold­inni og krafsa í litlu rusla­haug­ana sem eru um allt. Þær deila haug­unum með hænum og mjóslegnum kúm.

Íslandsvegur liggur í átt til Bumeru og fleiri skóla í Namayingo-héraði.
Íslands­vegur liggur í átt til Bumeru og fleiri skóla í Nama­y­ingo-hér­aði.

Kjöt­skrokkar hanga uppi í öðrum básum. Til að ekki fari á milli mála að um geit sé að ræða er rófan skilin eftir á skrokknum. Á þessum slóðum vill eng­inn óvart kaupa lamba­kjöt.

Er þorpum sleppir taka smáir akrar við. Á einum þeirra reiðir kona hlú­járn til höggs. Hlújárn er helsta land­bún­að­ar­verk­færið. Í Úganda draga dýr ekki plóga og vél­knúnar vinnu­vélar eru fágætar. Meira að segja á stór­býlum er sveðjum sveiflað til að höggva syk­ur­reyr­inn.

Með nokk­urra metra milli­bili ganga konur með vatns­brúsa. Þær gætu átt langa leið fyrir höndum. Sumar eru með dætur sínar og er sú stutta þá með minni brúsa. Gerir eins og mamma. Sækir vatn.

Báru­járns­kofar. Hringlóttir leir­kofar með strá­þökum. Alls staðar eru hús á milli ban­anatrjánna.

Börn í leið að nýuppgerðum vatnsbrunni í Namayingo til að fá sér sopa milli kennslustunda.
Börn í leið að nýupp­gerðum vatns­brunni í Nama­y­ingo til að fá sér sopa milli kennslu­stunda.
Börn í Busiro-skólanum í fótbolta.
Börn í Busiro-skól­anum í fót­bolta.

Bæng, bæng, bæng, bæng!

Skóla­bjalla glymur við Busiro-skóla. Bjallan er felga sem slegið er í með tré­sleif. Börnin koma hlaup­andi inn í kennslu­stund frá því að spila fót­bolta úti á túni. Spörkuðu ber­fætt á milli sín hálf­loft­lausri leð­ur­tuðru en með reglur leiks­ins á hreinu: Tóku inn­köst og markspyrnur.

Kannski er slegið aðeins fastar í bjöll­una þessa dag­ana til að yfir­gnæfa hávaða frá bygg­ing­ar­svæð­inu. Á aðeins örfáum vikum hafa risið fjögur ný hús. Þaksperr­urnar eru meira að segja komnar á sinn stað.

Það er ekki hægt að flytja börnin annað á meðan fram­kvæmdum stendur. Vinnu­svæðið er afgirt og skóla­stjór­inn segir alla leggj­ast á eitt við að gæta að öryggi barn­anna.

„Ég kann­ast ekki við mig hérna,“ segir blaða­maður Kjarnans og lítur í kringum sig. Rútur stað­festir að jú, við höfum komið hingað í jan­úar, fyrir um tveimur mán­uðum síðan. „Manstu, við fórum á fund undir þessu tré?“

Tréð er þarna vissu­lega enn. Hátt og virðu­legt og breiðir úr sér eins og sól­hlíf. Þetta er tréð þar sem Rútur brýndi fyrir verk­tak­anum, enn einu sinni, að ráða konur.

Fjöldmargar konur voru ráðnar í vinnu við Busiro-skólann.
Fjöld­margar konur voru ráðnar í vinnu við Busiro-skól­ann.
Rútur framan við eitt nýja skólahúsið í Busiro.
Rútur framan við eitt nýja skóla­húsið í Busiro.

Og þarna eru þær. Ekki ein og ekki tvær. Heldur fjöl­margar. Um 20 pró­sent allra verka­mann­anna. Þær hand­langa efni til smiða og múr­ara, saga, bera múr­steina, aka steypu í hjól­börum. Allar með örygg­is­hjálma á höfði og flestar í pilsum og stíg­vélum.

Verk­tak­inn röltir á milli nýbygg­ing­anna. Segir að þær verði teknar í gagnið innan fárra vikna. Þá fá börnin nákvæm­lega sömu aðstöðu og nem­end­urnir í Bumeru. Nýjar bækur, ný borð. Vonandi end­ur­mennt­aða kenn­ara. Og svo hljóð­færi og mögu­lega nýjan fót­bolta.

Rútur vill fá stað­fest að kon­urnar séu með sömu laun og karlar fyrir sömu vinnu. Verk­tak­inn segir svo vera.

„Það var Rútur sem hvatti verk­tak­ana til að ráða konur og það var gert,“ segir Sanya, for­maður hér­aðs­stjórn­ar­innar, þegar hann hefur kallað allar verka­kon­urnar saman til mynda­töku. Hann er stoltur. Finnst þetta góð saga til næsta bæjar.

Rútur ásamt nokkrum þeirra kvenna sem ráðnar hafa verið til framkvæmdanna í Busiro.
Rútur ásamt nokkrum þeirra kvenna sem ráðnar hafa verið til fram­kvæmd­anna í Busiro.

„Það er ánægju­legt að sjá ykkur hér allar,“ segir Rútur við kon­urnar, „en næst þegar ég kem vil ég að þið verðið orðnar fleiri.“

Konurnar hlæja og kinka kolli. Þær eru frum­kvöðlar, komnar í bygg­inga­geir­ann.

„Okkur finnst fram­tíð fiski­manna­sam­fé­lags­ins í Namayngo nú vera bjart­ari en áður,“ segir Edith hér­aðs­stjóri. „Við höfum bætt aðstöðu til mennt­unar og fært hana nær fólk­inu.“

Margir í Namayngo hafa alist upp við að fram­tíðin felist ein­göngu í því að róa til fiskjar á Vikt­or­íu­vatni, segir Sanya. „En nú sjáum við að með þess­ari útsjón­ar­sömu íhlutun, að bæta skól­ana og fá fleiri börn til náms, munu fylgja breyt­ingar. Og við sjáum þær nú þegar.“

Kjarninn mun halda áfram umfjöllun sinni um íslensk sam­vinnu­verk­efni í Úganda á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skólamál

Mest lesið undanfarið ár