Kallar eftir heildstæðri úttekt á starfsháttum og viðskiptaháttum Samherja

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður VG, segir að enn sé margt mjög óljóst og óskýrt eftir að hafa rætt við sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra á fundi atvinnu­vega­nefndar í gær. Þar á meðal hæfi ráð­herra til að byggja upp traust í kjöl­far Sam­herj­a­máls­ins.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG.
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður VG og nefnd­ar­maður í atvinnu­vega­nefnd, segir að fram undan bíði þing­mönnum risa­stórt verk­efni sem felst í því að upp­ræta við­skipta­hætti og við­skiptasið­fræði sem sé „ólíð­andi og óboð­legt“. Jafn­framt þurfi að efla traust á íslenska sjáv­ar­út­veg­inum, íslensku atvinnu­lífi og orð­spori íslenskra við­skipta­hátta.

„Þess vegna megum við alls ekki smætta Sam­herj­a­málið, held­ur þvert á móti vinna öt­ul­lega að þessu,“ segir Rósa Björk í Facebook-færslu í dag.

[links]Fundað var um Sam­herj­a­málið að ósk Rósu Bjarkar í at­vinnu­vega­nefnd Alþing­is í gær og var Kristján Þór Júlí­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra kall­aður fyr­ir nefnd­ina til þess að svara spurn­ing­um vegna máls­ins.

Rósa Björk segir í færslu sinni að gagn­legt hafi verið að fá ráð­herra á fund nefnd­ar­innar en að enn sé margt mjög óljóst og óskýrt. Hún segir jafn­framt að Kristján Þór hafi per­sónu­lega verið frekar óljós með það hvort að hann væri best til þess fall­inn að halda utan um þessa til­tekt og þessa upp­bygg­ingu traust. [adspot]

„Þá verðum við að horf­ast í augu við það hvort við­kom­andi ráð­herra sé hæf­ur til þess að halda utan um það mik­il­væga verk­efni með öll sín tengsl og sögu við Samherja,“ segir Rósa Björk og seg­ist jafn­framt vilja sjá heild­stæða út­tekt af hálfu yfir­valda á starfs­hátt­um og við­skipta­hátt­um Sam­herja.

„Alþing­i þarf líka að fylgj­ast með og sinna sínu aðhalds­hlut­verki sem því ber sam­kvæmt lög­um, bæði þing­menn og þing­nefnd­ir, og ég von­ast auð­vitað til þess að við mun­um sinna því öll,“ segir Rósa Björk að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár