Hið íslenska Kaptio fær fjármögnun upp á 325 milljónir

Kaptio Tra­vel, aðalvara Kaptio, hjálpar ferðaskrif­stof­um og ferðaskipu­leggj­end­um að halda utan um tilboðsferli og bók­an­ir viðskipta­vina sinna á skil­virk­ari hátt en áður og auðveld­ar jafn­framt sam­skipti við end­ur­söluaðila og birgja.
Kaptio Tra­vel, aðal­vara Kaptio, hjálpar ferða­skrif­stof­um og ferða­skipu­leggj­end­um að halda utan um til­boðs­ferli og bók­an­ir við­skipta­vina sinna á skil­virk­ari hátt en áður og auð­veld­ar jafn­framt sam­skipti við end­ur­sölu­að­ila og birgja. Mynd: ISAVIA

Íslenska tækni­fyr­ir­tækið Kaptio ehf. hefur fengið fjár­mögnun upp á 325 millj­ónir króna frá tveimur sjóðum, hinum íslenska Frumtaki 2 og banda­ríska áhættu­fjár­fest­inga­sjóðnum Capital A Partners, og fyrrum fjár­festum, Nýsköp­un­ar­sjóði atvinnu­lífs­ins og Kaski. Fjár­mögnun er liður í því að gera Kaptio kleift að styrkja vöru á Kaptio Travel lausn­inni á Bret­lands­mark­aði og und­ir­búa frek­ari vöxt fyr­ir­tæk­is­ins alþjóð­lega. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Þetta er í annað sinn sem Kaptio fær utan­að­kom­andi fjár­mögnun, en snemma árs 2015 til­kynnti fyr­ir­tækið um nýja fjár­mögnun frá Nýsköp­un­ar­sjóði atvinnu­lífs­ins og Kaski ehf. fjár­fest­inga­fé­lagi, upp á 120 millj­ónir króna. Áhættu­fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn Capital A Partners fjár­festir í ungum tækni­fyr­ir­tækjum á Norð­ur­lönd­unum og í Banda­ríkj­unum og sér­hæfir sig í að aðstoða nor­ræn fyr­ir­tæki í þeirra eigna­safni að nálg­ast banda­rískan markað. Sjóð­ur­inn er með skrif­stofur í Stokk­hólmi í Svíþjóð og Charleston í Suður-Karólínu.

Kaptio var stofnað árið 2009 af Arnari Laufdal Ólafs­syni og Ragnari Fjöln­is­syni. Höf­uð­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins eru í Hlíð­ar­smára í Kópavogi. Kaptio opn­aði í febr­úar sölu­skrift­stofu í London. Fyrir rak fyr­ir­tækið þró­un­ar­skrif­stofur í Heidel­berg í Þýska­landi og í Minsk í Hvíta-Rúss­landi. Fjöldi starfs­manna telur 16 manns. Kaptio Tra­vel, aðal­vara Kaptio, hjálpar ferða­skrif­stof­um og ferða­skipu­leggj­end­um að halda utan um til­boðs­ferli og bók­an­ir við­skipta­vina sinna á skil­virk­ari hátt en áður og auð­veld­ar jafn­framt sam­skipti við end­ur­sölu­að­ila og birgja. Hug­bún­að­ar­lausn­in er hönnuð sem við­bót við Sa­les­force.com við­skipta­tengsla­kerfið (CRM) en Sa­les­force er eitt þekktasta fyr­ir­tæki á sínu sviði í heim­inum.

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Arnari Laufdal, fram­kvæmda­stjóra Kaptio, að fjár­mögn­unin sé lyk­ill­inn að þeim verk­efnum sem fyr­ir­tækið ætlar í á Bret­lands­mark­aði á næst­unni. „Við erum byrjuð að mark­aðs­setja Kaptio Travel hug­bún­að­inn okkar þar, sem er sér­lausn hönnuð fyrir ferða­þjón­ustu­geir­ann. Þetta er ein­stök vara á sínu sviði og umbyltir verk­lagi og verk­ferlum þegar kemur að til­boðum og bók­unum. Hag­ræð­ingin og þæg­indin er ótví­ræð fyrir selj­and­ann en að sama skapi færi kaup­andi ferða­þjón­ustu per­sónu­legri og meira sér­sniðna þjón­ustu.“

Kaptio er til­nefnt í tveimur flokkum á Nordic Startups Awards í ár, ann­ars­vegar í flokki „Best Exponential Startup“ og hins­vegar í flokki „CTO Hero of the Year“, þar sem Ragnar Fjöln­is­son er til­nefndur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár