Óttarr: Ekki ætlunin að einkavæða eða stórauka einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

„Ég get full­vissað hv. þing­mann og þing­heim allan um að sá ráð­herra sem hér stendur mun ekki gera grund­vall­ar­breyt­ingar á heil­brigð­is­kerf­inu. Það stendur ekki til. Fyrsta verk mitt er að vinna að heild­stæðri heil­brigð­is­stefnu áður en nokkuð annað verður gert,“ sagði Óttarr Proppé heil­brigð­is­ráð­herra á þingi í morgun.

Óttarr svar­aði nokkrum óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum frá stjórn­ar­and­stöðu­þing­mönnum um einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, og Guðjón S. Brjáns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurðu hann öll út í einka­rekstur og einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu, í ljósi frétta af áformum Klíník­ur­innar í Ármúla um rekstur legu­deildar.

„Að und­an­förnu hefur verið til umræðu umsókn einka­að­ila um að fá samn­ing við Sjúkra­trygg­ingar Íslands um að opna nýja starf­semi sem felur í sér sér­hæfðar skurð­að­gerðir og legu­deild fyrir allt að fimm daga. Þetta er í raun og veru ekki hægt að kalla neitt annað en einka­rekið sjúkra­hús enda líta bæði land­læknir og einka­að­il­inn, Klíníkin sjálf, á starf­sem­ina sem sér­hæfða sjúkra­hús­þjón­ustu,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir í fyrstu fyr­ir­spurn­inni. Hún sagði að ef starf­semin verði skil­greind þannig myndi það koma í hlut Óttarrs að ákveða hvort veita eigi starfs­leyfi. „Hjá ráð­herra hvílir því risa­stór ákvörðun sem haft getur óaft­ur­kræf áhrif á íslenskt heil­brigð­is­kerfi og væri í raun grund­vall­ar­stefnu­breyt­ing í íslenskri heil­brigð­is­þjón­ustu. Það er ólíku saman að jafna stofu­rekstri sjálf­stætt starf­andi sér­fræði­lækna, ein­yrkja­starf­semi og því sem hér er á döf­inni, því að þarna er í raun farið í kjarna­starf­semi Land­spít­al­ans og eftir atvikum ann­arra sjúkra­húsa út um land.“ Katrín spurði Óttarr hvort ekki væri hægt að treysta því að hann myndi standa vörð um hið opin­bera heil­brigð­is­kerfi.

„Það er ekki ætlun mín að einka­væða kerfið eða auka stór­kost­lega einka­rekstur í kerf­inu. Það er ljóst að íslenska heil­brigð­is­kerfið er opin­bert heil­brigð­is­kerfi að því leyt­inu til að greitt er fyrir mest­alla heil­brigð­is­þjón­ustu af opin­beru fé. Það er gert með yfir­um­sjón og undir ábyrgð heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins og opin­berra aðila. Það er engin ætlun mín, eða ann­arra, held ég, og eng­inn póli­tískur vilji til þess að gera breyt­ingar þar á,“ sagði Óttarr í svari við fyr­ir­spurn Halldóru.

Hins vegar sagði Óttarr að hluti af rekstri og vinnu í íslenska heil­brigð­is­kerf­inu sé nú þegar unn­inn af einka­að­ilum, bæði sjálfs­eign­ar­stofn­unum og sjálf­stætt starf­andi sér­fræð­ingum. „En það er allt gert með opin­beru fé með eft­ir­liti, umsjón og ákvörðun heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins og opin­berra heil­brigð­is­yf­ir­valda. Það stendur ekki til að gera breyt­ingar þar á,“ sagði ráð­herr­ann. Hann sagð­ist vilja að stefnu­mótun heil­brigð­is­stefnu verði unnin á breiðum grund­velli og með eins lýð­ræð­is­legum vinnu­br­göðum og hægt er. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár