Tómas fékk 366 milljónir fyrir störf sín hjá eiganda álversins á Reyðarfirði

Tómas Már Sig­urðs­son, starfs­maður álris­ans Alcoa og fyrr­ver­andi for­stjóri Alcoa á Íslandi, er orð­inn þriðji launa­hæsti starfs­maður fyr­ir­tæk­is­ins á heims­vísu. Álverk­smiðjan á Reyð­ar­firði er mjög umdeild út af með­ferð Alcoa á rekstr­ar­hagn­að­inum af álf­ram­leiðsl­unni.

Orðinn einn sá launahæsti
Orðinn einn sá launa­hæsti Tómas Más Sig­urðs­son er orð­inn þriðji launa­hæsti starfs­maður Alcoa á heims­vísu.

Tómas Már Sig­urðs­son, aðstoð­ar­for­stjóri álfyr­ir­tæk­is­ins Alcoa og fram­kvæmda­stjóri stefnu­mót­un­ar­tengsla hjá fyr­ir­tæk­inu, var með 366 millj­ónir króna í laun, kaupauka, kaup­rétti og aðrar starfstengdar greiðslur í fyrra. Þetta kemur fram í nýbirtum upp­lýs­ingum frá Alcoa fyrir árið 2018. Árs­reikn­ingur Alcoa, sem á og rekur álverið á Reyð­ar­firði, var birtur á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins þann 19. mars og fylgdu einnig upp­lýs­ingar um launa­greiðslur æðstu stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins en Tómas er einn af þeim. 

Vegna þess að Aloca er skráð á hluta­bréfa­markað í Banda­ríkj­unum ber fyr­ir­tæk­inu að opin­bera mjög nákvæmar upp­lýs­ingar um rekstur sinn.

Orðinn þriðji launahæsti starfsmaðurinn af 14 þúsund

Tómas var áður for­stjóri Alcoa Fjarða­áls á Reyð­ar­firði á fyrstu árum álverk­smiðj­unnar og síðar for­stjóri Alcoa á Íslandi, árið 2008. Síð­ast­liðin ár hefur Tómas klifið upp met­orða­stig­ann innan fyr­ir­tæk­is­ins og er nú kom­inn í allra efsta lag þess, eftir að hafa meðal ann­ars verið for­stjóri Alcoa í Evrópu og Mið-Aust­ur­löndum.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár