Hafa ekki fengið lendingarleyfi: „Bíðum enn með tilbúnar ferðatöskur”

Flugvél sem átti að flytja venes­ú­elska hæl­is­leit­endur úr landi í lok febr­úar er enn ekki farin af stað. Sumir hæl­is­leit­end­anna voru þegar búnir að pakka í töskur og til­búnir að yfir­gefa landið þegar í ljós kom að Útlend­inga­stofnun hefði ekki fengið lend­ing­ar­leyfi. Þeir lifa nú í bið­stöðu en í Venes­ú­ela gæti beðið þeirra sól­ar­hrings varð­hald.

Leifsstöð
Leifs­stöð Þó nokkrir venes­ú­elskir hæl­is­leit­endur hafa sam­þykkt að yfir­gefa landið en þeir vita enn ekki hvenær þeir geta farið. Mynd: Golli

Útlend­inga­stofnun hefur gengið erf­ið­lega að fá lend­ing­ar­leyfi í Caracas, höf­uð­borg Venes­ú­ela. Venes­ú­elskir hæl­is­leit­endur fengu fyrst skila­boð um áætlað flug í des­em­ber en vélin hefur enn ekki tekið á loft.

Ein hæl­is­leit­end­anna var búin að selja þær litlu eigur sem hún átti hér á landi, segja upp leigu­samn­ingi og sjálf­boða­vinnu þegar flug­inu var frestað þann 23. febr­úar síð­ast­lið­inn – með fimm daga fyr­ir­vara.

Flug­ferðin átti að vera á vegum Útlend­inga­stofn­unar og Frontex, landamæra­stofn­unar Evrópu. Fyrstu skila­boðin sem venes­ú­elskir hæl­is­leit­endur fengu um það var í des­em­ber­mán­uði og var það þá áætlað í jan­úar eða febr­úar. 

„Leiguflugið er hluti af skuld­bind­ingu okkar til þess að aðstoða fólk sem hefur ákveðið að snúa aftur til Venes­ú­ela“, segir í skila­boð­unum. „Til að styrkja end­urað­lögun þína bjóðum við hverjum full­orðnum 2.900 Banda­ríkja­dali í reiðufé á Íslandi eða við kom­una til Venes­ú­ela.“

„Vegabréfið þitt gæti verið gert upptækt“

Þá var …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Einarsson skrifaði
    Það á bara að láta þetta fólk fá kennitölu og lofa því að sjá fyrir sér. Þetta er rugl.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttafólk frá Venesúela

Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.
GreiningFlóttafólk frá Venesúela

Sleppti mál­tíðum til þess að kom­ast frá Ásbrú

„Stans­laust von­leysi vaknar um leið og þú mætir,“ segir ungur venes­ú­elskur hæl­is­leit­andi um Ásbrú. Þar hafi verið ómögu­legt fyrir hann, eða nokkurn mann, að aðlag­ast íslensku sam­fé­lagi – sem er atriði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hefur sagst vilja fleiri búsetu­úr­ræði á borð við Ásbrú.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár